Bændablaðið - 21.07.2022, Qupperneq 49
49 Bændablaðið | Fimmtudagur 21. júlí 2022
Miðstærð
100gr tvinnað ullar band frá Fjárhúsloftinu.
prjónastærð nr. 2,5
Stroff: Fitjið upp 56L(lykkjur) og deilið á 4 prjóna (14L á prjón). Prjónið 2sl(slétt)
og 2br(brugðið) lykkjur þar til stroffið mælist 7 cm.
Belgur: Til að fá góða vídd í belginn þarf að taka upp lykkju á milli brugnu
lykkjana og er hún prjónuð slétt.
Útaukning: Prjónið áfram stroff en aukið út um 14L í fyrstu umferð á eftirfarandi
hátt:
prjónið *2L sl – 1L br -1L sl tekinn upp – 1L br * endurtakið út hringinn.
Nú eru lykkjurnar orðnar 70. Nú er belgur prjónaður *2sl – 1br – 1sl- 1br*
Þar til belgur mælist frá stroffi 6 cm.
Nú er band prjónað í fyrir þumli það er gert svona: fyrstu tvær L á hægri lófa eru
prjónaðar sléttar síðan eru næstu 10L prjónaðar með auka bandi (síðustu 12L á
vinstri lófa 10L settar á band síðustu tvær prjónaðar samkvæmt munstri). Haldið
er áfram að prjóna belginn þar til hann mælist 9 cm frá stroffi.
Þá eru teknar frá síðustu 7L af á 2.prjóni og fyrstu 8L af 3. Prjónið alls 15 lykkjur
fyrir litlafingur sem eru prjónaðar sér. Setjið lykkjurnar á nælu og geymið á meðan
lokið er við belginn. Prjónið áfram þar til belgur mælist 15 cm frá stroffi.
Úrtaka (bandúrtaka):
1.prjónn: prjónið 1L sl. Takið 1L óprjónaða prjónið næstu L sl dragið óprjónuðu L
yfir hina, prjónið hinar L samkvæmt munstri.
2.prjónn: prjónið þar til 3L eru eftir, þá eru 2Lprjónaðar slétt saman svo 1L slétt.
3.prjónn: eins og fyrsti prjónn.
4.prjónn: eins og annar prjónn.
2. umferð: prjónið samkvæmt munstri (engin úrtaka).
ATH. Allar lykkjur í úrtöku eru prjónaðar slétt.
3.umferð: takið úr eins og í 1. Umferð
4. umferð: án úrtöku.
5. umferð og allar hinar: takið úr í hverri umferð þar til 7L eru eftir.
Jafnið lykkjurnar á milli prjóna eftir því sem þeim fækkar. Þumall og litlifingur
eru prjónaðir slétt.
Þumall: rekið þumalbandið úr og takið upp lykkjurnar. Takið einnig 2-3 lykkjur
upp í hvoru viki.
Deilið lykkjunum á 3 prjóna. Prjónið L saman í vikum í fyrstu umferð svo alls
verði 22L í þumlinum. Prjónið slétt 20 - 22 umf. Prjónið saman fyrstu 2L á prjóni
þar til eftir eru 4-6L.
Litlifingur: setjið lykkjurnar af nælunni á þrjá prjóna og takið upp 4L í greipinni
á milli fingurs og belgs alls 19L prjónið saman lykkjur á millu fingurs og belgs
svo alls verði 17L í litlafingri. Prjónið slétt 18 - 20 umf. Takið úr eins og á þumli.
Frágangur: Klippið frá, dragið bandið í gegn og gangið frá endum.
©Jónína Þórðardóttir, 2020
HANNYRÐAHORNIÐ
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Ingunn Bára afmælisstúlka!
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Nafn: Ingunn Bára Ólafsdóttir
Aldur: 5 ára.
Stjörnumerki: Ljón.
Búseta: Urriðaá í Miðfirði.
Leikskóli Ásgarður á Hvammstanga.
Skemmtilegast: Leika við vini
mína og hjálpa mömmu og pabba í
fjárhúsunum.
Uppáhaldsdýr: Kindur.
Uppáhaldsmatur: Píta með buffi.
Uppáhaldslag: Sumarástin úr
söngleiknum Grease.
Æfir þú íþróttir eða spilar á
hljóðfæri: Nei.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór: Læknir.
Hvað ætlar þú að gera í sumar:
Leika við bróður minn, fara í útilegu
og halda upp á afmælið mitt.
Áttu systkini: Já, einn bróður.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins
Þung Þyngst
Létt Miðlungs
Taumvettlingar
Á Lækjarbotnum í Rangár ingi Ytra er opin vinnustofa og bú .
ar er hægt a fá ullarvörur unnar úr ull af okkur fé: hnakkdýnur,
kerrupokar, rei taumar, ullarband o.fl.
Jónína ór ardóttir, Lækjarbotnar, sími 848 2484, fb: Fjárhúslofti
Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðháttadeild
Þjóðminjasafns Íslands hefur þjóðin staðið í
prjónaskap að minnsta kosti síðan á 16. öld. Að
langmestu þá úr spunnu ullarbandi í stað lopans
sem við þekkjum nú og voru nokkurra ára gömul
börn fljótlega vanin við prjónana. Þessi iðja þótti
ekki síður karlmannsverk en verk kvenna og var
gjarnan setið við prjónaskap að kvöldlagi hér áður
fyrr undir húslestrinum.
Vettlingar voru vinsælt prjónles en þeir hafa alla tíð
verið mesta þarfaþing og voru auðveldir að gerð.
Karlmenn prjónuðu sér ef til vill tvíbanda, tvíþumla
vettlinga ef farið var á sjóinn eða stöguðu og bættu
þá gömlu sem enn héngu saman á meðan stúlkunum
þótti gaman að útbúa ísaumaða rósavettlinga
eins og kallaðist. Þeir voru upp á punt, gjarnan
sléttprjónaðir úr einlitu ullarbandi með skrautlegum
útsaumi kölluðum fléttusaumi.
Ingunn Bára er hress og kát stúlka sem býr á bænum Urriðaá í Miðfirði.
Hún á bráðum fimm ára afmæli, þann 23. júlí, og við sendum henni
hamingjuóskir í tilefni dagsins! Á myndinni hér að ofan er hún með bróður
sínum, honum Einþóri Loga, sem verður þriggja ára í október.