Fréttablaðið - 22.10.2022, Blaðsíða 39
Umsóknum skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá, auk
kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar
og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Umsóknarfrestur er til 31. október nk.
Starfshlutfall er 100%.
Vakin er athygli á stefnu Sveitarfélagsins Árborgar að
jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá sveitarfélaginu og að
vinnustaðir endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Nánari upplýsingar veita Fjóla S. Kristinsdóttur bæjarstjóri,
fjolask@arborg.is, eða í síma 480-1900, og Geirlaug
Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is, eða í síma 520-4700.
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs
Sveitarfélagið Árborg auglýsir eftir metnaðarfullum einstaklingi
til að taka að sér starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Sviðsstjóri veitir fjölskyldusviði faglega og stjórnunarlega
forystu og starfar í samræmi við stefnu sveitarfélagsins og
lög og reglugerðir er varða starfsemina. Sviðsstjóri er leiðandi
og mótandi í starfi sínu og hefur frumkvæði af umbóta- og
þróunarstarfi innan sviðsins Sviðsstjóri er stjórnendum til
ráðgjafar og stuðnings og hefur yfirumsjón með faglegu
starfi og rekstri fjölskyldusviðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Ábyrgð á stjórnun og rekstri fjölskyldusviðs
• Faglegur leiðtogi stjórnenda á fjölskyldusviði
• Ábyrgð á starfs- og fjárhagsáætlunum á fagsviðinu
• Yfirumsjón og eftirlit með faglegu starfi á sviðinu og
samræmingu milli deilda
• Samskipti við bæjarstjórn, stoðþjónustudeildir, nefndir
og hagsmunaaðila
• Þátttaka í stefnumótun og nýsköpunarverkefnum þvert á fagsvið
sveitarfélagsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólapróf sem nýtist í starfi
• Meistaragráða sem tengist starfsvettvangi sviðsins eða á sviði
reksturs eða stjórnunar er skilyrði
• Að minnsta kosti fimm ára farsæl rekstrar- og stjórnunarreynsla
er skilyrði
• Leiðtoga-, samstarfs- og samskiptahæfni
• Metnaður til að ná árangri í starfinu
hagvangur.is
Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 11 þúsund manns og
er lögð áhersla á öflugt skólastarf og góða frístunda- og
velferðarþjónustu. Á fjölskyldusviði starfa um 800 manns
á um 30 vinnustöðum víðs vegar um sveitarfélagið.
Á sviðinu eru starfræktir fjórir grunnskólar, sex leikskólar, átta
frístundaheimili fyrir börn og ungmenni, tvær dagdvalir fyrir
aldraða, þrjú búsetuúrræði ásamt skammtímadvöl fyrir börn,
vinnu- og hæfingarstöð fyrir fatlaða, tvær sundlaugar ásamt
íþróttahúsum, skólaþjónustu og félagsþjónustu.
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með 1. nóvember nk.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is.
Bílaumboðið Askja leitar að sölustjóra fyrir Mercedes-Benz sendibíla sem og
smærri hópferðabíla. Leitað er að kraftmiklum leiðtoga til að stýra daglegri
starfsemi deildarinnar. Sölustjóri hefur yfirumsjón með samskiptum við
lykilviðskiptavini, ber ábyrgð á allri sölu deildarinnar ásamt almennum rekstri
og áætlanagerð. Sölustjóri ber ábyrgð á samskiptum við framleiðanda en
Mercedes-Benz er einn öflugasti bílaframleiðandi heims.
Við viljum öflugan liðsmann með brennandi áhuga á bílum til að taka þátt í
spennandi starfi með öflugu fólki í hröðu og söludrifnu umhverfi, þar sem
orkuskipti eru meðal annars að eiga sér stað.
Sölustjóri sendibíla
hagvangur.is
Sótt er um starfið
á hagvangur.is
Askja er sölu- og þjónustuumboð fyrir Mercedes-
Benz, Kia og Honda. Markmið fyrirtækisins er að
vera leiðandi í þjónustu til viðskiptavina og skapa
starfsumhverfi sem byggir á metnaði, fagmennsku,
heiðarleika og gleði. Askja er í fremstu röð þegar
kemur að framboði raf- og tengiltvinnbifreiða.