Heilbrigðisskýrslur - 06.12.1992, Blaðsíða 35
Iþróttatceki og leikföng.
Slys af völdum flugelda og blysa er árviss uppákoma um hver áramót. Betra
eftirlit virðist vera með þessari framleiðslu en áður og slysum virðist ekki hafa
fjölgað. Skátar hafa unnið gott forvamarstarf á þessu sviði.
Tómstundatœki.
Hættulegust eru vasahnífar og aðrir hnífar, sérstaklega dúkskurðarhnífar.
Samgöngutceki.
Helstu slysavaldar eru hjólastólar, bílhurðir, bflsætí og bflahlutir.
Tóbaksvörur og eldur.
Tóbaksvörur valda flestum eitrunartilvikum meðal bama. Ráð er að nota lokaða
öskubakka mun meira en nú er gert. Alvarleg tilfelli em þó fá þar eð fólk bregst
yfirleitt fljótt við og leitar hjálpar í tíma.
Tyf.
Lyf eru algengur slysavaldur, sérstaklega meðal barna 4 ára og yngri. Fólk
geymir yfirleitt lyf í kæliskápum, á eldhúshillum og í baðherbergjum og eiga börn
greiðan aðgang að þeim. í lyfjaverðlagsskrá 1. júlí 1984 eru skrásett 1082 lyf.
Um 4% þeirra þarf að geyma á köldum stað, þ.e. við 2-8°C, og þess vegna er
yfirleitt ónauðsynlegt að geyma lyf í kæliskápum. Lyf á að geyma í læstum
lyfjaskáp, sbr. byggingareglugerð 1979. Betra eftirlit þarf að vera með því að
reglugerð þessari sé fylgt. Gera þarf kröfur til þess að lyfjaskápur sé innifalinn í
kostnaði við innréttingar, en þá finnur fólk ekki eins fyrir kostnaði við smíði
þeirra. Rétt er að benda á að unglingar er sækjast eftir vímuáhrifum leita mjög í
heimilisapótek foreldra, "vina og vandamanna" (upplýs. lögreglu).
Plöntur.
Plöntuát meðal barna er ekki óalgengt. Nokkuð er um eitraðar plöntur í
heimahúsum, s.s. Jólastjarna, Diffenbachia, Neria o.fl. í sumum löndum er
komin reglugerð sem gerir ráð fyrir merkingu plantna í heimahúsum.
Pit dtýra og manna.
Töluvert er um slys á börnum vegna hunda- og kattabits. Mannabit eru þó fleiri en
dýrabit.
31