Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Blaðsíða 33
Norrœn jól
Félags-
mannatal
Norrœna
félagsins
1932-1952.
hingað fimleikaflokkur frá K. F. U. M. í Stokkhólmi og árið eftir söngflokkur frá
sama félagi. Sá Norræna félagið að öllu leyti um móttökur þeirra flokka.
í júlí 1939 var verkamannamót Viggbyholmara í Reykjavík og Laugarvatni.
3. Sænska vikan í Reykjavík 1936 var að sönnu ekki haldin á vegum
Norræna félagsins, en í nánu samstarfi við forustumenn Norræna félagsins, og má
hiklaust telja hana í beinu framhaldi íslenzku vikunnar í Stockhólmi 1932.
4. Norræni dagurinn. Á fulltrúafundi í Osló árið 1935 var ákveði, að hinn
27. október á hausti hverju skyldu Norðurlandaþjóðir minnast hver annarrar í skól-
um, útvarpi eða á annan hátt, er stuðla mætti að kynningu og almennri velvild
þeirra á milli. Hefur Norræna félagið í íslandi gengið vel fram í þessu, enda eru
yfir 20 íslenzkir skólar í félaginu. Hafa þeir fengið skuggamyndir frá Norðurlönd-
um til að sýna nemendum sínum.
5. Heimboð, fyrirlestrar. Árið 1937 bauð félagið Hákon prófessor Schetelig
að koma hingað og flytja erindi. Var það fyrsta heimsókn Norræna félagsins af
því tagi, en síðan hafa allmargir nafntogaðir fræði- og listamenn þegið slík boð.
Prófessor Schetelig og erindum hans var sérlega vel tekið.
6. Bókasafn. Félagið hefur bæði hlotið að gjöf og keypt allmargt nýrra
bóka á ári hverju um langt skeið. Oftast hafa verið fengnar um 10 bækur á ári
frá hverju Norðurlandanna. Með sérstöku samkomulagi við Bæjarbókasafn Reykja-
víkur eru bækur þessar geymdar þar og lánaðar félagsmönnum.
31