Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 47

Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 inn metnað fyrir húsagerð og skipulagi borgarhverfa. Magnús var öflugur félagi Oddfellow-reglunnar og var hon- um falið að sinna uppbyggingar- starfi á vegum hennar sem er í raun einstakt og varðaði bæði skipulag framkvæmda og fjáröfl- un þar sem reglan kom að. Hann var verkefnisstjóri við endurgerð líknardeildar Landspítalans, húsnæðis í Hlaðgerðarkoti, hús- næðis Ljóssins við Langholtsveg og sá um endurbyggingu þess merka húss sem er St. Jósefs- spítalinn í Hafnarfirði. Í öllum þessum stofnunum er frábær- lega vel gerð aðstaða nýtt til þess að veita góða þjónustu, sem vissulega er þakkarvert. Þökk sé þeim sem unnu þessi verkefni með Magnúsi Sædal á vegum Oddfellow-reglunnar. Magnús Sædal skipulagði margar ferðir sem tæknifræð- ingahópurinn fór í ásamt eigin- konum. Síðasta sumar var farið um sunnanverða Vestfirði undir leiðsögn hans en þá kom í ljós sem oftar hversu vel hann þekkti landið og sögu þess þegar hann sagði frá byggðum bólum á svæðinu. Sú ferð er mér eftir- minnileg. Ferðir með þeim vin- um Magnúsi Sædal og Vilborgu konu hans skilja eftir í huga mín- um frásagnargleði Magnúsar Sædal. Hann bar mikla virðingu fyrir atvinnu- og menningarsögu þjóðarinnar og þeim sem hafa staðið í stafni við mannvirkja- gerð og hönnun húsa hvort sem er á landsbyggðinni eða í höfuð- borginni sem hann bar svo mikla virðingu fyrir. Við Hallgerður viljum senda Vilborgu og börnunum innilegar samúðarkveðjur og minnumst Magnúsar Sædal með þakklæti og virðingu. Sturla Böðvarsson. Þegar þarf að koma hugmynd- um í verk, láta verkin tala, sýna að það sem sagt er eru ekki orðin tóm, heldur undirstaða að ein- hverju sem á að standa og vera fólki til góðs í nútíð og framtíð er gott að hafa átt félaga sem hefur ekki hikað við að ráðast í verk- efnin. Félaga sem hefur undirbú- ið þau, fylgt þeim eftir, fengið fólk til liðs við sig og séð til þess að vel hafi verið að verki staðið. Oddfellow-reglan á Íslandi hefur verið svo lánsöm að hafa átt Magnús Sædal að í fjölmörgum verkefnum sem unnið hefur verið að á undanförnum árum í nafni hennar. Þar nægir að nefna líkn- ardeildina, Ljósið, Hlaðgerðar- kot og nú síðast 3. hæð St. Jós- efsspítalans. Þegar ég átti samtal við Magnús nokkrum dögum áð- ur en hann kvaddi okkur nefndi ég við hann að hann gæti verið stoltur af sínum verkum sem unnin hafa verið í nafni reglunn- ar. Hann sagðist vilja leiðrétta mig. Það er ekki ég sem get verið stoltur, sagði hann, það erum við Oddfellowar sem getum verið stoltir. Þetta lýsir Magnúsi vel, hann hugsaði málin ekki út frá sjálfum sér heldur út frá heild- inni. Mangús starfað ötullega í Oddfellowreglunni alla tíð frá því hann gerðist félagi. Hann var af- ar virkur í starfinu í öll þau nær 37 ár sem hann var félagi, sinnti fjölda verkefna fyrir þær reglu- deildir sem hann var félagi í, hann hélt okkur við efnið, upp- lýsti okkur, fræddi okkur og var fylginn sér í öllum málflutningi. Það var svo sannarlega hlustað þegar hann tók til máls. Fyrir störf sín var Magnúsi sýndur ýmis verðskuldaður heiðursvott- ur og sómi. Ég átti þess kost að kynnast Magnúsi persónulega og í góðum félagsskap var hann afar skemmtilegur, þar féllu gullkorn og oft voru þar önnur korn líka höfð um hönd. Við vissum hvar við höfðum Magnús, hann stóð fast á sínu, hlustaði samt alltaf á rök annarra, ræddi mál og var hugmyndaríkur, einstaklega fróður og vinnusamur. Í ferðum var hann oft kallaður til að vera leiðsögumaður, kunni skil á landi og sögu, var góður ferðafélagi. Ævistarfi Magnúsar munu aðrir gera skil en framlag hans til sam- félagsins var ríkulegt og farsælt. Heimsókn til byggingarfulltrú- ans í Reykjavík hjá nýútskrifuð- um tæknifræðingi er mér eftir- minnileg, það var reisn yfir embættismanninum og hann tók vel á móti þeim er átti við hann erindið. Hafðu þakkir fyrir störf þín og leiðsögn við mig persónulega og aðra í okkar félagsskap og fyrir hönd þeirra regludeilda sem þú starfaðir í, stúkunnar þinnar og Oddfellow-reglunnar allrar eru þér færðar þakkir fyrir þitt framlag, ástundun og þátttöku. Etirlifandi eiginkonu þinni, Vil- borgu S. Gestsdóttur, eru færðar innilegar samúðarkveðjur og allri fjölskyldunni. Við eigum góðar minningar sem ylja. Guðmundur Eiríksson (stórsír). Sterkur og kærleiksríkur vin- ur, Magnús Sædal, er horfinn af heimi. Við kynntumst fyrst, er ég jarðsöng tengdaföður hans 1982. Þegar ég var ráðinn staðarhald- ari í Viðey 1988 var Magnús deildarstjóri tæknisviðs Borgar- verkfræðings og hafði sem slíkur verið byggingarstjóri endur- reisnar Viðeyjarstofu og -kirkju. Eins og venjulega hafði hann skráð verkferilinn allan bæði skriflega og með myndum sem hann tók sjálfur. Það var því eitt af mínum fyrstu embættisverk- um að þiggja, ásamt Dagbjörtu eiginkonu minni, heimboð til Magnúsar og Vilborgar, hans hæfileikaríku konu. Auk þess að þiggja hlýju og góðgerðir þess- ara yndislegu hjóna fengum við þarna í myndum og máli ein- hvern besta mögulegan undir- búning að starfinu fram undan. Síðast en ekki síst var þarna stofnað til vináttu sem hefur ver- ið studd bæði af kærleika og sannleika. Ég er löngu hættur að sinna prestsverkum en hefði ég átt að mæla eftir Magnús vin minn í dag þá hygg ég að ekki hefði komið nema einn prédikunar- texti til greina: „Verið ekki hálf- volgir í áhuganum, verið brenn- andi í andanum, Þjónið Drottni.“ (Róm. 12, 11) Páll postuli segir einnig: „Stunda þetta. Ver allur í þessu.“ Magnús Sædal holdi klæddi þennan mikilvæga boð- skap postulans. Hann gerði það árin öll sem við unnum saman fyrir Viðey og mér er það full- kunnugt að hann gerði það einn- ig í síðasta verkefni sínu, end- urbyggingu St. Jósefsspítalans í Hafnarfirði, en þar var hann á vegum Oddfellowa. Kjörorð Odd- fellow-reglunnar er Vinátta – kærleikur – sannleikur. Ég veit, að þeir geta ekki verið margir sem hafa virkjað þessi orð betur í eigin lífi en Magnús Sædal. Okkar síðustu samskipti voru er hann leitaði til mín um fróðleik vegna skráningar á myndasafni hans um Viðey. Hann vildi að þar færi allt rétt frá hans hendi við ævilok. Þannig lokaði hann hring. Sá hringur er vinátta okk- ar og vegna þess að hún er hring- ur á hún ekki lengur upphaf og endi. Hún er og verður hringlaga stærð í djúpi eilífðarinnar. Magnús Sædal var ekki full- kominn. Hann var skapmikill en ætíð drengur góður. Það er sterkast að hann var hvergi hálf- volgur í áhuganum. Hann var ætíð brennandi í andanum og vildi þjóna Drottni lífsins með því að leggja það sem hann átti af mörkum til betra lífs, æðri hug- sjóna. Hann var vinum sínum sá klettur sem við þurfum öll að eiga til að standa með okkur í leitinni að sannleikanum og kær- leikanum í lífinu. Konan mín bað um að mega vera með í þökk minni til hans fyrir þetta allt. Því segjum við bæði: Guð blessi góðan dreng og gefi ástvinum hans huggun í trúnni á líf eftir líf. Dagbjört og Þórir Stephensen. Fallinn er frá góður vinur minn, samstarfsmaður og ná- granni til margra ára. Við Magn- ús kynntumst fyrst þegar við og fjölskyldur byggðum hús okkar í Máshólum í kringum 1980. Við áttum síðar eftir að kynnast vel á vettvangi borgarstjórnar, allt frá 1982 til 2010. Á þeim vettvangi vorum við nánir samstarfsmenn. Magnús var einstaklega farsæll í starfi byggingarfulltrúa borgar- innar, útsjónarsamur og ráða- góður. Hann leysti viðfangsefni sín af hendi með vönduðum og yfirveguðum hætti og var ótrú- lega fljótur að finna lausnir á erf- iðum viðfangsefnum. Allir sem unnu með Magnúsi treystu honum til góðra verka. Hann var ekki einungis yfirmað- ur heldur samherji undirmanna sinna sem hann hvatti sífellt til góðra og vandaðra verka. Þetta verklag hans átti við í öllum við- fangsefnum sem hann tók að sér, sama á hvaða vettvangi það var. Magnús var ávallt tilbúinn til að hjálpa og aðstoða þá sem leituðu til hans við úrlausn erfiðra bygg- ingarmála og ýmissa annarra verkefna. Hann var mjög lausn- armiðaður í störfum sínum og lagði sig fram um að leysa snúin byggingarmál með farsælum hætti ef minnsti möguleiki var til þess. Eftir að Magnús lauk störfum hjá Reykjavíkurborg árið 2011 tók hann að sér í sjálfboðavinnu margvísleg byggingarverkefni, m.a. fyrir Samhjálp og einnig líknardeildina í Kópavogi, sem Oddfellow fjármagnaði. Það var mikil gæfa fyrir Reykjavíkurborg að hafa Magn- ús sem byggingarfulltrúa sinn í áratugi. Nú er hann allur eftir erfið veikindi. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir vináttu hans. Ég þakka honum afar farsælt samstarf og góða samveru ávallt. Blessuð sé minn- ing hans. Eiginkonu hans Vilborgu og fjölskyldu hans allri sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Í dag kveð ég kæran vin minn Magnús Sædal Svavarsson fyrr- verandi byggingafulltrúa í Reykjavík. Magnúsi kynntist ég í gegnum föður minn Gunnlaug Pálma Steindórsson, en þeir áttu langt og farsælt samstarf um húsbyggingu okkar Oddfellowa við Vonarstræti 10 og komu þeir m.a. að stækkun hússins fyrir rúmum tveimur áratugum síðan. Leiðir okkar Magnúsar hafa legið saman við mörg stórverk- efni Oddfellow-reglunnar undan- farin ár á vettvangi Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa. Þar vil ég fyrst nefna aðkomu Oddfel- low-reglunnar að líknardeild Landspítalans í Kópavogi en þar stjórnaði Magnús sem verkefn- isstjóri þessu mikla verkefni, sem var kaflaskipt á árunum 1997 til 1999, 2006 til 2007 og 2012. Þá tók Oddfellow-reglan að sér, með Magnús sem verkefn- isstjóra í fararbroddi, stækkun og endurbætur á húsnæði Ljóss- ins, endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda og að- standendur þeirra, við Lang- holtsveg 43 árið 2015. Fimm ár- um síðar var hann byggingarstjóri á frágangi á fær- anlegum húsum Ljóssins við Langholtsveg 47. Á árunum 2017 til 2019 tók Magnús að sér byggingar- og framkvæmdastjórn við nýbygg- ingu og endurbætur á húsnæði við meðferðarheimilið Hlaðgerð- arkot, sem rekið er af Samhjálp og Oddfellow-reglan studdi við fjárhagslega ásamt mörgum öðr- um. Magnús var okkur Ólöfu og Heiðari í framkvæmdaráði Styrktar- og líknarsjóðs Oddfell- owa ávallt reiðubúinn til aðstoð- ar. Fengum við hann m.a. til ráð- gjafar við endurbætur á Hetjulundi, hvíldarheimili Styrktarfélags krabbameins- sjúkra barna í Landssveit. Af því tilefni fórum við austur, þar sem við hittum byggingastjórann og ráðgjafa verkefnisins. Síðasta verkefnið þar sem Magnús tók að sér bygginga- stjórn, var stórvirki Oddfellow- reglunnar í St. Jósefsspítala í Hafnarfirði, að endurbyggja og innrétta þriðju hæðina til stuðn- ings Alzheimer- og Parkinson- samtökunum á Íslandi. Var sam- tökunum afhent húsnæðið fullbúið með innanstokksmunum snemma í vor. Magnús sagði mér síðar að faðir hans, Svavar Sigfinnsson múrarameistari, hefði stigið sín fyrstu skref sem múrari, við að leggja marmaratröppurnar á St. Jósefsspítala við byggingu fyrsta hluta hans 1926-1927. Hafði Magnús mikinn áhuga á að halda í nær aldar gamalt svipmót hæð- arinnar t.d. með bogadregnu veggjunum á ganginum og vali á ljósabúnaði enda afraksturinn glæsilegur. Í þessum verkefnum átti Magnús sína traustu hægri hönd, Pétur J. Haraldsson húsa- smíðameistara, og verður þeim félögum seint þakkað allt þeirra framtak, svo ekki sé talað um framlag þeirra beggja enda öll þeirra vinna unnin í sjálfboða- vinnu. Ég minnist vinar míns með þakklæti í huga. Þakklæti að hafa fengið að njóta vináttu hans, verkvits og ráðlegginga. Ég þakka vini mínum að fá að njóta framsýni hans og að sýna mér skilning á bróðurkærleika og vin- áttu. Fyrir hönd Styrktar- og líkn- arsjóðs Oddfellowa sendi ég fjöl- skyldu Magnúsar mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Steindór Gunnlaugsson, formaður Styrktar- og líknarsjóðs Oddfellowa. Magnús Sædal Svavarsson var sannkölluð himnasending fyrir Samhjálp og meðferðarheimilið í Hlaðgerðarkoti. Hann kom til liðs við okkur þegar mikið verk var fyrir höndum og gerði kraftaverk. Elsti hluti heimilisins var löngu ónýtur og við þurftum að endurnýja húsið. Þjóðin sýndi rausn sína við okkur í landssöfn- un á Stöð 2 haustið 2015. Ístak var í hópi þeirra sem studdu okk- ur og þeir byrjuðu að reisa nýja húsið vorið 2016. Það var bygg- ingarstjóri á húsinu, en ég hafði samt ákveðnar áhyggjur af þess- ari miklu framkvæmd. Frændi minn, sem er í Oddfellow-regl- unni, kom til mín og sagði: „Ég þekki mann og ef þú færð hann sem byggingarstjóra, þá þarftu ekki að hafa neinar áhyggjur!“ Maðurinn var Magnús Sædal sem var stúkubróðir frænda. Ég hringdi í Magnús og spurði hvort hann vildi hitta mig í Hlað- gerðarkoti. Hann þáði boðið og skoðaði húsið og framkvæmdirn- ar. Ég spurði hvort hann vildi verða byggingarstjóri að nýja húsinu. Hann hugsaði sig um og sagði svo: „Vörður, ég skal taka verkið að mér og það verður ykk- ur að kostnaðarlausu.“ Við geng- um frá nauðsynlegum pappírum og það stóðst að Magnús tók ekki krónu en lagði sjálfur heilmikið fram í vinnu, akstri og fleiru. Þegar þarna var komið var bú- ið að reisa forsteyptar veggjaein- ingar og límtrésbita þaksins. Smiðirnir voru byrjaðir að setja sperrur á milli bitanna þegar Magnús, nýtekinn við, kom og bað þá að taka sperrurnar niður. Hann sagði: „Einangrunin á að passa á milli sperranna. Það er óþarfi að skera af henni. Það á ekki að bruðla með efnið!“ Mér finnst þetta lýsandi fyrir hvernig Magnús var. Nákvæmur, útsjón- arsamur, nýtinn og vissi upp á hár hvað hann var að gera. Smið- irnir gerðu eins og Magnús mælti fyrir um og einangrunin nýttist til fulls. Annað dæmi um nákvæmni Magnúsar var þegar við Kornelíus bróðir minn skrúf- uðum upp þakkantinn á húsinu. Við það voru notaðar sérstakar skrúfur sem Magnús keypti. Þegar verkinu lauk vantaði eina skrúfu! Líklega höfðum við bræðurnir týnt henni. Söfnunarféð var að ganga til þurrðar. Ég sagði við Magnús að það stefndi í að við þyrftum að stöðva framkvæmdirnar. Þá hvatti hann mig til að skrifa tveimur áhrifamönnum í Oddfel- low og bjóða þeim í Hlaðgerð- arkot. Þeir komu og hittu okkur í nýbyggingunni. Við lýstum því hvernig staðan var og hvað vant- aði til að ljúka verkinu. Það varð úr að Oddfellow ákvað að styrkja Hlaðgerðarkot svo um munaði. Magnús var öflugur liðsmaður í hópi reglubræðra sinna og sá stuðningur varð til þess að við gátum lokið byggingunni og frá- gangi lóðarinnar. Magnús var mikill vinur okkar og alltaf mjög sannur og trúr. Ævinlega boðinn og búinn að hjálpa til. Við áttum saman bænastundir og lögðum málin í hendur Guðs. Við Ester fluttum til Noregs eftir að ég fór á eftirlaun og hætti sem framkvæmdastjóri Samhjálpar. Við komum heim um síðustu jól og þá hittumst við Magnús. Hann var þá orðinn veikur. Við áttum góða endur- fundi og fyrir það er ég þakk- látur. Ég bið Guð að blessa minn- ingu Magnúsar Sædal og hugga og styrkja eiginkonu hans og aðra ástvini. Vörður Leví Traustason, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Samhjálpar. Einstakur maður hefur kvatt þessa jarðvist. Við hjá Samhjálp syrgjum góðan vin og velunnara til margra ára. Magnús Sædal var sannkölluð himnasending fyrir Samhjálp og reyndist stuðningur hans ómetanlegur við byggingu og endurbætur hús- næðis á meðferðarheimilinu Hlaðgerðarkoti í Mosfellsdal. Sem byggingarstjóri var hann alltaf boðinn og búinn að hjálpa og leiðbeina okkur sem minna vissum, enda voru byggingar hans ær og kýr. Hann kom ávallt fram af virðingu og þolinmæði. Við kveðjum Magnús með sökn- uði og minnumst hans með hlýju í hjarta. Stjórn og starfsfólk Samhjálp- ar vottar eftirlifandi eiginkonu Magnúsar, fjölskyldu, vinum og samverkafólki í Oddfellow dýpstu samúð. Blessuð sé minn- ingin um góðan mann. „Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.“ F.h. Samhjálpar, Edda Jónsdóttir framkvæmdastjóri. Ég var heppinn sem ungur landslagsarkitekt á garðyrkju- deild Reykjavíkur að fá tækifæri til að vinna með Magnúsi Sædal. Magnús hafði stýrt uppbyggingu Húsdýragarðsins sem hafði tek- ist vel og í framhaldinu voru uppi áform um að bæta við einhvers konar skemmtigarði. Magnús hafði verið í Noregi og komið í Hunderfossen familiepark við Lillehammer og taldi að þar gæti verið ákjósanleg fyrirmynd að garði í Laugardal. Magnús vann hugmyndinni fylgi hjá borgaryf- irvöldum og farið var til Lille- hammer að skoða garðinn, ásamt Jóhanni Pálssyni garðyrkju- stjóra. Vinna við hönnun Fjöl- skyldugarðsins var mikið ævin- týri fyrir mig en Magnús hélt í alla spotta styrkri hendi. Rétt eins og hann gerði við fjölmörg önnur verkefni s.s. Borgarleik- húsið, Viðey og fjölmörg önnur verkefni. Eftir að hann lauk störfum hjá borginni hélt hann áfram að stýra verkefnum, m.a. á vegum Oddfellow og fórst allt saman vel úr hendi. Ég heimsótti Magnús nýlega og þá var hugurinn enn á fullu þó úthaldið væri lítið. Við ræddum bæði verkefni sem hann hafði tekið saman upplýsingar um og skilað til borgarinnar og líka verkefni sem hann taldi að þyrfti að fylgja eftir og setti mér fyrir nokkur atriði. Þá ræddum við málefni TBO, félags sem skipað er borgarstarfsmönnum, sem hann var lengi í forsvari fyrir og var þar sæmdur viðurkenningum fyrir störf sín. Magnús var traustur og ráða- góður félagi, bæði í starfi og hjá TBO. Hann var mjög fróður og gat verið hrókur alls fagnaðar. Minningin lifir um góðan dreng. Ég flyt kveðjur frá TBO fé- lögum og sendi Vilborgu og fjöl- skyldu innilegar samúðarkveðj- ur. Þórólfur Jónsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR ANDRÉS INGIMUNDARSON, bóndi á Hrísbrú, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ sunnudaginn 17. júlí. Útförin fer fram frá Mosfellskirkju föstudaginn 12. ágúst klukkan 12. Ásgerður Gísladóttir Andrés Ólafsson Hólmfríður Ólafsdóttir Gísli Þór Ólafsson Bára Benediktsdóttir Elínborg Jóna Ólafsdóttir Aðalsteinn Ómarsson Ingibjörg Ólafsdóttir Valdimar Hjaltason Ingimundur Ólafsson Sigrún Bjarnadóttir og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, KRISTJÁN GUÐBJARTSSON BERGMAN, Vesturbrún 39, andaðist á heimili sínu umvafinn ástvinum laugardaginn 30. júlí. Þóranna Þórarinsdóttir Þórarinn Jóhann Kristjánsson og Jónína Gísladóttir Guðbjartur Kristjánsson Bergman Vilborg Þóranna Kristjánsdóttir Bergman barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.