Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Page 7
Formáli
Verulegur árangur hefur náðst í slysavörnum gegn umferðar-, sjávar- og
vinnuslysum, og einnig gegn eitrunartilfellum í heimahúsum. Heima-, frístunda-,
íþrótta- og skólaslysum hefur minna verið sinnt.
A árunum 1970-1980 áttum við íslendingar Norðurlandamet í dánartíðni vegna
slysa ef á heildina er litið, en frá 1985-1990 höfum við verið lægstir í hópi
jafningja. Ennþá deyja þó hlutfallslega flestir í aldurshópnum 0-24 ára á Islandi
miðað við nágrannalöndin.
Skráning slysa hefur verið stórbætt og er m.a.verið að koma á landsskráningu
slysa. Slíkri skráningu hefur ekki verið komið á meðal nágrannaþjóða. Skráningin
hefur m.a. valdið því að áhugi manna hefur vaxið í héruðum víða um land fyrir
auknum slysavörnum.
Umferðarráð vinnur gott starf og Slysavarnafélag íslands hefur "gengið á land”
og sinnir nú ekki síður slysum á landi en sjávarslysum, aðallega bama- og
heimaslysum. Landlæknisembættið og Slysaráð íslands hafa haft ágæta samvinnu
við framangreinda aðila.
Ofbeldisslys: í heild hefur dánartíðni vegna ofbeldis verið lægst á íslandi miðað
við aðrar Norðurlandaþjóðir um langt árabil. Ásamt Finnum hafaþíó íslendingar
búið við einna hæstu sjálfsmorðstíðnina meðal 15-24 ára karla. Á síðustu ámm
hefur sjálfsmorðstíðnin hækkað verulega í framangreindum hóp. Tilraunir til
fyrirbyggjandi aðgerða em hafnar.
Áthyglisvert er að sjúkrahúsinnlagnir í Reykjavík vegna áverka frá öðmm hafa
tvöfaldast á síðustu ámm.
Enn er þörf á aðgerðum.
Umferðarslys: Nauðsynlegt er að auka hjálmanotkun barna og unglinga og því
miður verður það vart gert nema með lagasetningu. Setja þarf reglugerð um
skyldunotkun loftpúða í bifreiðum eins og nú hefur þegar verið gert í mörgum
löndum og ríkjum austan hafs og vestan. Umferðarráð hefur samþykkt
framangreindar tillögur og mun gera kröfu um að þeim verði fundinn staður í nýju
frumvarpi umferðarlaga.
íþróttasamband íslands þarf að beita sér meira gegn íþróttaslysum og
menntamálaráðuneyti og fræðslustjórar gegn skólaslysum. Slysavarnafélag
Islands sinnir nú töluvert heimaslysum og ber að styðja það starf eftir mætti.
Lögreglan hefur sinnt umferðarfræðslu og öðm forvamarstarfi og er það vel.
3