Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
Jón Magnússon hæstaréttar-
lögmaður veltir upp spurning-
unni um húsnæðisskort í pistli á
blog.is og segir:
„Hagstofan segir að 7.371 útlend-
ingur umfram brottflutta hafi sest
að í landinu fyrstu 6 mánuði ársins.
Úkraínumenn eru inn-
an við 1.000 þeirra.
Þetta er álíka fjöldi og
allir íbúar Akraness.
- - -
Gríðarlegur að-
flutningur út-
lendinga veldur of-
urálagi á heilbrigðis-,
skóla- og húsnæð-
iskerfið.
- - -
Íslensk stjórn-
málastétt sér enga ástæðu til að
bregðast við og takmarka aðkomu
fólks, þó ekki væri nema til að
tryggja fólkinu í landinu góðan að-
gang að læknisþjónustu, skólagöngu
svo ekki sé talað um húsnæði.
- - -
Eðlilega verður húsnæðisskortur
þegar álíka margir og búa á
Akranesi flytjast til landsins á 6
mánaða fresti.
- - -
Íslensk stjórnmálastétt virðist ætla
að halda áfram að fljóta sofandi
að feigðarósi í stað þess að stjórna
landamærunum.“
- - -
Í viðtali við seðlabankastjóra í Við-
skiptaMogganum í gær bendir
hann á að mjög lítið hafi verið byggt
hér á landi hin síðustu ár og húsnæð-
isþörfin hafi verið vanmetin. „Þörfin
er mikil og hefur aukist hratt,“ segir
Ásgeir Jónsson.
- - -
Getur verið að sá straumur fólks
til landsins sem Jón nefnir hafi
orðið til að auka enn frekar á þetta
vanmat og þessa miklu og vaxandi
þörf?
Mikið innflæði,
mikið vanmat?
STAKSTEINAR
Ásgeir Jónsson
Jón Magnússon
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Hvergi er að finna upplýsingar á
opinberum síðum rússneskra stjórn-
valda um þá einstaklinga sem þau
sjálf halda fram að settir hafa verið
á sérstakan bannlista. Það er því
bæði óljóst hver er á listanum og
hvort fullyrðingar um að íslenskir
ríkisborgarar séu á honum séu rétt-
ar.
Þann 29. apríl síðastliðinn birti
rússneska utanríkisráðuneytið á vef
sínum tilkynningu um að níu ís-
lenskir, 16 norskir, þrír grænlenskir
og þrír færeyskir ríkisborgarar
hefðu verið settir á sérstakan bann-
lista rússneskra yfirvalda fyrir þátt-
töku í „and-rússneskri orðræðu“.
Tilkynningin er birt bæði á rúss-
nesku og ensku, en í ensku útgáf-
unni hefur frá upphafi staðið „to be
continued …“ eða „framhald vænt-
anlegt“. Ekkert framhald hefur ver-
ið birt hjá rússneska utanríkisráðu-
neytinu eða öðrum stofnunum
rússneskra yfirvalda. Ekkert fram-
hald er boðað í rússnesku útgáfu til-
kynningarinnar. Ekkert er heldur
að finna um málið í yfirliti mála hjá
Dúmuni, rússneska þinginu. Vaknað
hafa spurningar um hvort umrædd-
ur listi sé til. Ekki er hægt að útiloka
að listinn sé einhvers staðar á borði
rússnesks embættismanns en málið
gæti þótt svo þýðingarlítið atriði í
augum Rússa að það hefur ekki þótt
tilefni til að taka það til formlegrar
afgreiðslu. Þá er einnig möguleiki að
ekki þyki tilefni í Kreml til að upp-
lýsa um það hverjir eru á meintum
bannlistum þarlendra yfirvalda.
Utanríkisráðuneyti Íslands hefur
ekki verið tilkynnt um þá Íslendinga
sem kunna að vera á meintum lista.
Fyrirspurn blaðamanns til rúss-
neska utanríkisráðuneytisins um
hvort og hvaða íslensku ríkisborg-
arar séu á téðum bannlista hefur
ekki verið svarað . gso@mbl.is
Ekkert að frétta af bannlista
- Rússar boðuðu frekari upplýsingar í aprílmánuði en ekkert hefur heyrst síðan þá
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn mánuður var 22. júlí-
mánuður þessarar aldar og reynd-
ist einn af þeim svalari. Trausti
Jónsson, einn okkar reyndasti veð-
urfræðingur, gerir mánuðinn upp
á Hungurdiskum á Moggablogg-
inu.
„Ritstjóra hungurdiska finnst
einkennilega mikið kvartað undan
tíðinni nú – og að ástæðulitlu,“
segir Trausti. „Við höfum fengið
að upplifa marga góða daga til úti-
veru, þó blíðviðrið hafi verið nokk-
uð skammvinnt hverju sinni og
mjög hlýja daga hafi vantað.
Heyra má ýmiss konar „vænt-
ingar“ um að hnattræn hlýnun eigi
að hafa útrýmt venjulegum ís-
lenskum sumrum nú þegar.“
Trausti segir að þetta sé mikill
misskilningur og raunar útúrsnún-
ingur. Breytileiki veðurfarsins frá
ári til árs sé meiri en svo. „En
munum að þó þessi júlímánuður
teljist kaldur miðað við bræður
sína undanfarin 20 ár er hann að
hita til fyllilega í meðallagi þeirra
júlímánaða sem
ritstjóri hungur-
diska ólst upp
við og reyndi að
auki fyrstu 20
starfsár sín á
Veðurstofunni.“
Samkvæmt út-
reikningum
Trausta fyrir
einstök spásvæði
var nýliðinn júlí að tiltölu kald-
astur á Norðurlandi eystra, þar er
hann sá fjórði kaldasti á öldinni.
Við Faxaflóa sá fimmti kaldasti.
„Svo vill til að í Reykjavík var
hann enn kaldari að tiltölu, í hópi
þriggja köldustu, ef við notum tvo
aukastafi við útreikning er hann sá
kaldasti, en varla þó marktækt.“
Að tiltölu var hlýjast á Suðaust-
urlandi, þar er þetta ellefti hlýjasti
júlímánuður aldarinnar.
Þegar litið er til fortíðarinnar
staldrar Trausti við júlí 1964 þeg-
ar hann leitar „ættingja“ júlí í ár.
Í þeim mánuði var hitinn metinn í
meðallagi. „Það sem við teljum nú
í meðallagi þótti hlýtt þá – höfum
það í huga,“ segir Trausti.
Ástæðulítið að
kvarta yfir veðri
Trausti Jónsson
- „Við höfum fengið að upplifa marga
góða daga til útiveru,“ segir Trausti
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is.
Sumaropnun:
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga LOKAÐ
Hjarta heimilisins
Við hönnum innréttingar að þínum þörfum
2000 — 2022