Bændablaðið - 21.07.2022, Side 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Vinsamlega hafið samband við Björgvin Guðjónsson, búfræðing
og löggiltan fasteignasala í síma 510-3500 og 615-1020
eða á netfangið bjorgvin@eignatorg.is
Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Vegna aukinnar eftirspurnar óskum
við eftir bújörðum á söluskrá
Vetrarsól er umboðsaðili
Sláttuvélar
& sláttuorf
Snjóblásarar
Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is
Gulltryggð gæði
40 ár
á Íslandi
Sláttutraktorar
Jarðræktarstyrkir í garðyrkju
Matvælaráðuneytið vekur athygli á að opnað hefur verið fyrir rafrænar umsóknir um
jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna útiræktunar á grænmeti, kartöflum og garðávöxtum til
manneldis. Gert er ráð fyrir sérstakri álagsgreiðslu á jarðræktarstyrki í garðyrkju vegna alvarlegrar
stöðu í matvælaframleiðslu á Íslandi. Greiðslan verður reiknuð á grunni hefðbundinna umsókna.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en á miðnætti 15. ágúst 2022 á afurd.is.
Til að geta sent inn umsókn í Afurð þarf að liggja fyrir skýrsla í forritinu Jörð. Vakin er sérstök athygli á
að hægt er að skila skýrslu í Jörð án þess að endanleg uppskera ársins liggi fyrir. Skilyrði fyrir veitingu
stuðnings eru skil á skýrsluhaldi í Jörð og fullnægjandi túnkort af ræktunarspildu sem sótt er um styrk fyrir.
Þá er lögð áhersla á skráningu ræktunar, áburðargjafar, varnarefnanotkunar o.fl., í samræmi við ákvæði
reglugerðar um stuðning við garðyrkju nr. 1273/2020. Framlag á hvern hektara (ha) fyrir hvert bú, tekur
mið af heildarfjölda hektara sem sótt er um.
Fjöldi hektara sem sótt er um reiknast í samræmi við eftirfarandi stuðla:
Fjöldi ha sem sótt er um Stuðull fyrir umsótta ha
1-30 ha 1,0 fyrir rótarafurðir
1-30 ha 4,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar
> 30 ha 0,7 fyrir rótararfurðir
> 30 ha 3,0 fyrir afurðir ræktaðar ofanjarðar
Stjórnarráð Íslands
Matvælaráðuneytið
Nielsen og Betinu B. Tvistholm
var einkar áhugavert en það
fjallaði um smitvarnir á kúabúum
og mikilvægi þess að bændur taki
þau mál föstum tökum. Þær stöllur
stóðu að rannsókn á stöðu smitvarna
á dönskum kúabúum og komust m.a.
að því að bændur eru almennt mjög
meðvitaðir um mikilvægi smitvarna
en oft reynist þó erfitt í reynd að vera
með öflugar smitvarnir.
Þannig reynist t.d. mörgum
bændum erfitt að hindra smit á
milli dýra og vex sú áskorun með
auknum fjölda gripa. Þannig eru
t.d. 12 mögulegar beinar smitleiðir
á milli fjögurra dýra en séu þau 30
eru beinu smitleiðirnar 870!
Vinnuföt fyrir alla
Eitt af því sem þær töldu mikilvægast
var að bændur tryggi að allir sem
vinna við gripina, hvort heldur sem
það eru heimamenn eða aðkomufólk
svo sem dýralæknar, frjótæknar eða
ráðunautar, noti einungis vinnuföt
viðkomandi kúabús. Sé svo gert
dregur það verulega úr líkum á því
að smit berist í gripina. Þá nefndu
þær einnig að mikilvægt væri að
búið sé svo um hlutina að þeir, sem
fara á milli búa eins og t.d. bílstjórar
slátur-, mjólkur- eða fóðurbíla, geti
athafnað sig án þess að hætta sé á því
að þeir beri með sér smit á milli búa.
Ofnotkun lyfja
Ofnotkun lyfja á kúabúm er vandamál
víða um heim og fjallaði einmitt eitt
erindið, flutt af Volkar Krömker frá
háskólanum í Kaupmannahöfn,
um það hvernig draga megi úr
lyfjanotkun á kúabúum. Mest notkun
lyfja er tengd meðhöndlun gegn
júgurbólgu en reynslan sýnir þó að
oft er verið að setja lyf í kýr sem í
raun geta læknað sig sjálfar og án
aðkomu lyfja!
Þá gerist það einnig of oft að
reynt er of mikið eða lengi að slást
við þráláta júgurbólgu þegar besta
leiðin í raun væri að slátra kúnni
í staðinn fyrir að meðhöndla hana
fyrst með heilmiklum lyfjakúr.
Auðveldara sagt en gert, en hvernig
má þá ná árangri? Volkar nefndi
m.a. að kýr, sem hafa fengið tvisvar
sinnum sýnilega júgurbólgu og með
kýrsýni þrisvar í röð sem er hærra
en 700.000 frumur/ml eigi að senda
beint í sláturhús! Þessar kýr væru
með svo þráláta sýkingu að meira
að segja löng geldstaða, ásamt
geldstöðumeðhöndlun, gerði lítið
sem ekkert fyrir þær.
Innri smitvarnir besta leiðin
Volker benti á að til þess að ná
árangri í því að draga úr notkun
lyfja þá þyrfti fyrst að stíga rétt skref
innan búsins. Þessi skref væru að
draga úr líkum á smiti s.s. með því
að halda kúnum tandurhreinum með
því að veita þeim aðgengi að þurru
legusvæði og hreinum gangsvæðum.
Þá þyrfti að halda júgri og spenum
hreinum fyrir og við mjaltir auk þess
að hreinsa mjaltabúnað vel milli
mjalta einstakra kúa svo bakteríur
geti ekki borist á milli spena ólíkra
kúa með mjaltatækjunum.
Greina sýkla fyrir meðhöndlun
Síðasta atriðið sem Volker nefndi var
að aldrei ætti að meðhöndla sýkingu
nema það liggi fyrir hvaða bakteríur
eru að valda henni. Reynslan sýni að
mótstöðukerfi kúa getur ráðið við
margs konar sýkingar án hjálpar frá
lyfjum og að til væru í dag ýmsar
aðferðir sem nota má til þess að gera
einfaldar bakteríugreiningar heima
á kúabúunum sjálfum.
Þannig geti bændurnir ræktað
upp sýni, frá sýktum kirtli, með
einföldum og ódýrum hætti og
komist þannig skjótt að því hvort
ástæða sé til þess að meðhöndla með
lyfjum eða ekki. Sneggstu prófin á
markaðinum taka ekki nema 12 tíma
að skila niðurstöðum og þegar þær
liggja fyrir, megi kalla til dýralækni
sé þörf á því. Þess ber þó að geta að
sé sýkingin að valda sársauka þarf
auðvitað að meðhöndla kúna með
verkjastillandi lyfjum óháð því hvort
sýkingarvaldinn þurfi að meðhöndla
með öðrum lyfjum eða ekki.
Líkt og fyrr segir hefur í þeim
þremur greinum, sem hafa fjallað
um þetta danska Fagþing, einungis
verið gripið niður í nokkur af þeim 70
erindum sem voru flutt og því af mun
meiru að taka. Öll erindin er hægt
er að skoða og hlaða niður með því
að nota eftirfarandi hlekk: https://
www.tilmeld.dk/kvaegkongres2022/
praesentationer.
Í dag geta bændur keypt margs konar einföld heimapróf til þess að greina smitvalda í kýrsýnum.
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrindahús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Víkurhvarf 5
Vagnar og stálgrind hús
frá WECKMAN Steel
STÁLGRINDAHÚS
Fjöldi stærða og gerða í boði
Stærð palls 2,55 x 8,60 m
Verð kr. 1.890.000,- með virðisaukaskatti
Weckman flatvagnar
/ löndunarvagnar
RÚLLUVAGNAR –
LÖNDUNARVAGNAR
Stærð palls 2,55 x 9,0m
Vagnar 6,5 - 17 tonn.
Verðdæmi:
8 tonn kr. 1.250.000,- með virðisaukaskatti.
12 tonn kr. 1.590.000,- með virðisaukaskatti.
STURTUVAGNAR
Burðargeta 6,5 – 17 tonn
þak og veggstál
galvaniserað og litað
Bárað•
Kantað•
Stallað•
Fjöldi lita í boði
Víkurhvarfi 5 • Kópavogi • Sími 588 1130
hhaukssonehf@simnet.is
Víkurhvarf 5
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
2
Ögurhva fi 8
7-18 tonn