Bændablaðið - 21.07.2022, Page 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
FRÉTTIR
Alþjóðaþing landbúnaðarblaðamanna 2022:
Framtíð landbúnaðar
á óvissutímum
Fréttir og upplýsingar um
landbúnað og fæðuframleiðslu
í heiminum og heima fyrir hafa
sjaldan verið mikilvægari en nú
á tímum.
Talsverð óvissa ríkir um
matvælaframleiðslu í heiminum
vegna hækkandi verðs á olíu- og
aðföngum til landbúnaðar. Auk þess
sem afleiðingar loftslagsbreytinga
á fæðuöryggi ólíkra heimshluta eru
ófyrirsjáanlegar.
Dagana 27. júní til 4. júlí
síðastliðinn fór fram í Vejle
í Danmörku alþjóðaþing og
ráðstefna landbúnaðarblaðamanna.
Á rástefnunni voru vel á annað
hundrað blaðamenn og fulltrúar
fjölmiðla sem sérhæfa sig í
skrifum um landbúnað og
matvælaframleiðslu frá tæplega 50
löndum. Bændablaðið átti fulltrúa
á þinginu.
Þétt dagskrá
Að öllu jöfnu er þingið haldið
árlega en vegna Covid-19 varð
hlé á því í þrjú ár og því margt að
fjalla um. Dagskrá ráðstefnunnar
var því þétt og skiptist í fyrirlestra,
vinnustofur og vettvangsferðir þar
sem þátttakendur fengu að kynnast
dönskum landbúnaði, nýsköpun í
danskri matvælaframleiðslu og
umhverfisvernd.
Hægt var að velja á milli um
það bil 50 ólíkra vettvangsferða á
fjórum dögum. Þátttakendur gátu
valið eina ferð á dag og í hverri ferð
voru heimsótt fjögur eða fimm ólík
býli eða nýsköpunarfyrirtæki.
Hvernig á að fæða 10 milljarða?
Áætlaður fólksfjöldi í heiminum í
dag er tæplega átta milljarðar en
gert er ráð fyrir að sú tala verði
komin í tíu milljarða árið 2050.
Í inngangsfyrirlestrum var meðal
annars varpað fram þeirri spurningu
hvernig ætti að fæða þá tíu milljarða
sem búist er við að mannkynið telji
árið 2050. Niðurstaða umræðunnar
var sú að landbúnaður í dag væri
vel fær um að framleiða mat fyrir
10 milljarða jarðarbúa en að ástæða
þess að víða um heim ríkti alvarleg
hungursneyð væri ójöfnuður og
fátækt sem leiddi til matvælaskorts.
Breytingar á veðurfari hafa einnig
leitt til þurrka og uppskerubrests á
svæðum þar sem fólk gat áður reitt
sig á árvissa uppskeru.
Skammtíma- og
langtímavandamál
Á þinginu kom fram að vandamálin
sem matvælaframleiðsla heimsins
á við að etja séu tvíþætt, annars
vegar skammtíma- og hins vegar
langtímavandamál.
Til skammtímavandamála teljast
meðal annars hækkanir á aðföngum
til landbúnaðar vegna ófriðar og
stríða. Sagan sýni að slíkar hækkanir
leiti jafnvægis og að matvælaverð
lækki aftur eftir að átökin hætta.
Langtímavandamál eru aftur á
móti veðurfarsbreytingar að völdum
losunar gróðurhúsalofttegunda og
langtímaafleiðingar þess.
Fjöldi ávarpa
Meðal þeirra sem ávörpuðu
þingið voru Eduardo Mansur,
framkvæmdastjóri sviðs lofts-
lags breytinga, líffræðilegs
fjölbreytileika og umhverfismála
hjá FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna,
Denise Cambell Baur, sendiherra
Bandaríkjanna í París, David
Leishmann, landbúnaðarráðgjafi
við sendiráð Bandaríkjanna í
París, og Henning Otte Hansen,
markaðsfræðingur og ráðgjafi hjá
matvælaráðuneyti Dana.
Nánar verður fjallað um
ráðstefnuna og vettvangsferðir
henni tengdri í næstu tölublöðum
Bændablaðsins. /VH
Sveitasæla á Jótlandi. Myndir / VH
Hluti þátttakenda í vettvangsferð.
Ráðstefnusetrið í Vingsted.
Fyrirlestur um kynbætur og fræ
framleiðslu.
Slökkvirörið frá Scotty FireFighter
inniheldur 15 cm langt kvoðuhylki í
föstu formi.
Einfalt í notkun; tengist við
garðslöngur og stærri slöngur.
Lausnin er umhverfisvæn.
Við stöðugt rennsli á 4,5 börum
dugar hleðslan í 60 mín.
Hentar mjög vel við 2,5 til 5,9 bör.
Fyrir bændur, sumarhús, slökkvilið og
hvern þann sem þarf að hafa góðan
búnað við hendina.
Skutull ehf.
S. 773-3131 & 842-1314
Skutull ehf.
S. 517-9991 & 842-1314
Tinger Armor
Eigum til á lager þessi frábæru
farartæki, se henta nánast
við allar aðstæður.t.d
Landbúnað-björg n r veit r-
slökkvilið-línuviðgerðir á
hálendinu-verktakar ofl.
Góð burðargeta-skráður fyrir
6 á landi en 4 á vatni.
Mjög hagstæð verð.
Stjórnvöld í Noregi vilja tryggja fæðuöryggi með því að koma upp
korngeymslum með sex mánaða lager. Mynd / Miguel Bernardo
Noregur:
Vilja eiga hálfsárs
birgðir af korni
Landbúnaðarstofnuninni í Noregi
(n. Landbruksdirektoratet)
var falið af landbúnaðar- og
matvælaráðuneytinu þar í
landi að kanna fýsileika þess
að hið opinbera kæmi sér upp
korngeymslum sem hægt væri að
sækja í ef innflutningur á korni
stöðvast.
Vinna stofnunarinnar leiðir
í ljós að sex mánaða birgðir í
korngeymslum hins opinbera séu
nauðsynlegar til þess að tryggja
fæðuöryggi. Sé miðað við notkun
á fóður- og matvælakorni í
meðalári þýða þetta 165.000 tonn.
Þessi lager er þá viðbót við þær
geymslur sem eru þegar í notkun á
vegum einkaaðila. Frá þessu greinir
Bondebladet.
Neyðargeymslur voru áður til
Nú þegar eru til korngeymslur í
einkaeigu sem er hægt að nýta fyrir
hluta þess sem stofnunin leggur til.
Stjórnvöld voru áður eigendur
að Stavanger Havnesilo, sem rúmar
190.000 tonn korns og var byggt
sem neyðargeymsla á árum áður.
Felleskjøpet Agri er eigandi þeirra
korngeymsla í dag og hafa boðið
stjórnvöldum geymslupláss fyrir
50.000 tonn korns, sem er tveggja
mánaða forði. Ríkisstjórnin þurfi
því að fara í framkvæmdir til þess
að koma upp því geymsluplássi sem
upp á vantar. Minnst sjö ár taki að
byggja umrætt geymslupláss frá því
ákvörðun um byggingu liggur fyrir.
Getur eflt innlenda framleiðslu
Stofnunin segir að hið opinbera
skuli koma að því að kaupa inn
kornið. Einkaaðilar munu svo sjá
til þess að það sé velta á birgðunum.
Ekki er tekin afstaða til þess hvort
forðabúrið skuli innihalda innlent
eða erlent korn.
Bent er á að sú stefna sem tekin
er í því máli muni hafa mikil áhrif
á það hvaða aðilar muni sækjast
eftir að taka þátt í verkefninu. Ef
stefnt er að því að nýta innlent
korn getur korngeymsla sem þessi
styrkt norska ræktun. Sjái norskir
bændur fram á að tryggur kaupandi
sé að korninu þeirra, þá er bent á
að framboð af innlendu korni verði
áreiðanlegra.
Þess má geta að Íslendingar
eiga á hverjum tíma 4-6 vikna
kornbirgðir sem eru að mestu í eigu
fóðurframleiðenda. /ÁL
Sjái norskir bændur fram á að
tryggur kaupandi sé að korninu
þeirra, þá er bent á að framboð af
innlendu korni verði áreiðanlegra.
Mynd / Nicolas Messifet