Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Síða 12

Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Síða 12
Tíðni umferðarslysa Ætla má að um 3.400 manns slasist á ári hverju í umferðarslysum á landinu öllu (Brynjólfur Mogensen o.fl. 1989). í athugun Talnakönnunar á umferðarslysum 1988-1990, sem gerð var fyrir Umferðarnefnd Reykjavíkur, kom fram mikil fjölgun á slysum á fullorðnu fólki en slysum á börnum fjölgaði ekki og er það hliðstætt því sem kom fram í könnun sem náði til áranna frá 1983 til 1987 (Umferðarslys í Reykjavík 1988-1990, Talnakönnun, 1991, bls. 5). Athugun á meiðslum í slysum leiddi í ljós að hálsmeiðslum og minni háttar áverkum fjölgar en aðrir áverkar eru álíka margir og áður. Umferðarslys á höfuðborgarsvæðinu. I heild leita fleiri til Slysadeildar Borgarspítalans vegna umferðarslysa eftir 1989 en innlagnartíðni fer heldur lækkandi, sem þýðir trúlega að alvarlegum slysum fækkar heldur. Ár Mynd 6 Hvers vegna fjölgar meiðslum en ekki innlögnum á sjúkrahús vegna umferðarslysa? Trúlega stafar hluti fjölgunarinnar af því að fleiri eru skráðir með hálshnykksáverka en áður, þ.e. minni háttar áverka. Ef til vill er helsta ástæðan að fólk þekkir betur reglur um bótarétt sem voru rýmkaðar eftir 1987 (almannatryggingalög). Fram til 1987 var bótaréttur miðaður við 15% örorku en eftir 1987 við 10% (Skýrsla Slysadeildar Borgarspítalans 1992). 8 J

x

Heilbrigðisskýrslur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.