Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Side 21

Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Side 21
Börn eru í meiri hœttu í umferðinni enfullorðnir og til þess liggja eftirfarandi ástceður: Böm eiga erfiðara með en fullorðnir að meta hraða með tilliti til fjarlægðar (óþroskað sjónsvið), að greina lóðrétta og lárétta fleti, jafnvel að greina liti rétt og mun á hægri og vinstri í hraða umferðarinnar. • Þau velja oftar stystu leiðina milli tveggja punkta. • Þau eru auk þess lægri í vexti en fullorðnir! Aðgerðir: Börn 6-12 ára semferðast á reiðhjóli skulu nota þar til gerða hlífðarhjálma. Foreldrar skulu vera ábyrgir fynr notkun barna á hlífðarhjálmum. Slík ákvæði hafa t.d verið sett í lög í Astralíu (Breska læknablaðið 1991). Svíar telja að íhuga megi að setja slíkt í lög þegar 20-25% barna bera hlífðarhjálma. A sumum stöðum hér á landi hefur fræðslan borið árangur, t.d. á Þórshöfn bera öll böm hjálma eftir að foreldrar sameinuðust um að taka hjól af þeim bömum er ekki báru hjálma. Eftir umferðarslys og höfuðáverka leituðu 89 börn og unglingar til slysadeildar árið 1989. Niðurstöður margra rannsókna sýna að draga mætti úr alvarlegum meiðslum um 60-70% ef börn og unglingar notuðu hlífðarhjálma við hjólreiðaakstur. Draga úr umferðarhraða á íbúðargötum og verslunarsvæðum, leyfa ekki hraðari akstur þar en 30 km hraða. Ef bam verður fyrir bifreið sem ekið er á 30 km hraða deyr 1 bam af 20, en ef bifreiðinni er ekið á 65 km hraða deyja þau öll 3) • Aðskilja sem mest íbúðar- og skólasvæði frá umferðaræðum. Mun meira fé verður að veija til fræðslu og fyrirbyggjandi aðgerða t.d. efla slysaffæðslu á heilsugæslustöðvum og ráða fólk til þess (hjúkrunarfræðinga og sálfræðinga). Veija meira fé til bættrar skráningar. Góð skráning er hvati til fyrirbyggjandi aðgerða og gerir okkur kleift að meta áhrif þeirra. Efla sem mest starf Umferðarráðs og S.V.F.Í., sem hafa unnið ómetanlegt slysavarnarstarf. Heimildir: 1) Landlæknisembættið. Mannvemd í velferðarþjóðfélagi. Heilbrigðisskýrslur. Fylgirit 1988 nr. 2. 2) Accid Annal Prev. 1981:16, 241-64. 3) Breska læknablaðið, 19. september 1992. 17

x

Heilbrigðisskýrslur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heilbrigðisskýrslur
https://timarit.is/publication/1524

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.