Bændablaðið - 21.07.2022, Side 27
27Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
„Það sem gerir safn Sverris ólíkt
öðrum söfnum er að safnarinn gerir
ekki upp á milli muna, hann safnar
öllu sem haga má í hendi. Hann
kallaði þessa hluti smáka. Þetta eru
ólíkir munir, blævængir, blýantar,
bókamerki, blaðsagir, beltissylgjur
og blekbyttur, sem eiga sér sinn stað
á safninu. Það sem aðrir sjá úr sér
gengna muni sá Sverrir dýrgripi,“
segir hún.
Blikur á lofti í húsnæðismálum
Sigríður segir að nú séu blikur á
lofti varðandi húsnæðismálin, en
sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar hafi
kynnt áform um að selja Sólgarð.
Safnið yrði þar með komið á
hrakhóla.
„Einu upplýsingarnar sem ég hef
er að safnið verði ekki selt, en ekkert
hefur komið fram um hvort það verði
opið áfram og sett upp annars staðar
eða hvort því verði pakkað niður,“
segir hún og bætir við að ekkert
samráð hafi verið haft við sig eða
aðra um framtíð Smámunasafnsins.
Dæmi séu um söfn sem pakkað
hafi verið niður vegna breytinga á
húsnæðismálum þeirra og munir
aldrei teknir upp úr kössum aftur.
Bendir Sigríður á að Sólgarður sé
elsta samkomuhús Eyjafjarðarsveitar
og merkilegt fyrir þær sakir, byggt
af fólkinu í Saurbæjarhreppi
hinum forna. Smámunasafnið,
auk Saurbæjarkirkju sem er þar
skammt við, sé eina aðdráttaraflið
fyrir það fólk sem ekur fram fyrir
Grund. Gestum safnsins býðst að fá
lykil að kirkjunni og skoða hana, en
Saurbæjarkirkja er stærst torfkirkna
á Íslandi, byggð árið 1858 og enn eru
haldnar þar athafnir af og til.
„Eyjafjarðarsveit er ein
blóm legasta sveit landsins og
náttúrufegurðin er mikil svo
innarlega. Mér finnst því miður
að safnið hafi verið talað niður af
ýmsum aðilum og þess verði ekki
langt að bíða þar til enginn nenni
að keyra alla þessa leið til að skoða
það. Fleiri gestir kæmu ef það yrði
fært nær Akureyri. Í mínum huga er
þetta einstakt safn á einstökum stað
og við fáum á hverju ári fjöldann
allan af gestum á öllum aldri og allir
sjá eitthvað áhugavert. Við bjóðum
börnum upp á ratleik sem hefur notið
vinsælda og á kaffistofunni okkar
eru í boði ilmandi sveitavöfflur með
heimagerðum sultum og rjóma,“
segir Sigríður.
Boðið er upp á leiðsögn um safnið
fyrir þá sem kjósa og einnig er haldið
í ýmsar hefðir sem frá Sverri eru
komnar.
Orðsporið borist út
fyrir landsteinana
Orðspor safnsins hafi borist út fyrir
landsteinana, en þangað koma m.a.
nemendahópar frá Bandaríkjunum,
ferðamenn hvaðanæva að úr
heiminum sæki safnið heim og
tveir prófessorar séu að skrifa bók
um safnið. Það eru þeir Sigurjón B.
Hafsteinsson og John Bodinger De
Uriarte en sá síðarnefndi hefur skrifað
grein um safnið í virt safnatímarit.
Sigríður segir prófessorana skrifa
bókina m.a. út frá því að safnið sé
einstakt, bæði vegna þess að einn
maður stóð að söfnun muna þess á
70 ára tímabili og eins hversu fallega
Sverrir gekk frá öllum hlutum.
„Söfn landsins eru hluti af
menningararfi okkar, þau hafa mikið
aðdráttarafl fyrir bæði innlenda og
erlenda ferðamenn. Við lærum af
sögunni hvernig lífið var og hvað
undangengnar kynslóðir lögðu mikið
á sig til að komandi kynslóðir ættu
betra líf,“ segir Sigríður.
Sverrir Hermannsson tók þátt í endurbyggingu Saurbæjarkirkju, sem er ein
stærsta torfkirkja á Íslandi byggð árið 1858. Enn eru þar athafnir af og til.
Unnur Harðardóttir, hjúkrunarfræðingur á eftirlaunum, starfar á
Smámunasafninu í sumar.
Forláta búðarkassi er einn þeirra muna sem er til sýnis.
KLETTUR / SALA OG ÞJÓNUSTA / KLETTAGARÐAR 8-10
104 REYKJAVÍK / 590 5100 / klettur.is
ALLAR STÆRÐIR AF
AJ RAFSTÖÐVUM
Stöðvar í gám
Gerðu kröfur - hafðu samband við Karl
í síma 590 5125 og kynntu þér þína möguleika.
Við Norðurlandsveg - 560 VarmahlíðSími: 453 8888 - Opið virka daga kl. 9-17
Sendum
um land
allt!
Allt fyrir hænsnin
Hitalampar - Hitaperur - Ungafóður - Varpfóður
Hekla er lítil, létt, forvitin og athugul. Hennar
heimur er lífið og fólkið hennar á Egilsstöðum
og nágrenni.
Pabbi Heklu, þarf að ferðast mikið vegna
vinnunnar. Hans áhugi er að segja sögur, mæla
allt og skrá. Hekla elskar ekkert meira en að
ferðast með honum og skoða nýja staði. Enda
forvitin mjög.
Allt virðist vera eins og það á að vera í lífi sjö
ára stelpu. En fljótt skipast veður í lofti og saga
Heklu tekur óvænta stefnu sem engann getur
órað fyrir (þegar hún fýkur til Grænlands).
Líka til á dönsku – Framhald í vinnslu
Foreldrar - Hvetjum stráka og
stelpur til að lesa í sumarleyfinu