Bændablaðið - 21.07.2022, Page 7
7Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Þrír af stjörnum mótsins stilla sér upp fyrir framan brekkuna. Fv: Gandi
frá Rauðalæk, hæsti hestur landsins á herðakamb, knapi er Guðmundur
Björgvinsson. Viðar frá Skör og Helga Una Björnsdóttir og Sindri frá
Hjarðartúni, sem hlaut hæsta hæfileikadóm sem nokkur hestur hefur hlotið,
9,38. Knapi er Hans Þór Hilmarsson.
Kristín Eir Hauksdóttir Holaker vann
barnaflokk á Þyt frá Skáney.
Þetta mun ekki vera í fyrsta sinn sem fjölskyldan í
Garðshorni á Þelamörk tekur á móti verðlaunum fyrir
hæst dæmda 4 vetra stóðhest Landsmótsins. Valíant
hlaut titilinn í ár. Hann situr Agnar Þór Magnússon
og Birna Tryggvadóttir heldur á verðlaunagrip. Dóttir
þeirra Ylva Sól hampar stolt bikarnum.
LÍF&STARF
Mikið gersemi og einstakt
gleðiefni barst mér í pósti
nýverið.
Sjöunda Davíðsbók er komin út hjá
Óðinsauga útgáfu. Davíð Hjálmar
Haraldsson á Akureyri er með iðnari
andans mönnum í dag, og fáir núlifandi
eiga stærri útgáfu að baki.
Í þessum þætti verður einvörðungu
tekið efni úr þessari bráðskemmtilegu bók
Davíðs Hjálmars, og lesendur hvattir til að
kaupa sér eintak hið snarasta. Skopskyn
Davíðs er með þeim hætti sem getur glatt
hvern einasta þann sem vísum ann og
veit til kveðskapar. Með bókargjöfinni
fylgdi fyrsta vísa þáttarins, enda er hún
sérstaklega merkt Bændablaðsþættinum:
Í fjölmiðlum er fjargviðrast og jagast,
flesta bændur plagar last og hnjóð,
en eitthvað gætu blessuð blöðin lagast
birtust í þeim fleiri Davíðsljóð.
Davíð orti um þrjá athafnamenn sem hlutu
nýsköpunarverðlaun fyrir lífræna ræktun,
en voru svo árið eftir handteknir fyrir
hassræktun í Svarfaðardal:
Langþreyttir bændurnir kvarta um kal
á kotbýlum norður í rassi
en nýsköpun sögð er í Svarfaðardal
og sífrerinn ilmar af hassi.
Höfundur var á ferð um Vesturland,
og heimsótti meðal annars geitabúið á
Háafelli, og þótti stórfróðlegt:
Úr geitahári gott er að
gera band og prjóna.
Úr kiðlingunum kemur tað.
Klínist það í skóna.
Meðal allmargra veðurvísna Davíðs er að
finna þessar:
Opnar dyrnar upp á gátt
Ingveldur í Sogni.
Naumast blæs þar nokkur átt
nema í stafalogni.
Leiðist mest í logni og yl
Leopold á Hóli,
hann vill fimbulfellibyl
en fárviðri í skjóli.
Á Stafni fellur steypiregn
stöðugt. Þó að linni
blotnar þvottur þar í gegn
í þurrkklefanum inni.
Þurrast veit ég veðurfar
í vindinum á Grundum.
Fyllibyttur þorna þar
á þremur klukkustundum.
Limra um tíkina Týru:
Hún Týra var löt að leita
að lömbum og uppnefnd „Feita“
og ánum að smala
var ekki um tala:
„Nei fyrr skal ég hundur heita.“
Ráðuneyti þótti kaupa ráðgjöf úr hófi eftir
hrun:
Virðist þegar vel er gáð
varla yfrið skrýtið
þó að stöðugt þiggi ráð
þeir sem vita lítið.
Og þessi limra er um Lóu:
Af Lóu fer lykt mig að pirra
þó lagi það reykelsi og myrra
en fnykurinn vex,
þetta fúllynda hex
varð allt þriðja ágúst í fyrra.
Menn verða gleymnir þegar þeir fullorðnast.
Um það orti Davíð þessa limru:
Ég eldist en alltaf mig spjara
þótt örðugt sé stundum að svara
ef einhver mig spyr
hér úti við dyr:
Hvort ertu að koma eða fara?
Umsjón:
Árni Geirhjörtur Jónsson
kotabyggd1@gmail.com
302MÆLT AF
MUNNI FRAM
Svipmyndir af Landsmóti 2022
Það heyrði til tíðinda að af átta hrossum sem tóku þátt í úrslitum
B-flokks gæðinga voru fimm rauðskjótt. Frá vinstri: Sigur frá Stóra-
Vatnsskarði og Hinrik Bragason, Álfgrímur frá Syðri-Gegnishólum
og Olil Amble, Ísak frá Þjórsárbakka og Teitur Árnason, Þröstur frá
Kolsholti 2 og Helgi Þór Guðjónsson, svo Ljósvaki frá Valstrýtu og
Árni Björn Pálsson sem stóðu uppi sem sigurvegarar.
Hekla Katharína Kristinsdóttir fór fyrir skrautreið við setningu Landsmóts.
Allir bestu hestar landsins komu saman á Rangárbökkum við Hellu
í byrjun mánaðarins á Landsmóti hestamanna.
Þótt veðrið hafi ekki beint leikið við Landsmótsgesti hafði það engin
áhrif á rífandi stemningu og góðan anda, enda ekki annað hægt en að
kætast yfir þeim hestagullum sem komu fram í kynbótasýningum og hinum
fjölbreyttu keppnum. Talið er að milli sjö og átta þúsund manns hafi setið í
brekkunni þegar mest var. Miðað við glæsilegan og fjölbreyttan hestakost
ungra sem aldinna á mótinu er hægt að fullyrða að íslensk hrossarækt er
eitt af dýrmætustu menningarverðmætum þjóðarinnar. /ghp
Búgreinadeild hrossabænda heiðruðu Kristin Guðnason í Skarði fyrir framlag sitt til hrossaræktarinnar. Hjá honum stendur Heiðrún Ósk Eymundsdóttir, varaformaður deildarinnar, og Sveinn Steinarsson formaður. Áhorfendur standa Kristni til heiðurs.
Sigurður Steingrímsson fór sannkallaða fjalla-
baksleið að sigri í unglingaflokki á hryssunni Hátíð
frá Forsæti II. Fyrst sigurðu þau B-úrslit og komu
svo galvösk inn í aðalúrslit og alla leið.
Ágúst Sigurðsson í Kirkjubæ tók við æðstu viðurkenningu íslenskrar hrossaræktar fyrir stóðhestinn Sjóð frá Kirkjubæ. Teitur Árnason situr Sjóð og lyftir verðlaunum ásamt Guðmundi Björgvinssyni, sem líklega situr Þyrnirós frá Rauðalæk. Núverandi eigandi Sjóðs, Alexandra Hoop, heldur á mynd af bikarnum.
Benedikt Ólafsson og Biskup frá Ólafshaga
sigruðu sitt annað Landsmót í röð,
ungmennaflokk í þetta sinn, en síðast voru
þeir í unglingaflokki.