Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Page 22

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Page 22
Halda skal ófram sem horfir Stefán Jóh. Stefánsson ÞESS HEFUR STUNDUM orðið vart hér á landi, að menn líti ekki með neinni sérstakri hrifningu á baráttuna fyrir norrænu samstarfi. Vill það oft við brenna, að menn telji hana lítils virði eða allt að því óþarfa. Aðrir telja hana að verulegu leyti fólgna í samkvæmishöldum og innantómum skálaræðum. Það má vel til sanns vegar færa, að ýmislegt í sögu norrænnar samvinnu hafi verið loftkennt og léttúðugt. En hitt er þó víst, og má færa fyrir því gild rök, að meginþættir hennar sýni ötula og áhrifaríka baráttu, er orðið hafi til þess að tengja margháttuð, og ég vil segja órjúfanleg bönd á milli þeirra bræðraþjóða, er byggja Norðurlöndin. Það þarf raunar ekki að draga í efa, þann sterka samhug, er ríkir á milli Norður- landaþjóðanna. Hann kom greinilega í ljós í sambandi við síðustu heimsstyrjöld. Þegar Rússar réðust á Finna um mánaðamótin nóvember og desember 1939, kom annars staðar á Norðurlöndum skýrt í ljós hin mikla samúðaralda með Finnum. Mörgum er í fersku minni, hvernig sjálfstæðisdagur íslendinga, 1. desember, varð þá í skyndi og sjálfkrafa, að hyllingardegi fyrir Finnum, og hvernig undan- tekningarlítill einhugur fólksins brauzt fram í voldugri hópgöngu í Reykjavík, sem 20

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.