Morgunblaðið - 04.08.2022, Síða 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL V
Hvíldarst
KRAGELUND Aya K 129
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án
rafmagns.
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik
IKTOR
óll
KRAGELUND Handrup
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
„Sumarið hefur verið mjög gott, það hefur
verið mikið að gera þrátt fyrir að veðrið hafi
ekki verið með besta móti. Við höfum opið út
allan ágústmánuð og enn nóg af flottum fiski
eftir í tjörnunum, það þarf ekkert að panta,
bara mæta á svæðið í veiðiskapi,“ segir Gunn-
ar Blöndal á Akureyri sem rekur félagið Vík-
urlax við Ystu-Vík í Grýtubakkahreppi.
Félagið stofnaði hann árið 1994 og fram-
leiddi þá eldisfisk bæði á landi og í sjó. Hin
síðari ár hefur hann einbeitt sér að landeldi og
segir það koma vel út. Víkurlax býður einnig
upp á veiði yfir sumarmánuðina í tjörnum sem
útbúnar hafa verið á svæðinu. Þeir sem þar
renna fyrir fisk geta vænst þess að vænn
regnbogasilungur bíti á eða bleikja.
Gunnar segir að fiskur sé ýmist alinn upp í
kerjum eða tjörnum, en hann hefur byggt alla
aðstöðu upp sjálfur með aðstoð fjölskyld-
unnar. Þar eru nokkrar tjarnir og er sumar-
veiðin stunduð þar. Framleiðslan fer bæði í þá
veiði og einnig er fiskurinn reyktur og seldur
til verslana, veitingastaða og einstaklinga.
Einungis greitt fyrir veiddan fisk
„Við kaupum seiði, 5 til 10 gramma, og ölum
þau upp í 2ja til 3ja kílóa fiska. Það er hérna
sjálfrennandi vatn úr fjöllunum umhverfis
okkur sem við nýtum og hitastigið í stöðinni
er því aðeins breytilegt,“ segir Gunnar og
bætir við að engin sýklalyf séu notuð við fram-
leiðsluna þannig að hún sé holl og góð. „Enda
hefur öll okkar framleiðsla verið uppseld í
mörg ár.“
Aldarfjórðungur er frá því byrjað var að
bjóða upp á sumarveiði í Ystu-Vík og hefur
aðsókn farið vaxandi með hverju árinu sem
liðið hefur. Gunnar segir að ólíkt flestum
fyrirtækjum í ferðaþjónustu sé bróðurpartur
sinna viðskiptavina íslenskir ferðamenn.
Fyrirkomulagið er þannig að veiðimenn fá
stangir, beitu og flökun á staðnum án endur-
gjalds og greiða einungis fyrir veiddan fisk.
„Þetta er líklega eini staðurinn í heiminum
sem býður upp á slíka þjónustu,“ segir hann.
Þau 25 ár sem liðin eru frá því Gunnar hóf
þessa starfsemi hafa fjölmargir komið og
spreytt sig á veiðiskapnum, veiðimenn á öllum
aldri og segir hann virkilega gaman að hafa
tekið á móti þessum fjölda.
Afli og bros á vör
„Það er skemmtilegast að sjá fastagest-
ina, þá sem koma ár eftir ár. Sumir hafa
jafnvel komið sem krakkar til okkar með
foreldrum sínum og mæta svo með sín börn
til að gefa þeim kost á að upplifa það sama,“
segir hann. „Allir eiga það sameiginlegt að
fara frá okkur með afla og bros á vör.“
Synir Gunnars, Magnús og Orri, hafa starf-
að með honum við fyrirtækið og segir hann
það dýrmætt tækifæri. Þeir hafa einkum lagt
honum lið yfir sumarmánuðina þegar veiðin
stendur sem hæst og nú eru afastrákarnir
Pétur Breki og Uni Steinn að aðstoða afa
sinni á háannatíma.
„Þetta er sannkallað fjölskyldufyrirtæki
sem hefur gefið okkur mikið,“ segir Gunnar.
Öruggur silungsafli í Ystu-Vík
- Víkurlax býður upp á sumarveiði í Grýtubakkahreppi - Íslenskir ferðamenn bróðurpartur
gestanna - Aðeins er greitt fyrir veiddan fisk - Stangir, beita og flökun í boði án endurgjalds
Bros á vör Gunnar Blöndal með Gunn-
ari Áka Blöndal, barnabarni sínu.
Morgunblaðið/Margrét Þóra Þórsdóttir
Ysta-Vík Starfsemi Víkurlax fer fram við Ystu-Vík í Grýtubakka-
hreppi, en eigendur hafa byggt svæðið upp sjálfir í áranna rás.
Veiðimaður Ungur veiði-
maður rennir fyrir silung.