Bændablaðið - 21.07.2022, Side 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
LÍF&STARF
Brynjar með elstu dótturinni, Bóel Hildi, að skoða flugurnar. Myndir / Aðsendar
Atferli og atorka býflugnanna
kemur öllum á óvart
– Bændur á Gilhaga í Öxarfirði bjóða gestum að kynnast býflugnarækt
„Við höfum verið að fá þónokkuð
af gestum í sumar í býskoðun og í
gestastofu ullarvinnslunar,“ segir
Brynjar Þór Vigfússon á Gilhaga
í Öxarfirði.
Hann og Guðrún Lilja Dam
Guðrúnardóttir eru með fjölbreytta
starfsemi á Gilhaga, tæplega 100
kindur, nokkrar geitur, hænur og
endur, auk þess sem þau hjónin
stunda þar býflugnarækt. Þau settu
upp ullarvinnslu fyrir fáum árum og
framleiða garn sem nýtur vinsælda.
Einnig er á jörðinni stunduð
umfangsmikil skógrækt.
Býflugnarækt hefur verið
stunduð á Gilhaga frá árinu 2015
og segir Brynjar að þau hafi tekið
um 2,5 kíló af hunangi. Ekki
hafi þó náðst að safna hunangi
öll árin. „Býflugnarækt er mjög
erfið á norðurhjara og algjörlega
háð veðri og einnig innflutningi á
nýjum flugum ef búin drepast yfir
veturinn,“ segir hann. „Flugur geta
því verið að koma seint í júní og
eiga þá fullt í fangi með að safna
sér vetrarforða.“
Nú eru tvö bú á Gilhaga og einn
afleggjari gerður úr öðru búi sem
orðið var of stórt í júní, en verður
síðar að stóru búi. Í hverju búi eru
30 til 50 þúsund flugur.
„Gestir okkar hafa fæstir séð
þessa gerð af býflugum og halda
margir að um sé að ræða íslenskar
hunangsflugur. Atferli og atorka
þessara litlu flugna kemur öllum
á óvart. Fórnfýsin og verkefni
flugnanna, ásamt verkfræðinni í
kringum eitt bú, og niður í það
hversu mikilvæg hver og ein fluga
er í heildinni, er eitthvað sem allir
heillast að,“ segir Brynjar.
Vinna við flugurnar á
laugardögum
Þau Brynjar og Guðrún bjóða
gestum að líta við hjá sér á
laugardögum í sumar og kynnast
býflugnaræktinni. „Tíðin í sumar
hefur ekki verið sérlega heppileg
til býflugnaskoðunar alla laugardaga
og raunar má segja að veðrið hafi
oft sett strik í reikninginn varðandi
fluguveður,“ segir Brynjar.
Gestir hafa komið við á bænum
alla daga vikunnar og óskað eftir
býskoðun sem orðið er við, en hann
segir að reynt sé að beina fólki inn
á laugardaga þar sem þau séu þá að
vinna í flugunum.
„Við höfum eins og við best
getum kynnt fyrir okkar gestum
líffræði flugnanna og atferli og
reynt að sýna og útskýra starfsemi og
tilgang búsins og flugnanna,“ segir
Brynjar en flugurnar eru skoðaðar
úr öruggri fjarlægð. Hús sem þau
Brynjar og Guðrún smíðuðu utan
um býflugnabúin gera þeim kleift
að vinna í búunum hvernig svo sem
viðrar.
Gestavinnustofan vinsæll
áfangastaður
Gestastofan, sem rekin er samhliða
ullarvinnslunni, hefur einnig verið
vinsæll áfangastaður í sumar,
bæði meðal innlendra en einkum
erlendra ferðamanna sem gjarnan
vilja kaupa íslenskt ullarband og
kynnast íslensku sauðfé. Verslun
er á staðnum og hægt að versla t.d.
garn, en einnig kaffi eða tesopa
og taka ásamt öðru með sér inn í
skógræktina og njóta þar kyrrðar og
náttúru.
„Ullarvinnslan hefur gengið
vel og það er mikil aukning í
sölu á bandi, sérstaklega eftir að
Handprjónasamband Íslands gaf út
fallega peysuuppskrift sérstaklega
fyrir bandið okkar,“ segir Brynjar og
bætir við að ýmsir prjónahönnuðir
hafi einnig nýtt sér þeirra band í sína
hönnun. „Það er margt spennandi
komið á markað og annað á leiðinni,
þannig að allt lítur vel út.“
bondi@byko.is
Stöðluð stálgrindarhús
Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m²
Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er
sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin
standast mestu snjó-og vindálagskröfur
sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta
því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum
landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR
yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á
þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar.
Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar
til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum
af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir
keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir.
Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa
inn birtu.
á hagstæðu verði
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Brynjar Þór og Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir starfrækja ullarvinnslu og
býflugnarækt sem gestum býðst að skoða á laugardögum í sumar.
Býflugnarækt hefur verið stunduð á Gilhaga frá árinu 2015. Tvö bú eru þar
auk afleggjara úr öðru sem var orðið of stórt fyrr í sumar. Í hverju búi eru
30 til 50 þúsund flugur.
Horft heim að býskálanum á Gilhaga.
Séð yfir bæjarstæði Gilhaga í Öxarfirði.