Bændablaðið - 21.07.2022, Page 49

Bændablaðið - 21.07.2022, Page 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022 Miðstærð 100gr tvinnað ullar band frá Fjárhúsloftinu. prjónastærð nr. 2,5 Stroff: Fitjið upp 56L(lykkjur) og deilið á 4 prjóna (14L á prjón). Prjónið 2sl(slétt) og 2br(brugðið) lykkjur þar til stroffið mælist 7 cm. Belgur: Til að fá góða vídd í belginn þarf að taka upp lykkju á milli brugnu lykkjana og er hún prjónuð slétt. Útaukning: Prjónið áfram stroff en aukið út um 14L í fyrstu umferð á eftirfarandi hátt: prjónið *2L sl – 1L br -1L sl tekinn upp – 1L br * endurtakið út hringinn. Nú eru lykkjurnar orðnar 70. Nú er belgur prjónaður *2sl – 1br – 1sl- 1br* Þar til belgur mælist frá stroffi 6 cm. Nú er band prjónað í fyrir þumli það er gert svona: fyrstu tvær L á hægri lófa eru prjónaðar sléttar síðan eru næstu 10L prjónaðar með auka bandi (síðustu 12L á vinstri lófa 10L settar á band síðustu tvær prjónaðar samkvæmt munstri). Haldið er áfram að prjóna belginn þar til hann mælist 9 cm frá stroffi. Þá eru teknar frá síðustu 7L af á 2.prjóni og fyrstu 8L af 3. Prjónið alls 15 lykkjur fyrir litlafingur sem eru prjónaðar sér. Setjið lykkjurnar á nælu og geymið á meðan lokið er við belginn. Prjónið áfram þar til belgur mælist 15 cm frá stroffi. Úrtaka (bandúrtaka): 1.prjónn: prjónið 1L sl. Takið 1L óprjónaða prjónið næstu L sl dragið óprjónuðu L yfir hina, prjónið hinar L samkvæmt munstri. 2.prjónn: prjónið þar til 3L eru eftir, þá eru 2Lprjónaðar slétt saman svo 1L slétt. 3.prjónn: eins og fyrsti prjónn. 4.prjónn: eins og annar prjónn. 2. umferð: prjónið samkvæmt munstri (engin úrtaka). ATH. Allar lykkjur í úrtöku eru prjónaðar slétt. 3.umferð: takið úr eins og í 1. Umferð 4. umferð: án úrtöku. 5. umferð og allar hinar: takið úr í hverri umferð þar til 7L eru eftir. Jafnið lykkjurnar á milli prjóna eftir því sem þeim fækkar. Þumall og litlifingur eru prjónaðir slétt. Þumall: rekið þumalbandið úr og takið upp lykkjurnar. Takið einnig 2-3 lykkjur upp í hvoru viki. Deilið lykkjunum á 3 prjóna. Prjónið L saman í vikum í fyrstu umferð svo alls verði 22L í þumlinum. Prjónið slétt 20 - 22 umf. Prjónið saman fyrstu 2L á prjóni þar til eftir eru 4-6L. Litlifingur: setjið lykkjurnar af nælunni á þrjá prjóna og takið upp 4L í greipinni á milli fingurs og belgs alls 19L prjónið saman lykkjur á millu fingurs og belgs svo alls verði 17L í litlafingri. Prjónið slétt 18 - 20 umf. Takið úr eins og á þumli. Frágangur: Klippið frá, dragið bandið í gegn og gangið frá endum. ©Jónína Þórðardóttir, 2020 HANNYRÐAHORNIÐ Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Ingunn Bára afmælisstúlka! FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ Nafn: Ingunn Bára Ólafsdóttir Aldur: 5 ára. Stjörnumerki: Ljón. Búseta: Urriðaá í Miðfirði. Leikskóli Ásgarður á Hvammstanga. Skemmtilegast: Leika við vini mína og hjálpa mömmu og pabba í fjárhúsunum. Uppáhaldsdýr: Kindur. Uppáhaldsmatur: Píta með buffi. Uppáhaldslag: Sumarástin úr söngleiknum Grease. Æfir þú íþróttir eða spilar á hljóðfæri: Nei. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór: Læknir. Hvað ætlar þú að gera í sumar: Leika við bróður minn, fara í útilegu og halda upp á afmælið mitt. Áttu systkini: Já, einn bróður. SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins Þung Þyngst Létt Miðlungs Taumvettlingar Á Lækjarbotnum í Rangár ingi Ytra er opin vinnustofa og bú . ar er hægt a fá ullarvörur unnar úr ull af okkur fé: hnakkdýnur, kerrupokar, rei taumar, ullarband o.fl. Jónína ór ardóttir, Lækjarbotnar, sími 848 2484, fb: Fjárhúslofti Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns Íslands hefur þjóðin staðið í prjónaskap að minnsta kosti síðan á 16. öld. Að langmestu þá úr spunnu ullarbandi í stað lopans sem við þekkjum nú og voru nokkurra ára gömul börn fljótlega vanin við prjónana. Þessi iðja þótti ekki síður karlmannsverk en verk kvenna og var gjarnan setið við prjónaskap að kvöldlagi hér áður fyrr undir húslestrinum. Vettlingar voru vinsælt prjónles en þeir hafa alla tíð verið mesta þarfaþing og voru auðveldir að gerð. Karlmenn prjónuðu sér ef til vill tvíbanda, tvíþumla vettlinga ef farið var á sjóinn eða stöguðu og bættu þá gömlu sem enn héngu saman á meðan stúlkunum þótti gaman að útbúa ísaumaða rósavettlinga eins og kallaðist. Þeir voru upp á punt, gjarnan sléttprjónaðir úr einlitu ullarbandi með skrautlegum útsaumi kölluðum fléttusaumi. Ingunn Bára er hress og kát stúlka sem býr á bænum Urriðaá í Miðfirði. Hún á bráðum fimm ára afmæli, þann 23. júlí, og við sendum henni hamingjuóskir í tilefni dagsins! Á myndinni hér að ofan er hún með bróður sínum, honum Einþóri Loga, sem verður þriggja ára í október.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.