Leikhúsmál - 01.12.1995, Síða 5
LEIKHÚSMÁL
Atvinnuleikhús í Hafnarfirði
Hafnfirskir leikarar hafa tekið að sýna nýtt
verk eftir Árna Ibsen. Leikritið heitir
Himnaríki getur alls ekki beðið. Þessi sýning
kann að verða vísir að atvinnuleikhúsi í
bænum. Hópurinn hefur haslað sér völl í
gömlum vinnusal Bæjarútgerðar Hafnar-
íjarðar. - Þar er semsagt að verða til nýtt
leikhús. Það er því skammt stórra högga á
milli í leikhúsheiminum er tvö hús eru opn-
uð með fárra vikna millibili.
Að sögn Hilmars Jónssonar leikstjóra
sýningarinnar er hér um að ræða gott 500
fermetra súlulaust rými. Hægt verður að
Haínarfjarðorleikhópur
á nýjum fjölum.
um að sautján þúsund manna samfélag hafi
þörf fýrir a.m.k. einn atvinnuleikhóp, sagði
Hilmar.
Hópurinn fékk 2ja milljón króna styrk ffá
LeiHistarráði til þess að setja upp þessa
fyrstu sýningu. Frumsýning var 14. septem-
ber. - Það er óneitanlega skemmtilegt að
opna leikhúsið með nýstárlegum íslenskum
gamanleik, sagði Hilmar. Verkið er sérstakt
að því leyti að tveir þættir eru leiknir sam-
tímis, bak í bak, tvisvar. Leikritið gerist í
sumarbústað. Atburðarásin er bæði inni í
bústaðnum og fyrir utan hann samtímis.
Þannig situr annar hluti áhorfenda og fylgist
með framvindu mála innandyra, en hinn
hlutinn sér hvað gerist utandyra. Eftir hlé er
skipt um sæti og sýningin leikin aftur. Þetta
krefst að sjálfsögðu mikillar nákvæmni af
leikurunum en þeir eru sex í sýningunni:
Björk Jakobsdóttir, Erling Jóhannesson,
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, Gunnar
Helgason, Jóna Guðrún Jónsdóttir og Þór-
hallur Gunnarsson. En allmargir hafnfirskir
leikhúslistamenn hafa veitt hinu nýja leik-
húsi liðsstyrk og munu taka þátt í framtíðar-
verkefnum þess. B
Ab störfum í Loftkastalanum.
Tvö ný leikhús
risin!
Tæpast hefur farið framhjá neinum að
nýtt leikhús er risið í Héðinshúsinu:
stórt leiksvið vel búið tækjum, 400
góð sæti í sal, búningsherbergi fyrir
leikara, kaffistofa og bar, allt sem við á að
éta! Að þessu leikhúsi stendur Flugfélagið
Loftur sem reyndar hefur aldrei efnt til flug-
ferða (nema þá í óeiginlegum skilningi með
sýningum sínum á Hárinu og Rocky Horror)
en ætlar nú að reka þetta leikhús sem
aðstandendurnir, Ingvar Þórðarson, Hallur
Helgason og Baltasar Kormákur, kalla,
kannski með nokkrurri sjálfhæðni, „Loft-
kastalann“. Baltasar sem gegnir þarna hlut-
verki listræns leikhússtjóra segir það draum
sinn að þarna verði lítil listamiðstöð: báða
salina (stóra leikhússalinn og kaffistoíúna)
megi nota til lítilla og stórra leiksýninga,
tónleika og myndlistarsýninga. I bili sé ætl-
unin að leigja salina á sanngjörnu verði,
Þjóðleikhúsið gæti orðið fyrsti leigjandinn,
Listahátíð mun og hafa hug á að tryggja sér
aðgang að húsnæðinu íyrir næsta vor, og
þegar hafa margir frjálsir leikhópar leitað
hófanna til að fá þarna inni. Loftkastalinn
sjálfur hyggst ekki efna til sýninga þarna
aftur fyrr en seinna í vetur þegar Baltasar
ætlar að setja upp gamanleikinn Design for
Living eftir Noel Coward. Þetta skal verða
fyrsta einkarekna leikhúsið á íslandi og lifa
án opinberra styrkja, segir Baltasar með
stjörnur í augunum. Gamalreyndar og
minnugar leikhúsrottur telja því ekki við
hæfi að rifja upp liðnar raunasögur og hetja
úrtölusöng - enda aldrei að vita! Stundum
flytur trúin fjöll.
brjóta það upp með færanlegum áhorf-
endapöllum. Góð aðstaða er fyrir leikara og
áhorfendur og ekki spillir að húsið er vel
staðsett í miðbæ Hafnartjarðar. Að sögn
Hilmars kviknaði hugmyndin meðal nokk-
urra hafnfirskra listamanna sem töluðu sig
saman og vildu gera eitthvað skemmtilegt í
Hafnarfirði og fyrir bæinn. Leitað var sam-
starfs við bæjaryfirvöld um leikþætti í til-
efni 50 ára afmælis lýðveldisins. Sú dagskrá
var flutt í Bæjarbíói. I beinu framhaldi voru
skoðaðir möguleikar á húsnæði fyrir
áframhaldandi starf. Og nú er staðurinn
sem sagt fundinn. Hópurinn fékk góðar
undirtektir hjá bæjaryfirvöldum og þetta
húsnæði er hugsað til framtíðar. - Við telj-
3