Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 4

Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 4
ELDGOS Í MERADÖLUM4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 ÁGÚST TILBOÐ ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS GOLF Á ALICANTE INNIFALIÐ Í VERÐI: FLUG OG GISTING ÓTAKMARKAÐ GOLF INNRITUÐ TASKA 20 KG OG HANDFARANGUR GOLFBÍLL INNIFALINN FLUTNINGUR Á GOLFSETTI MORGUNVERÐUR ÍSLENSK FARARSTJÓRN 09. - 12. ÁGÚST VERÐ FRÁ 119.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF 09. - 16. ÁGÚST VERÐ FRÁ 187.900 KR. Á Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF 12. - 16. ÁGÚST VERÐ FRÁ 136.900 KR. Á MANN M.V. 4 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF 12. - 19. ÁGÚST VERÐ FRÁ 175.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF 16. - 19. ÁGÚST VERÐ FRÁ 107.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á ALICANTE GOLF 23. - 26. ÁGÚST VERÐ FRÁ 135.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á MELIA ALICANTE 26. - 30. ÁGÚST VERÐ FRÁ 138.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA Á EL PLANTIO Stökktu strax í sveiflu á Alicante. Í þessum ferðum er spilað á El Plantio eða Alicante Golf og getur þú ráðið lengdinni á þinni ferð. Margar dagsetningar í boði ÓTAKM ARKAÐ GOLF O G AFNOT AF GOL FBÍL INNIFA LIÐ Í VERÐ I *NÝT T* BÓ KAÐU GOLF KENN SLU HJÁ PGA GOLFK ENNAR A Á MEÐAN Á FERÐIN NI ÞIN NI STEND UR Lögreglan á Suðurnesjum hefur lokað fyrir ak- andi umferð á vegslóðum umhverfis gosstöðv- arnar í Meradölum en umferðin er óheft um Reykjanesbraut og Suðurstrandarveg. Að- stæður eru metnar reglulega, en almanna- varnastig hefur nú verið lækkað úr neyðarstigi niður á hættustig. Ákvörðun um að lækka al- mannavarnastigið var tekin í gær í kjölfar könnunarflugs sem vísindafólk og fulltrúi frá almannavörnum fóru í yfir gosstöðvarnar til að meta umfang gossins. Varað hefur verið við því að gangan að gos- stöðvunum sé löng og ekki nema fyrir vana göngugarpa. Víðir Reynisson, yfirlögreglu- þjónn almannavarna, sagði að loknum blaða- mannafundi í gær að mikil umferð erlendra ferðamanna hafi verið að hrauninu. Margir hafi þó ekki ætlað að fara langt. „Við höfum áhyggjur af fólkinu sem ætlar að fara alla leið inn að gosstöðvunum.“ Þá hafi verið höfð af- skipti af fólki sem ætlaði að ganga að gosstöðv- unum með ung börn, en það er ekki ráðlagt vegna gasmengunar. Lovísa Mjöll Guðmundsdóttir, náttúruvár- sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir að gera megi ráð fyrir áframhaldandi skjálfta- virkni í kjölfar eldgossins til að byrja með. Tveir jarðskjálftar mældust 3,1 og 3,6 að stærð við Kleifarvatn rétt fyrir klukkan sex í gær- kvöldi. Skjálftarnir urðu um 3,7 kílómetra vestur af Kleifarvatni. „Það sem gerðist í síð- asta gosi var að það fór að hægja á skjálfta- virkninni eftir því sem leið á gosið, þannig að það má búast við að slíkt hið sama gerist,“ seg- ir Lovísa. „Miðað við fyrri reynslu fór að draga aðeins úr skjálftum þegar gosið hófst.“ Fagradalsfjall Stóri-Hrútur Meradalir Geldingadalir Ná tt ha gi La ng ih ry gg ur Nátt- haga- kriki Grunnkort: Ragnar Þrastarson/Veðurstofa Íslands/Náttúrustofnun Gossprungan í Meradölum og stærð hraunbreiðunnar frá 2021 Hraunbreiðan frá 2021 Eldgos hófst í vestanverðum Meradölum um 1,5 km norður af Stóra-Hrút klukkan 13.18 í gær Gossprungan er um 300-500 metra löng og kvikustrókarnir um 10-15metra háir Gossprungan í Meradölum Keflavík Hafnarfjörður Fagradalsfjall Kleifarvatn Njarðvík Vogar Hafnir Sandgerði Grindavík Gossprungan Fagradalsfjall Fagradalsfjall Njarðvík Vogar Grindavík Keilir Keilir Grindavík Gossprungan 1. ágúst 3. ágúst Ko rt :s kj al ft al is a. ve du r.i s Hraunrennsli í gosinu í Geldinga- dölum í fyrra var um 7,5 rúmmetrar á sekúndu í byrjun goss en mest um 13 rúmmetrar á sekúndu í maí 2021 Hraunrennslið í Meradölum var í gær um 20-50 rúmmetrar á sekúndu Gossvæðið í Meradölum Skjálftavirkni á Reykjanesi 1.-3. ágúst Spá um dreifingu hraunsins ef gosið helst óbreytt í 200 daga Kort: Veðurstofa Íslands Aðstæður metnar reglulega - Búast við áframhaldandi skjálftavirkni - Lokað fyrir akandi umferð - Hættustig í gildi vegna gossins Steinþór Stefánsson steinthors@mbl.is „Eins og málin standa þá er þetta mjög heppilegt fyrir okkur,“ segir Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, í samtali við Morg- unblaðið um staðsetningu gossins sem hófst í gær í Meradölum á Reykjanesskaga. Aðspurður segir hann að fylgst sé grannt með stöðu mála. „Við fylgj- umst bara vel með. Við erum vel tengd almannavörnum og við fylgj- umst vel með þeirra aðgerðum. Sömuleiðis erum við vel tengd að- gerðasviðinu í Grindavík líka. Þann- ig að við bíðum átekta og erum með okkar plön ef eitthvað kemur upp á.“ Að sögn Tómasar eru áætlanir til staðar sem HS Orka gæti gripið til ef upp kæmi hraun við starfsstöðvar fyrirtækisins. „Sem betur fer eins og sakir standa þá höfum við ekki þurft að teygja okkur í þær áætl- anir, og við erum í raun bara ánægð að eldgosið sé hafið á þessum stað.“ Tómas kveðst binda vonir við að nú muni jarðskjálftum lina á Reykjanesskaga en einhverjar skemmdir urðu vegna skjálftanna um helgina. Loftmengun til byggðar Þorsteinn Jóhannsson, sérfræð- ingur í loftgæðamálum hjá Umhverf- isstofnun, segir að líklegast verði loft- mengunarefni svipuð og í fyrra gosi. „Mengunin er í takt við stærð goss- ins, þ.e.a.s. því stærra gos því meiri mengun. En það er alveg háð vindátt hvert hún fer. En það eru norðlægar áttir, þannig að það berst ekki yfir byggð. Á föstudaginn gæti það hins vegar borist til byggða, þannig að við reynum að fylgjast vel með.“ Gosið á heppi- legum stað - HS Orka fylgist grannt með gosinu Morgunblaðið/Eggert Gos Forstjórinn Tómas Már Sig- urðsson vonar að skjálftum linni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.