Leikhúsmál - 01.12.1995, Qupperneq 6
LEIKHUSMAL
í djúpi daganna (Islenska leikhúsið): Jón ST. Krístjánsson og Margrét Pétursdóttir.
Leikhús
JÓN HJARTARSON
Náttlaust sumarið hefur um langt
skeið þótt til einskis betur fallið en
útivistar og ferðalaga. Þéttbýlingar
halda út fyrir bæjarmörkin til þess
að kynnast landinu sínu og komast í snert-
ingu við þessa títtnefndu „íslensku nátt-
úru“. Menningarstarfsemi í borg og bæ
hefur vikið fyrir útihátíðum, ærandi sveita-
böllum eða fjölskylduhátíðum með grilluð-
um pylsum og tilheyrandi. - En þetta er að
breytast. Tónleikahald hefur færst í aukana
undangengin sumur, sömuleiðis myndlist-
arsýningar. Og leiklistin hefur heldur betur
tekið við sér í sumar. Listmenning er að
helga sér hina náttlausu voraldar veröld og
það er vel.
Leiksýningar hafa helst tilheyrt skamm-
deginu, hefðbundið leikár byrjað í september
og staðið fram í byrjun júní. Nú bar hins veg-
ar svo við í sumar að leiksýningar spretta upp
á ólíklegustu stöðum og verkefnin æði íjöl-
breytt. Það sem ef til vill sætir mestum tíð-
indum er tilkoma tveggja nýrra leiksviða, sem
allt bendir til að starfrækt verði til ff ambúðar.
Annars vegar eru hin nýju og glæsilegu salar-
kynni í Héðinshúsi. Þar var söngleikurinn
Rocky Horror ffumsýndur 11. ágúst. Hafnar-
fjarðarleikhúsið er hins vegar að hreiðra um
sig í húsakynnum sem áður tilheyrðu Bæjar-
útgerð Hafnarfjarðar og æfir þar nýtt verk
eftir Árna Ibsen.
Frá þessum nýju leikhúsum segir í sér-
stakri frétt annars staðar í blaðinu.
Hvorki meira né minna en fjórir söngleik-
ir fóru á fjalir í Reykjavík í sumar! Þegar hef-
ur verið minnst á Rocky Horror. í íslensku
Óperunni var ný íslensk rokkópera sem kall-
ast Lindindin frumsýnd í byrjun september.
Höfundur er Ingimar Oddsson. - En söng-
leikjaflóðið spratt upp um mitt sumar. Leik-
félag Reykjavíkur reið á vaðið með Jesú Krist
Súperstar eftir Tim Rice og Andrew Loyd
Webber í Borgarleikhúsinu þann 14. júlí í
leikstjórn Páls Baldvins Baldvinssonar. Þessi
þekkta rokkópera var raunar fyrst flutt hér á
landi fyrir 22 árum af Leikfélaginu. Nú, líkt
og þá, eru flytjendur bæði úr röðum popp-
söngvara og leikara. Aðsókn að sýningunum
mun hafa verið góð. Kannski á sólarleysið og
suddinn í verðinu í sumar sinn þátt í leik-
húsgróskunni?
I Tjarnarbíói frumsýndi Ferðaleikhúsið
söngleikinn Jósep og hans undraverðu skraut-
kápu eftir þá félaga Rice og Webber. Þetta er
frumflutningur þessa söngleiks hér á landi.
En verkið mun vera fyrsta afrek höfund-
anna, sem síðan hafa nánast lagt heiminn að
fótum sér. í titilhlutverkinu er Eggert A.
Kaaber, en það er Kristín G. Magnús sem
leikstýrði. En hún er driffjöðrin í Ferðaleik-
húsinu og hefur meðal annars afrekað það
að halda úti leiksýningum fyrir erlenda
ferðamenn í 26 ár, Light Nights. Þar er um
merkilegt brautryðjendastarf að ræða.
Tvær dagskrár fyrir erlenda ferðamenn
voru auk þess á döfinni í Kaffileikhúsinu,
önnur leiklestur úr Sölku Völku eftir Lax-
ness. Þar voru á ferð Guðný Ragnarsdóttir,
Gunnar Gunnsteinsson, Margrét Péturs-
dóttir og Pétur Einars. - Þór Tuliníus og
Guðni Franzson voru svo með sýningu fyrir
ferðamenn á ensku og þýsku. í Kaffileikhús-
inu var Herbergi Veroniku undir stjórn Þór-
unnar Sigurðardóttur með Þóru Friðriks-
dóttur, Rúrik Haraldssyni, Ragnheiði
Rúriksdóttur sýnt fram eftir sumri. - Ég kem
frá öðrum löndum var þáttur sem Guðrún
Gísla sýndi þar kringum mánaðamót júní-
júlí. En höfundar ásamt henni voru Þórunn
Sigríður Þorgrímsdóttir og Illugi Jökuls.
Ennfremur var sýnd í Kaffileikhúsinu
leikin ljóðadagskrá Spegill undir fjögur augu
eftir Jóhönnu Sveinsdóttur. Leikstjóri var
Hlín Agnarsdóttir.
Loks voru í september teknar upp að nýju
sýningar á hinni vinsælu Sápu II en von
mun vera á þriðju sápunni er á líður vetur-
inn.
I Lindarbæ æfði fslenska leikhúsið í sum-
ar leikrit Gorkís, sem í nýrri þýðingu Megas-
ar hlýtur nafnið I djúpi daganna. Þjóðleik-
húsið sýndi þetta verk fyrir 19 árum undir
heitinu Náttbólið. - Leikstjóri er Þórarinn
Eyfjörð. Frumsýning var í byrjun september.
Uppsetning þessa magnaða leikverks hlýtur
að teljast æði metnaðarfullt framtak. Þarna
fá margir leikarar (bæði nýútskrifaðir og
reyndir) kærkomið tækifæri til að spreyta sig
í mergjuðum hlutverkum, auk þess að fá
4