Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 51
Justikal leitar að öflugum markaðsstjóra með mikinn
drifkraft. Justikal er nýsköpunarfyrirtæki sem hefur
þróað lausn fyrir stafrænt réttarkerfi. Justikal er í
miklum vexti og erum við að leita að einstaklingi sem
vill taka þátt í vaxtarvegferð félagsins sem kann að
hafa mikil áhrif hér á landi og á erlendum mörkuðum.
Markmið Justikal er að gera málsmeðferð fyrir dóm-
stólum hraðari, gagnsærri og öruggari. Auk þess að
lækka málskostnað aðila, gera dómstóla aðgengilegri
og störf lögmanna enn skilvirkari.
Starfið gefur tækifæri á að hafa veruleg áhrif á framtíð
félagsins og markaðarins sem það starfar á, enda fram-
undan stór og spennandi verkefni fyrir markaðsstjóra.
Við bjóðum vinnu í skemmtilegu starfsumhverfi með
metnaðarfullu og faglega sterku samstarfsfólki.
Um er að ræða 100% starf og mikilvægt er að
umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Mótun markaðsáætlunar
• Ábyrgð á framkvæmd, útfærslu og eftirfylgni
markaðsáætlunar
• Ábyrgð og umsjón með gerð markaðs-, kynningar-
og auglýsingaefnis
• Samskipti við fjölmiðla, samstarfsaðila og
hagsmunaaðila
• Þátttaka í stefnumótun og hugmyndavinnu
• Önnur tilfallandi verkefni á sviði markaðsmála
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun eða önnur menntun sem nýtist í
starfi
• Reynsla af markaðsstörfum
• Reynsla af skipulagningu og framkvæmd
markaðsherferða
• Fagmennska, frumkvæði og drifkraftur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
• Framúrskarandi samskiptahæfni
• Þekking úr réttarkerfinu er kostur
Umsóknum skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf
þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Umsóknum skal skila með tölvupósti á
info@justikal.com eða á justikal.alfred.is.
Umsóknarfrestur er til og með
22. ágúst 2022.
Markaðsstjóri Kennari/
stuðningsfulltrúi
Laugargerðisskóli í Eyja og Miklaholts-
hreppi, auglýsir eftir kennara í heila stöðu
og stuðningsfulltrúa í 100% starf
Um er að ræða umsjón með yngra stigi (1.-5. bekk)
og stuðningsfulltrúa hjá sama hóp.
Laugargerðisskóli er fámennur grunnskóli mitt á milli
Borgarness og Stykkishólms. Hér nýtum við okkur
jákvæðan aga og erum heilsueflandi skóli. Áhersla er
á einstaklingsmiðað nám þar sem áhugi, frumkvæði
og styrkleikar hvers og eins eru nýttir í leik og starfi.
Á staðnum er gott íþróttahús og sundlaug.
Húsnæði er í boði á staðnum.
Kaup og kjör eru samkvæmt kjarasamningum.
Umsóknarfrestur er til og með 10. ágúst 2022 og
skal skila umsóknum rafrænt til skólastjóra.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma 897 3605
eða í tölvupósti: skolastjori@laugargerdisskoli.is
Sigurður Jónsson, Skólastjóri.
Sérfræðingur á skrifstofu
fjárlaga og innri þjónustu
Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings á skrifstofu fjárlaga og innri þjónustu. Um er að
ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð, sjálfstæði og
góð samskipti.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Fjárlagagerð, rekstrar- og framkvæmdaáætlanir og eftirlit með framkvæmd fjárlaga.
- Mat á kostnaðaráhrifum lagafrumvarpa og reglugerða.
- Áætlanagerð, kostnaðargreining og kostnaðareftirlit.
- Greining og úrvinnsla gagna.
- Þátttaka í stefnumótun í málaflokkum ráðuneytisins í samstarfi við fagskrifstofur og stofnanir ráðuneytisins.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Háskólamenntun í viðskiptafræði, hagfræði eða önnur sambærileg menntun. Framhaldsmenntun er kostur.
- Færni í meðferð, greiningu og úrvinnslu gagna.
- Þekking og reynsla af áætlanagerð, kostnaðargreiningu og kostnaðareftirliti.
- Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót.
- Færni til að geta unnið sjálfstætt á skipulagðan og agaðan hátt.
- Færni í miðlun upplýsinga í mæltu og rituðu máli.
- Góð kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er kostur.
- Þekking og reynsla úr stjórnsýslunni og af fjárlagagerð er kostur.
- Þekking á fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er kostur.
- Þekking og reynsla af teymisvinnu og verkefnastjórnun er kostur.
Starfið heyrir undir skrifstofu fjárlaga og innri þjónustu en hlutverk skrifstofunnar er að hafa heildaryfirsýn yfir fjármál
og rekstur ráðuneytisins og stofnana þess, tryggingarliða og annarra viðfangsefna sem heyra undir ráðuneytið. Þá
leggur skrifstofan mat á hagkvæmni verkefna og þann kostnað sem kann að hljótast af lagafrumvörpum á ríkissjóð.
Skrifstofan ber ábyrgð á gerð fjárlaga, rekstrar- og framkvæmdaáætlana og hefur eftirlit með framkvæmd fjárlaga auk
þess að hafa umsjón með kostnaðarþátttöku notenda í heilbrigðisþjónustu.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra
starfsmanna stjórnarráðs hafa gert. Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Áhugasamir einstaklingar
eru hvattir til að sækja um starfið óháð kyni. Sótt er um starfið á Starfatorg.is og með umsókn skal fylgja afrit af
prófskírteinum, ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig
umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.
Umsóknarfrestur er til og með 15. ágúst 2022 og starfshlutfallið er 100%
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex
mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. reglur nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum með síðari
breytingum.
Upplýsingar um starfið veitir
Runólfur Birgir Leifsson, skrifstofustjóri á runolfur.leifsson@hrn.is
og Kristín Helgadóttir, mannauðsstjóri á kristin@hrn.is Stjórnarráð Íslands
Heilbrigðisráðuneytið