Heilbrigðisskýrslur - 05.12.1988, Blaðsíða 15
3.
Innlendutn f ramleiðendum sem sækja um aö skrá lyf á
sérlyfjaskrá, skal gert að rökstyðja verðlagningu með því
að leggja fram reikninga, sem sanna kostnaðarverðið, en
ekki lengur látið nægja til samþykktar á verðlagningu, að
hærra verð finnist á tilsvarandi skráðu lyfi hér á landi
eða hinum Norðurlöndunum.
Þá er og æskilegt að teknar verði upp millifærslur frá
stærstu apótekunum til hinna minnstu til þess að jafna
afkomu lyfjabúða.
5. Efla þarf Lyfjaverslun rikisins sem býr yfir aðstöðu bæði
til innflutnings og framleiðslu lyfja af flestum
lyfjaformum. Ljóst er að unnt væri að framleiða
meginhlutann eða öll þau samheitalyf sem hér eru á
markaði og fyrir verulega lægra verð en nú er ríkjandi.
Framleiðslugetuna skortir ekki. Fyritæki lyfsala,
Pharmaco hf. og dótturfyrirtæki þess Delta hf., hafa í
krafti aðstöðu sinnar á smásölustiginu (í apótekunum)
ráðið stórum hluta lyfjaverslunarinnar hérlendis á
undanförnum árum.
6. Beita þarf útboðum og bjóða út þau lyf sem hér eru notuð
og fáanleg eru frá fleiri en einum aðila (generic lyf).
Yrðu útboðsgögn byggð á núverandi notkun (til viðmiðunar)
og gæti útboðið gilt t.d. fyrir notkun á næstu 4 árum.
Tilboði lægstbjóðanda yrði tekið, að þvi tilskyldu að
gæði teljist fullnægjandi. Auk innlendra fyrirtækja mætti
beina útboðinu til fyrirtækja í þeim löndum sem aðild
eiga að PIC (Pharmaceutical Inspection Convention) og
ísland er aðili að, en innan þeirra allra er afar strangt
eftirlit með gæðum framleiddra lyfja.
Árlegur sparnaður sem hér væri unnt að koma við, án þess
að skerða nokkra þjónustu, er að likindum á verulegur. í
ljósi þess að skattgreiðendur bera lyfjakostnaðinn sem nú
er yfir 1.4 milljarð á ári (fyrir utan þá upphæð er
sjúklingur greiðir) ber stjórnvöldum skylda til þess að
koma þessum málum £ sæmandi horf. 1 heild var lyfja-
kostnaður um 1.7 milljarðar árið 1986.
13