Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1952, Síða 35
Norrœn jól
Helztu málefni, sem rædd voru á þessum fulltrúafundi, voru sem hér segir:
Kennaraskipti milli landa, ferðir skólanemenda, norrænar listasýningar, samvinna
við Island, samvinna leikhúsa, jafnrétti til kennslu við háskóla og vísindastarfa á
Norðurlöndum, samnorræn frímerki í tilefni 25 ára afmælis Norræna félagsins,
samvinna við Rotaryklúbba, mót og námskeið 1940.
Stríðsárin.
Skömmu eftir að fulltrúafundinum var lokið, skall síðari heimsstyrjöldin yfir.
Strjáluðust þá brátt samgöngur milli íslands og annarra Norðurlanda og rofn-
uðu algerlega að heita mátti, er Þjóðverjar hertóku Danmörku og Noreg hinn
9. apríl 1940. Hefði því mátt ætla, að störf Norræna félagsins á Islandi hefðu að
miklu leyti lagzt niður ófriðarárin, en því fór fjarri. Má óhætt fullyrða, að félag-
inu hafði aldrei borið að höndum jafnmörg og umsvifamikil verkefni og einmitt
33