Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 38
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jónas Valgeir Torfason bifvélavirki, lést 1. október á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð. Útför hans fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 7. október kl. 10.00. Sigríður A. Whitt Kolbrún Jónasdóttir Jón Karl Pálmason Torfi Jónasson Ólöf Jónasdóttir Terje Berg Íris Dagbjört Helgadóttir Jens Óskarsson afa- og langafabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Gyða Þórarinsdóttir sem lést föstudaginn 23. september verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 7. október klukkan 13. Einar H. Guðmundsson Alda Guðmundsdóttir Kristófer V. Stefánsson Eyjólfur Guðmundsson Nanna K. Guðmundsdóttir Þórarinn G. Guðmundsson Kristín Jónsdóttir Valborg Guðmundsdóttir Þór Þráinsson barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sesselja Þórdís Ásgeirsdóttir Díssella húsmóðir, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. október klukkan 11.00. Helgi Ásgeir Harðarson Margrét Sigmundsdóttir Hörður Þór Harðarson Sólveig Grétarsdóttir Þórdís Rós Harðardóttir Jón Vilhelmsson Guðmundur A. Harðarson Linda Sigmundsdóttir Ingibjörg Rósa Harðardóttir Þór Ólafsson ömmubörn og langömmubörn Ástkær systir mín, mágkona, frænka og vinkona, Anna Theodóra Rögnvaldsdóttir kvikmyndagerðarkona, verður jarðsungin næstkomandi föstudag 7. október kl. 15 í Neskirkju. Ólafur Rögnvaldsson og fjölskylda, aðstandendur og vinir Ástkær systir okkar, Linda Lee Dupuis lést í Bandaríkjunum 29. apríl 2022. Hún var jarðsett í Fossvogskirkjugarði að eigin ósk hjá móður okkar. Fyrir hönd nánustu ættingja, Bonnie Laufey Dupuis og Debora Susan Dupuis Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Karlsdóttir lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum sunnudaginn 2. október sl. Útförin verður gerð frá Landakirkju föstudaginn 7. október kl. 14 og streymt á vef Landakirkju: landakirkja.is Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hollvinasamtök Hraunbúða. Fyrir hönd aðstandenda, Stefán Friðþórsson Svala Sigurðardóttir Brynja Friðþórsdóttir Guðlaugur Friðþórsson María Tegeder Sigurhanna Friðþórsdóttir Jón Atli Gunnarsson barnabörn og barnabarnabörn Langholtsskóli fagnar sjötíu ára afmæli sínu um þessar mundir. Skólastjórinn segir stefnuna áfram setta á framsækið nám. arnartomas@frettabladid.is Nemendur og starfsfólk Langholtsskóla eru nú í óðaönn að undirbúa sjötíu ára afmælisfögnuð skólans sem fer fram næsta laugardag. Hátíðarhöldin hefjast með skrúðgöngu, eftir hverja gestum verður boðið að skoða afrakstur þema- vinnu nemenda um sögu skólans, horfa á skemmtiatriði og fá innsýn í skólastarf dagsins í dag. „Ég byrjaði árið 2001 og er búinn að vera síðan, svo þetta er þriðja stóraf- mælið sem ég tek þátt í,“ segir Hreiðar Sigtryggsson skólastjóri um skólann sem var settur í fyrsta sinn þann 14. nóvem- ber 1952. „Ég er í raun fimmti skólastjóri skólans á þessum sjötíu árum.“ Framsækni í fyrirrúmi Langholtsskóli hefur alla tíð verið fjöl- mennur skóli og er í dag stærsti grunn- skóli Reykjavíkur. „Í gamla daga var þetta þannig að skólinn var jafnvel þrísetinn og þá voru nemendur um 1.200 þegar mest lét,“ útskýrir Hreiðar. „Á þeim rúmu tuttugu árum sem ég hef verið skólastjóri hefur nemendum fjölgað um 200 og eru í dag 725. Það er því oft þröngt á þingi en eins og kom fram nýlega þá stendur til að byggja við skólann.“ Einkenni Langholtsskóla segir Hreiðar vera sköpunargleði og framsækni. „Einkunnarorð okkar eru virðing, vellíðan og skapandi skólastarf. Teymi kennara og annarra starfsmanna bera sameiginlega ábyrgð á nemendum sér- hvers árgangs,“ segir Hreiðar og nefnir sem dæmi þróunarverkefnið Smiðjan í skapandi skólastarfi sem skólinn hlaut Íslensku menntaverðlaunin fyrir árið 2020. „Smiðjan byggist á verkefna- miðuðu námi þar sem við samþættum íslensku, samfélagsfræði, náttúrufræði og upplýsingatækni.“ Lært að læra Þegar horft er fram á veginn segir Hreiðar að öllu skipti að skólastarfið sé í sífelldri þróun. „Við viljum taka vel á móti börnum og sinna þeim vel, ekki bara námslega heldur á allra handa máta. Mikilvægt er að horfa til styrkleika nemenda og rækta þá svo sérhvert barn fái að njóta sín.“ Nám snýst þannig ekki bara um að taka inn þekkingu heldur að læra að nýta hana. „Þegar krakkarnir sem eru að byrja hjá okkur núna í sex ára bekk verða þrítugir verður samfélagið væntanlega allt öðruvísi og störf sem ekki eru til í dag verða kannski viðfangsefni þeirra þegar fram í sækir. Skólinn þarf að mæta þessu,“ útskýrir hann. „Við þurfum að búa nemendur undir óræða framtíð. Ég vil gjarnan sjá nemendur okkar bera höfuðið hátt þegar þeir ljúka grunn- skólagöngu sinni og tilbúna til að takast á við hin ólíkustu verkefni.“ Hreiðar er þannig í takti við Gísla Jónasson, fyrsta skólastjóra Langholts- skóla, sem sagði í ræðu við vígslu skól- ans: „Ýmsir álíta að í barnaskóla eigi að veita börnunum þá þekkingu, sem þau eiga að afla sér fyrir lífsstarfið. Að vísu væri það mikils vert en meira væri þó um það vert að vitneskja barnanna þroskaðist, athyglisgáfa þeirra glæddist og sjóndeildarhringurinn víkkaði.“ n Skóli í sífelldri þróun Langholtsskóli var stofnaður þann 14. nóv- ember 1952. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Lýsisgjöf var áður daglegt brauð í skólanum. MYND/AÐSEND Hreiðar Sigtryggs- son, skólastjóri 1423 Guðmundur ríki Arason kvænist Helgu Þorleifs- dóttur, elstu dóttur Vatnsfjarðar-Kristínar. 1615 Spánverjavígin: Hópur baskneskra hvalveiðimanna drepinn við Skaganaust yst á Dýrafirði. 1897 Barnablaðið Æskan hefur göngu sína. 1946 Alþingi samþykkir að veita Bandaríkjunum afnot af landi á Miðnesheiði. Samningurinn olli miklum deilum. 1946 Melaskóli hefur starfsemi sína. 1949 Dregið í fyrsta sinn í Vöruhappdrætti SÍBS. 1963 Hljómsveitin Hljómar frá Keflavík kemur opinber- lega fram í fyrsta skipti. 1984 Hjónin Eiríkur J. Eiríksson og Kristín Jónsdóttir gefa bæjar- og héraðsbókasafninu á Selfossi bókasafn sitt með um 30 þúsund bindum. Er þetta talin mesta bókagjöf á Íslandi fram að þessu. Merkisatburðir TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 5. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.