Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 05.10.2022, Blaðsíða 37
Alma Hafsteinsdóttir, formaður Samtaka áhugafólks um spila- fíkn (SÁS), ritaði opið bréf í Frétta- blaðinu til stjórnar Rauða krossins á Íslandi (RKÍ) þann 27. september sl. vegna tafa á tillögum starfshóps um happdrætti og fjárhættuspil sem Sigurður Kári Kristjánsson er í forsvari fyrir og svo aðra grein 4. október vegna Mannvinasöfnunar RKÍ. Stjórnarformaður Íslandsspila svarar báðum greinum hér fyrir hönd stjórnar. Greinarhöfundur hefur áður spurt í Fréttablaðinu hvort rekstrar- aðilar spilakassa væru að tefja vinnu nefndarinnar. Fékk hún strax þau svör að svo væri ekki og raunar kom það fram í Fréttablaðinu 1. septem- ber sl. að dómsmálaráðuneytið hefði framlengt frest starfshópsins vegna umfangs verkefnisins og að vonast væri til að vinnu starfshóps- ins yrði skilað um mánaðamótin. Rétt er að árétta að greinarhöfundur á sjálf aðild að starfshópnum og veit því vel hvar vinna hans er stödd og vissi til dæmis af fundi hópsins sem boðað hefur verið til í vikunni. Rekstraraðilar hafa þegar hafnað aðdróttunum um tafir í Fréttablað- inu. Þær eru ekki málefnalegar eins og sjá má á svörum ráðuneytisins, svörum rekstraraðilanna og aðildar greinarhöfundar að starfshópnum. Í báðum greinum sínum gagnrýnir greinarhöfundur RKÍ og véfengir góðan vilja alþjóðasamtakanna í seinna bréfinu í Mannvinasöfnunar átaki félagsins. Í því sambandi nægir að nefna að það hefur áður komið fram að hjá Íslandsspilum væri unnið með skaðaminnkandi sjónarmið að leiðarljósi en þau krefjast stefnu- breytingar hjá hinu opinbera en eigendur Íslandsspila hafa í því samhengi opinberlega stutt inn- leiðingu spilakorta. Það er miður að SÁS taki ekki undir þau sjónarmið skaðaminnkunar. Virðast þau telja að bann við spilamennsku hjálpi fólki sem glímir við spilavanda. Í hverju samfélagi eru hins vegar skiptar skoðanir um hvort bönn séu æskileg eins og sjá má af nýlegri umræðu á Alþingi Íslendinga, þar sem pólitískar ákvarðanir um slíkt eru teknar. 65% vöxtur í ólöglegri vefspilun Greinarhöfundur spurði ennfrem- ur í fyrri grein sinni hverjir afkimar veraldarvefsins séu. Frá sjónarhóli rekstraraðila eru afkimar veraldar- vefsins erlendar vefsíður sem ekki lúta íslensku lagaumhverfi en það má vera ljóst að einn mikilvægasti þáttur skaðaminnkunar á Íslandi er að ná utan um alla spilun sem getur reynst fólki sem glímir við spilavanda erfið. Talið er að rúm- lega sex milljarðar króna muni renna til ólöglegra erlendra vef- síðna árið 2022, en til saman- burðar, þá runnu þangað um fjórir milljarðar króna árið 2018. Mestur er vöxturinn í „online casino“ eða um 65% á sama árabili. Það er því nauðsynlegt að spilakort nái einnig yfir þá spilun að mati Íslandsspila ef markmið um skaðaminnkun eiga að liggja til grundvallar. Hafi fólk hagsmuni af mála- f lokknum ber því að spyrja sig hvað sé raunverulega best fyrir alla viðkomandi. Það á líka við um Ölmu. Sjónarmið Íslandsspila er að skaðaminnkun með spilakorti sé farsælasta leiðin fyrir alla hópa. Ekki bann. Málflutningur greinar- höfundar fyrir hönd SÁS ber þess merki að þau séu mótfallinn ska- ðaminnkandi leið og vilji bara bann. Hver er raunveruleg afstaða SÁS? Vilja SÁS bann eins og fram kemur á vef þeirra lokum.is eða skaðaminnkandi spilakort? n Stjórn Íslandsspila svarar opnu bréfi Ölmu Hafsteinsdóttur formanns SÁS FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 Stærð Verð m/stillanlegum botni Tilboð 160 x 200 cm 649.900 kr. 519.920 kr. 180 x 200 cm 679.900 kr. 543.920 kr. 180 x 210 cm 689.900 kr. 551.920 kr. 200x200 cm 739.900 kr. 591.920 kr. SERTA CHANDON HEILSURÚM (dýna, botn, gafl og lappir) SETTU ÞIG Í STELLINGAR FYRIR BETRI SVEFN MEÐ ÞVÍ EINU AÐ SNERTA TAKKA GETUR ÞÚ STILLT RÚMIÐ Í HVAÐA STELLINGU SEM ÞÉR HENTAR Chandon heilsurúmið frá Serta er vandað rúm, sniðið að þínum þörfum. Pokagormadýna sem skipt er upp í fimm mismunandi svæði. Góður stuðningur við bak en mýkra við axla- og mjaðmasvæði. Hægt er að velja um tvo mismunandi stífleika. Áklæðið utan um dýnuna er mjúkt og slitsterk, ofnæmisfrítt og andar vel. Rúmið fæst í gráu og grænu áklæði. STILLANLEGIR DAGAR 20% AFSLÁTTUR AF STILLANLEGUM RÚMUM ALLT ÞAÐ NÝJASTA FRÁ TEMPUR® Kristín S. Hjálmtýsdóttir stjórnarformaður Íslandsspila Í allt sumar hefur fjárlagafrum- varp verið í smíðum hjá ríkis- stjórninni. Þar sitja 12 ráðherrar í 12 ráðuneytum hjá þjóð sem telur tæplega 380.000 manns. Í allt sumar hafa vaxtahækkanir Seðla- bankans valdið heimilum landsins áhyggjum, enda hafa mánaðar- legar af borganir lána á mörgum heimilum hækkað um tugi þús- unda. Stýrivextir hafa hækkað meira en þeir hefðu þurft, meðal annars vegna þess að ákvarðanir ríkisstjórnarinnar hafa unnið gegn markmiðum Seðlabankans. Nú hefur f járlagafrumvarpið verið lagt fram og kemur í ljós að það hljóðar upp á næstum 90 millj- arða króna halla. Staðan er sterk segir fjármálaráðherra á meðan vaxtakostnaður skulda er fjórði stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. Í kynningu ráðherrans segir svo nánast í framhjáhlaupi að ríkisút- gjöld muni aukast um 79 milljarða. Hvernig Ísland virkar best Fjárlagafrumvarp er skýrasta yfir- lýsing hverrar ríkisstjórnar um hvers konar pólitík hún stundar og um leið yfirlýsing um hvaða loforð skuli efna. Fjárlagapólitík snýst í reynd um einfalda en mikilvæga spurningu: Hvernig virkar Ísland best? Fjárlögin eiga að stefna að því að Ísland virki sem best fyrir fólkið í landinu. Ríkisstjórnin talar um að það þu r f i að ver ja v iðk væmu st u hópana fyrir áhrifum verðbólgu sem sannarlega er gott markmið. Vandamálið er að þess sjást lítil merki. Veruleikinn er hins vegar að millitekjufólk fær skell. Sama fólk og hefur í allt sumar fundið fyrir hækkandi vöxtum á fasteignalán- um og hækkandi verðlagi. Hingað verða tekjur sóttar. Fjármálaráðherra talar líka um að ríkisfjármálin þurfi að styðja við markmið Seðlabankans um að ná verðbólgunni niður en segir ekki hvernig. Álögur á fólkið í landinu hækka og leiða þannig til hærra verðlags. Þessar álögur vega þungt í því samhengi að Ísland býður fólki í landinu nú þegar eitt hæsta mat- arverðið, hæstu vextina og dýrustu tryggingarnar. Orðið veiðigjald heyrist ekki þegar forystumenn ríkisstjórnarinnar tala um fjár- lagafrumvarpið en með hækkun áfengisgjalds geta Íslendingar hins vegar fagnað nýju Evrópumeti. Við eigum áfram hæstu áfengisskatta Evrópu sem hækka nú enn. Fjármálaráðherra talar um tæki- færi í einfaldara ríkiskerfi. Það er hins vegar lítið um þetta í frum- varpinu. Stjórnkerfið varð heldur ekki áberandi einfaldara með fjölgun ráðherra og ráðuneyta í fyrra, en sú breyting mun kosta um 2 milljarða króna á kjörtímabilinu. En hvað um það þótt báknið blási út? Hvað með það þó að útgjöld aukist án þess að þjónusta batni? Hvað um það þótt mikilvægum fjárfestingum í innviðum sé slegið á frest? Hvað með það þó að heim- ilin séu að sligast undan dýrum lánum? Heilbrigðiskerfið þarfnast framtíðarsýnar Heilbr igðismálin er u st ærst i útgjaldaliður fjárlaganna og sá málaflokkur sem þjóðin er einhuga um að verja og ef la. Heilbrigðis- kerfið þarf skýra framtíðarsýn til að mæta komandi verkefnum og áskorunum. Þar stinga háar vaxta- greiðslur ríkissjóðs þegar meira fjármagn þarf í innviðafjárfest- ingar. Margar áskoranir blasa við: Sérfræðilæknar skila sér ekki heim eftir nám erlendis og hjúkrunar- fræðingar hverfa til annarra starfa. Stóra málið er að tryggja að Ísland standist samkeppni að utan. Þingf lokkur Viðreisnar hefur talað fyrir þjóðarsátt um bætt kjör kvennastétta og áður lagt fram þingmál þess efnis. Það er mikil- vægur liður í því að styrkja heil- brigðiskerfið til lengri tíma. Fjár- lagafrumvarpið gerir heldur ekki ráð fyrir fjármagni til að semja við sjálfstætt starfandi lækna, sem hafa verið samningslausir árum saman. Fjármagn í þetta verkefni er ekki í fjárlagafrumvarpinu. Vandinn þar er ekki síst til kominn vegna þess að ríkisstjórnin getur ekki komið sér saman um hver stefnan á að vera um heilbrigðiskerfið. Á meðan eykst vandinn. Við höfum jafnframt gagnrýnt að í fjárlögum virðist ekki svigrúm til að mæta því að nýrri lyf kosta meira. Formaður Læknafélagsins sagði nýlega að vegna framfara færi lyfjakostnaður hækkandi, en því er ekki mætt í fjárlögum. Lífskjör tekin að láni Skynsamleg hagræðing er liður í að verja lífskjör almennings og velferð, samkeppnishæfni Íslands, og ekki síst liður í því að ná tökum á verð- bólgu. Það er ótrúlegt að hægt sé að þenja út ríkið án þess að þjónusta þess batni. Í heilbrigðiskerfinu hafa biðlistar barna eftir þjónustu lengst jafnt og þétt á þeim fimm árum sem ríkisstjórnin hefur setið. Starfsfólk á krabbameinsdeild segir að deildin sé algjörlega sprungin og svona mætti áfram telja. Það er ótrúlegt að hægt sé að auka álögur á heimili landsins sem þegar glíma við fasteignalán í hæstu hæðum og hækkandi matarverð. Alþjóðlegar efnahagshorfur hafa versnað hratt. Við þær aðstæður er merkilegt að ríkisstjórnin fari þá leið að taka lífskjör að láni og haldi blaðamannafundi um að hún stefni á að reka ríkissjóð með halla í mörg ár til viðbótar. Alveg til ársins 2027. Í því felst kannski alveg óvart viðurkenning á að næstu ríkisstjórn sé betur treystandi til að til að taka á málum og rétta reksturinn af. Staðreyndin er að ríkisstjórnin fer leið sem er stjórnvöldum auðveld en almenningi erfið: Að fresta því að takast á við vandamál en auka umsvif ríkisins án þess að bæta þjónustu við almenning. Þessi aðferðafræði er heimilum og fyrir- tækjum landsins dýr, því þau eru skilin eftir með reikninginn. n Ríkisstjórn sem hleypur frá reikningnum Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar FRÉTTIR, FÓLK & MENNING á Hringbraut MIÐVIKUDAGUR 5. október 2022 Skoðun 13FRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.