Bændablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 21.07.2022, Blaðsíða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022 LÍF&STARF Brynjar með elstu dótturinni, Bóel Hildi, að skoða flugurnar. Myndir / Aðsendar Atferli og atorka býflugnanna kemur öllum á óvart – Bændur á Gilhaga í Öxarfirði bjóða gestum að kynnast býflugnarækt „Við höfum verið að fá þónokkuð af gestum í sumar í býskoðun og í gestastofu ullarvinnslunar,“ segir Brynjar Þór Vigfússon á Gilhaga í Öxarfirði. Hann og Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir eru með fjölbreytta starfsemi á Gilhaga, tæplega 100 kindur, nokkrar geitur, hænur og endur, auk þess sem þau hjónin stunda þar býflugnarækt. Þau settu upp ullarvinnslu fyrir fáum árum og framleiða garn sem nýtur vinsælda. Einnig er á jörðinni stunduð umfangsmikil skógrækt. Býflugnarækt hefur verið stunduð á Gilhaga frá árinu 2015 og segir Brynjar að þau hafi tekið um 2,5 kíló af hunangi. Ekki hafi þó náðst að safna hunangi öll árin. „Býflugnarækt er mjög erfið á norðurhjara og algjörlega háð veðri og einnig innflutningi á nýjum flugum ef búin drepast yfir veturinn,“ segir hann. „Flugur geta því verið að koma seint í júní og eiga þá fullt í fangi með að safna sér vetrarforða.“ Nú eru tvö bú á Gilhaga og einn afleggjari gerður úr öðru búi sem orðið var of stórt í júní, en verður síðar að stóru búi. Í hverju búi eru 30 til 50 þúsund flugur. „Gestir okkar hafa fæstir séð þessa gerð af býflugum og halda margir að um sé að ræða íslenskar hunangsflugur. Atferli og atorka þessara litlu flugna kemur öllum á óvart. Fórnfýsin og verkefni flugnanna, ásamt verkfræðinni í kringum eitt bú, og niður í það hversu mikilvæg hver og ein fluga er í heildinni, er eitthvað sem allir heillast að,“ segir Brynjar. Vinna við flugurnar á laugardögum Þau Brynjar og Guðrún bjóða gestum að líta við hjá sér á laugardögum í sumar og kynnast býflugnaræktinni. „Tíðin í sumar hefur ekki verið sérlega heppileg til býflugnaskoðunar alla laugardaga og raunar má segja að veðrið hafi oft sett strik í reikninginn varðandi fluguveður,“ segir Brynjar. Gestir hafa komið við á bænum alla daga vikunnar og óskað eftir býskoðun sem orðið er við, en hann segir að reynt sé að beina fólki inn á laugardaga þar sem þau séu þá að vinna í flugunum. „Við höfum eins og við best getum kynnt fyrir okkar gestum líffræði flugnanna og atferli og reynt að sýna og útskýra starfsemi og tilgang búsins og flugnanna,“ segir Brynjar en flugurnar eru skoðaðar úr öruggri fjarlægð. Hús sem þau Brynjar og Guðrún smíðuðu utan um býflugnabúin gera þeim kleift að vinna í búunum hvernig svo sem viðrar. Gestavinnustofan vinsæll áfangastaður Gestastofan, sem rekin er samhliða ullarvinnslunni, hefur einnig verið vinsæll áfangastaður í sumar, bæði meðal innlendra en einkum erlendra ferðamanna sem gjarnan vilja kaupa íslenskt ullarband og kynnast íslensku sauðfé. Verslun er á staðnum og hægt að versla t.d. garn, en einnig kaffi eða tesopa og taka ásamt öðru með sér inn í skógræktina og njóta þar kyrrðar og náttúru. „Ullarvinnslan hefur gengið vel og það er mikil aukning í sölu á bandi, sérstaklega eftir að Handprjónasamband Íslands gaf út fallega peysuuppskrift sérstaklega fyrir bandið okkar,“ segir Brynjar og bætir við að ýmsir prjónahönnuðir hafi einnig nýtt sér þeirra band í sína hönnun. „Það er margt spennandi komið á markað og annað á leiðinni, þannig að allt lítur vel út.“ bondi@byko.is Stöðluð stálgrindarhús Stærðir: 80m², 150m², 250m² og 350m² Stálgrindin er heitgalvaniseruð og er sérsmíðuð fyrir íslenskar aðstæður. Húsin standast mestu snjó-og vindálagskröfur sem gerðar eru í byggð á Íslandi og henta því sem geymslu-og vélaskemmur í öllum landshlutum. Húsin eru klædd 60mm PIR yleiningum á veggi og 80/125mm yleiningum á þök. Mögulegt er að velja liti á klæðningarnar. Húsunum fylgja allar nauðsynlegar teikningar til að fá byggingarleyfi ásamt teikningum af grunni og vinnuteikningum. Einnig fylgir keyrsluhurð, einn gluggi og tvær gönguhurðir. Reyklosunargluggar eru á þaki sem hleypa inn birtu. á hagstæðu verði Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is Brynjar Þór og Guðrún Lilja Dam Guðrúnardóttir starfrækja ullarvinnslu og býflugnarækt sem gestum býðst að skoða á laugardögum í sumar. Býflugnarækt hefur verið stunduð á Gilhaga frá árinu 2015. Tvö bú eru þar auk afleggjara úr öðru sem var orðið of stórt fyrr í sumar. Í hverju búi eru 30 til 50 þúsund flugur. Horft heim að býskálanum á Gilhaga. Séð yfir bæjarstæði Gilhaga í Öxarfirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.