Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Síða 13

Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Síða 13
Skýringin var sú aö Pharmaco hf. og Novo höfðu fengið ofangreindar fenoximetýlpenicil1intöflur skráðar hér á landi sem sérlyf undir heitinu Fenoxcillin á um það bil þreföldu því verði sem áður gilti. Forráðamönnum Lyfjaverslunarinnar þótti einkennilegt að Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið skyldi heimila slíka verðhækkun og sóttu um leyfi til þess að mega halda áfram innflutningi mun ódýrari taflna sem nú voru fluttar inn frá Finnlandi, á sama hátt og áður. Ráðuneytið hafnaði þeirri beiðni. Til þess að fá að flytja ódýrara lyfið inn hefði Lyfjaverslun ríkisins þurft að fá það skráð hérlendis sem sérlyf, en það tekur um það bil 2 ár. Auk þess hefði hún þurft að gerast umboðsaðili fyrir erlenda framleiðandann, en slíkt hefur hún ekki gert, þar sem umboðsmennska felur jafnframt I sér skuldbindingu til þess að gæta fyrst og fremst hagsmuna hins erlenda umbjóðanda sem reikna má með að stangist oft á við hagsmuni Islenska ríkisins. Auk þess má benda á, að áður en erlendi framleiðandinn myndi sækja um skráningu á sínu lyfi myndi hann kanna verð á tilsvarandi lyfjum, sem þegar væru skráð hér á landi og að öllum líkindum hækka verðið á sínu lyfi til samræmisl Skráningarkerfi sérlyfja kom hér í veg fyrir að ódýrara lyf kæmist inn á markaðinn. Skráningarkerfið: Skráningarkerfi er nauðsynlegt til þess að tryggja gæði lyfja sem flutt eru til landsins og eins til þess að tryggja að ekki sé hellt inn á markaðinn ýmsum vafasömum lyfjum sem enginn hefur not fyrir. Reglur þessar eru þó of strangar þvi að eftirlit með lyfjaframleiðslu er nú orðið allt annað og strangara en áður. T.d. bendir allt til þess að gæði lyfja sem framleidd eru í þeim löndum sem Island hefur gert milliríkjasamning við um gagnkvæma viðurkenningu á lyfjaeftirliti séu fullnægjandi enda farið eftir sömu stöðlum og sama lyfjaeftirliti, hvort sem viðkomandi lyf eru skráð á Islandi eða ekki. Skráningarreglum þarf að breyta í þá veru að 11

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.