Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 6
ELDGOS Í MERADÖLUM6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Fjöldi björgunarsveitafólks af Suð- urnesjum og víðar var mættur síð- degis í gær á gosvakt í Meradölum. Þeirra hlutverk var meðal annars að leiðbeina fólki sem var komið að hraunjaðrinum sem skríður fram af miklum þunga. Einnig var staðin vakt við vegslóða nærri gosstöðvun- um og umferð um þá stýrt. „Við fengum útkall um klukkan tvö og þau okkar sem erum á útkalls- lista voru í bænum og fóru þá strax af stað. Til er fólk sem vill alltaf kom- ast komast örlítið nær glóandi hrauni sem getur verið hættulegt, meðal annars vegna gasmengunar. Er þó þakklátt með leiðbeiningar,“ segir Telma Rut Eiríksdóttir. Þau Guðjón Sigurðarson úr björgunar- sveitinni Þorbirni í Grindavík voru í Meradölum síðdegis í gær. Formað- ur sveitarinnar, Bogi Adolfsson, var í sumarfríi með fjölskyldunni norður á Akureyri þegar útkall barst. Bogi flaug suður með fyrstu vél og var kominn á svæðið í gærkvöldi. Komu af hálendisvaktinni Margir úr Þorbirninum voru ann- ars á hálendisvakt í Landmanna- laugum, en sneru þaðan til meira að- kallandi verkefna á heimaslóð. Þeirra á meðal var Grindvíkingurinn Otti Rafn Sigmarsson sem er for- maður Slysavarnafélagsins Lands- bjargar. „Gosið núna er talsvert frá vegum eða um tíu kílómetrar og þá er um grýtta slóð að fara. Sennilegt er að margir muni leggja leið sína að eldgosinu um helgina og viðbúnaður okkar í björgunarsveitunum mun taka mið af því, enda þótt allt sé mik- illi óvissu háð í augnablikinu. Núna eru allar björgunarsveitir á suðvest- urhorninu komnar í þetta verkefni og vinna samkvæmt góðu skipulagi,“ segir Otti. Fólk vill nærri glóandi hrauni - Björgunarsveitir mættar í Meradali Morgunblaðið/Sigurður Bogi Gosvakt Guðjón Sigurðarson og Telma Rut Eiríksdóttir í Meradölum í gær. Fólk úr öllum björgunarsveitum á suð- vesturhorni landsins var í gærdag komið í gæslu og önnur verkefni sem tengjast þessum náttúruhamförum. Reynir Jónsson leiðsögumaður og göngugarpur var við gosstöðvarnar í gær, en í fyrra fór hann 28 sinnum að skoða gosið við Fagradalsfjall. „Þetta er mjög fallegt gos og liggur eftir kannski 500 metra langri sprungu. Gosið virðist ekkert ná mjög hátt, en er allt samt mjög sýni- legt,“ segir Reynir. Hann segir mjög sterkan vind við gosstöðvarnar og lítil hætta á að anda að sér eitruðu gasi. „Það er engin gaslykt þar sem við erum. Svo er gosið hérna í miðju hrauninu og ég sé ekki að það sé hægt að komast alveg að þessu, nema fólk sé með einhvern fíflagang.“ Reynir sagði ekki marga vera á svæðinu. „Það eru helst einhverjir útlendingar sem ég held að hafi slysast til að vera hérna þegar þetta byrjaði, án þess að ég hafi spurt þá.“ – Er þetta á svipuðum slóðum og síðasta gos? „Ég myndi segja að þetta væri norðanmegin í Meradalnum, alla vega norðan við gíginn. Þetta er mjög lítið og alveg gullfallegt gos í góðu veðri.“ Reynir segir að gosið í fyrra hafi verið miklu stærra en þetta, þótt fram hafi komið að þetta gos gæti orðið allt að tvöfalt stærra. „Já, nú er ég enginn sérfræð- ingur,“ segir Reynir og hlær. „Ég nota bara augun hérna.“ Árið 2011 þegar gosið hófst í Gæsavötnum liðu ekki nema þrír tímar áður en Reynir lagði af stað á Vatnajökul. „Það má alveg segja að ég eltist við eldgos.“ Gullfallegt lítið gos í góða veðrinu Morgunblaðið/Hákon Við gosið Reynir Jónsson leiðsögumaður var eldhress við gosstöðvarnar. - Virkar talsvert minna gos en 2021 Dóra Ósk Halldórsdóttir doraosk@mbl.is Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræðum, sagðist hafa verið að skoða vefmyndavél mbl.is af gos- inu þegar hringt var í hann í gær. „Þetta lítur út fyrir að vera afl- lítið gos. Kviku- gosrásin er veik og er kannski nokkrir metrar upp í tugi metra á hæð. Framleiðni er lítil, þó hún geti kannski verið aðeins meiri en hún var í gosinu 2021.“ Heldur þú að gosið verði minna en síðast? „Það lítur út fyrir að framleiðni sé kannski aðeins meiri í upphafi heldur en hún var síðast, en bæði eru þessi gos með litla framleiðni og afllítil þannig séð. Samt sem áður hélt gosið 2021 áfram í sex mánuði svo það er ómögulegt að segja hvað gerist núna og hvort gosið nái að halda sér í gangi í vikur eða mánuði eða hvort það hætti á morgun.“ Erfitt að spá um framhaldið Þorvaldur segir ógjörning að spá um framhaldið. „Ef afrennslisæðin helst opin og þrýstir kvikunni upp á yfirborðið, verður gosið lengra, en ef það kæmi t.d. stór skjálfti sem myndi loka afrennslisæðinni eða stífla hana, þá gæti gosið stoppað.“ Hann segir litla hættu á að gosið valdi miklu tjóni meðan gosgígarnir halda sér á þessu svæði. „Þeir eru í raun í lokuðum dal, sem er að vísu hálffylltur af hrauni, en það er samt töluvert í að hraun fari að flæða úr þeim. Það gæti samt auðvitað gerst ef gosið dregst á langinn, en þá verður dágóður tími í það. Þannig að í dag bendir ekkert til þess að innviðir séu í hættu. En ég vil samt taka það fram að gosið er ekki hættulaust. Þá er gáfulegra að vera vindmegin við gosstöðvarnar. Kvikugösin eru eitraðar gastegund- ir sem fólk ætti ekki að anda að sér.“ Meiri kraftur en dreifðari Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur við Jarðvísinda- stofnun HÍ, var staddur við gos- stöðvarnar í gær að meta ástandið. „Maður finnur meiri kraft í gos- inu í upphafsfasa þess heldur en í síðasta eldgosi sem er í takt við meira kvikuflæði. Það er best kort- lagt með því að mæla flatarmál hrauns og áætla þykkt, en miðað við þær tölur sem hafa komið fram þá er meira kvikuflæði í þessu gosi.“ Freysteinn segir að gosið núna sé í góðu samræmi við það sem áður hafði verið áætlað með mælingum á jarðskorpuhreyfingum og vöktun á svæðinu dagana fyrir gos. „Mæl- ingar og túlkun Veðurstofu Íslands sýndu að innstreymi kviku í jarð- skorpuna myndi verða mjög hröð og talsvert meiri en í síðasta eldgosi og við erum að sjá það hérna núna.“ Hann segir ástæður þess að fólki gæti þótt gosið virka minna en fyrra gos 2021, vera tvíþættar. „Annars vegar erum við hér í alveg byrj- unarfasanum og hins vegar er gosið dreifðara eftir þessari líklega 200 metra sprungu og gosið er ekki búið að einangra sig á einn stakan gíg.“ Rannsóknir taka nú við Freysteinn var búinn að vera í rúman klukkutíma við gosstöðvarn- ar. „Sprungan er öll mjög svipuð en hraunið fyrir framan þykknar fljótt og aðstæður geta breyst hratt. Freysteinn segir að nú þurfi að fylgjast með gosinu næstu daga og sjá hvernig það þróist. „Einkenni gossins í fyrra var að þá var til- tölulega jafnt hraunrennsli allan tímann og spurning hvort þetta gos muni haga sér eins.“ Hann segir að mælingar á hraunflæði og jarð- skorpuhreyfingum taki nú við. Aðstæður geta breyst hratt „Ég tel mjög mikilvægt að al- menningur fylgi vel tilmælum Al- mannavarna. Það er mikil gasmeng- un, en í vindáttinni fer það í suðurátt núna og ekki yfir byggð, en aðstæður geta breyst hratt og gossprungur geta breytst fljótt, þannig að það þarf að fara að öllu með gát. Spár síðustu daga að ganga eftir - Afllítið gos, en sterkara en 2021 - Gosið í dældinni í Meradölum - Almenningur hvattur til að fara varlega - Byggðir gætu orði fyrir mengun í annarri vindátt - Vinna við áætlanir er fram undan Þorvaldur Þórðarson Morgunblaðið/Sigurður Bogi Vettvangur Freysteinn Sigmundsson jarðeðlisfræðingur við Háskóla Íslands var kominn að gosstöðvunum síðdegis. Sprungan er öll mjög svipuð en hraunið þykknar fljótt og aðstæður geta breyst hratt, segir vísindamaðurinn. Ekki hefur orðið nein röskun á flugumferð vegna eldgossins við Fagradalsfjall sem hófst í gær og að öllu óbreyttu mun það haldast. Þetta staðfestir Grettir Gautason, staðgengill upplýsingafulltrúa Isavia. Að sögn Grettis á Isavia í góðu samstarfi við Veðurstofuna en hann segir það þó vera á ábyrgð flugrekenda að taka ákvarðanir um flugferðir. Litakóða fyrir flugumferð yfir Krýsuvík var breytt í rauðan þeg- ar staðfesting á að gosið væri hafið barst. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni þá hefur litakóð- inn ekki þau áhrif að bannað sé að fljúga yfir svæðið heldur merkir hann að möguleiki sé á því að aska berist upp í andrúms- loftið. Gosið ekki haft áhrif á flugumferð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.