Bændablaðið - 21.07.2022, Qupperneq 41
41Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Vonarlands á Egilsstöðum, til styrktar
Fræðsluskrifstofu Austurlands,
Minjasafns Austur lands ,
stofnaði styrktarsjóð fyrir
Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað,
stofnaði heilbrigðismálasjóð til
styrktar sjúkrahúsinu á Egilsstöðum,
stofnaði styrktarsjóð Eiðaskóla og
lagði sitt af mörkum við stofnun
Kirkjumiðstöðvarinnar á Eiðum svo
eitthvað sé nefnt.
Á 60 ára afmæli SAK 1987 var
ákveðið að standa fyrir samkeppni
um merki félagsins og var tillaga
Sifjar Vígþórsdóttur samþykkt.
Merkið var svo vígt á Landsþingi
Kvenfélagasambands Íslands sem
haldið var á Egilsstöðum 1987. Í ár,
á 95 ára afmæli SAK, verða gerðir
borðfánar með merki félagsins og þeir
vígðir við hátíðlega athöfn á aðalfundi
félagsins 22. október nk. í Tungubúð
hjá Kvenfélagi Hróarstungu, þar sem
forseti Kvenfélagasambands Íslands,
Dagmar Elín Sigurðardóttir, heiðrar
okkur með nærveru sinni.
Hornsteinar framfara
Kvenfélög nútímans eru hornsteinar
framfara í hverjum landshluta fyrir
sig. Öll kvenfélög hafa það að
markmiði að efla samfélag sitt og
sínar félagskonur.
Orð Sigrúnar Blöndal frá fyrstu
árum Sambands austfirskra kvenna
eru enn þá í fullu gildi og hvetja
okkur kvenfélagskonur til dáða,
en hún sagði „félagsstarfið eflir
félagsandann, kennir okkur að sjá
störf okkar í nýju ljósi, hvers við
erum megnugar og ekki síst, að
beina störfum okkar í þann farveg
að heildin njóti góðs af“. Látum þetta
leiðarljós lýsa okkur áfram veginn,
austfirskum kvenfélagskonum og
austfirsku samfélagi til heilla.
Í tilefni af 95 ára afmælinu stendur
SAK fyrir námskeiðahaldi í samstarfi
við Hallormsstaðarskóla nú í haust.
Boðið verður upp á tvö námskeið;
annars vegar í jurtalitun 3. september
og fatasaumi 10. september nk. Þá er
einnig stefnt á formannafund SAK
síðla sumars í ár.
Um leið og ég óska okkur öllum
innilega til hamingju með árin 95
fylgja hér myndir frá nokkrum
aðildarfélögum SAK.
Helga Magnea Steinsson,
formaður SAK.
Kvenfélagið Bláklukka á Egilsstöðum var stofnað 27. febrúar 1948. Hér eru
kvenfélagskonur að sjá um sumargleði eldri borgara á Héraði sumardaginn
fyrsta 2022. Kvenfélag Eiðaþinghár tók að þessu sinni þátt í gleðinni með
kvenfélagi Bláklukku.
Kvenfélagskonur í Breiðdal á góðri stund.
Kvenfélagið Hlíf var stofnað 18. júlí 1961 að Heydölum í Breiðdal.
Sumarsmellur
Stiga Combi 748 S
• Heimilissláttuvél með 140cc mótor
• Notendavæn drifvél
• Einstök vél
Verð kr. 125.000 m/vsk.
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
40 ár á Íslandi
REKI EHF ER STOLTUR UMBOÐSAÐILI DONALDSON
Á ÍSLANDI. EIGUM MIKIÐ ÚRVAL AF SÍUM Á LAGER.
Skemmuvegur 46
Sími: 562 2950 www.reki.is
200 KópavogurReki ehf
Netfang: elfar@reki.is, kris tinn@reki.is, tryggvi@reki.is