Þingtíðindi - 01.12.1947, Page 56
sem er skilyrði fyrir því að á íslandi verði haldið
uppi því menningarlífi sem nauðsynlegt er til þess
að þjóðin geti haldið sjálfstæði sínu.
Þing Sameiningarflokks alþýðu •— Sósíalista-
flokksins lýsir því yfir, að það telur að þjóðin eigi
að stefna að því að fá viðurkenndan rétt sinn til
umráða yfir fiskimiðunum á landgrunninu í kring
um ísland. Er nauðsynlegt, að íslenzka þjóðin sem
á tilveru sína undir því að þessi fiskur gangi ekki
til þurrðar, fái viðurkenndan rétt sinn til þess að
takmarka allar veiðar á þessum fiskimiðum eftir því
sem þörf krefur. Ber að stefna að því, að íslenzka
þjóðin geti tryggt sér einkaafnot þessara fiskimiða.
Þessu takmarki skal ísl. þjóðin leitast við að ná með
því að leita samstarfs við þjóðir sem svipaða hags-
muni hafa og fá viðurkenningu stórveldanna á þessu
réttindamáli.
Nánustu verkefni í landhelgismálum þjóðarinnar
telur þingið vera: 1) Að efla mjög gæzlu þeirrar
landhelgi sem nú er, en á því hefur verið mjög mik-
ill misbrestur. 2) Veita engri erlendri þjóð fisk-
veiðaréttindi innan landhelgi eða aðstöðu í land-
inu, sem gerir henni hægara um vik að stunda fisk-
veiðar á íslandsmiðum. 3) Að reyna að ná nú þegar
samvinnu við einhver af stórveldunum um viður-
kenningu á stækkaðri landhelgi og stækka þá þegar
landhelgina upp í 4 mílur, og halda uppi landhelgis-
gæzlu á því svæði.
54