Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 55

Morgunblaðið - 04.08.2022, Page 55
DÆGRADVÖL 55 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022 LC02 Leður Verð frá 329.000,- CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. HÆGINDASTÓLL Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is „MÉR SKILST AÐ ÞEIR SÉU AÐ VENJA ÞIG AF VERKJALYFJUNUM MEÐ HJÁLP SJÁLFSDÁLEIÐSLU.“ „EKKI SKIL ÉG HVERS VEGNA ÞÚ ELSKAR NÁTTÚRUNA EFTIR ALLT SEM HÚN HEFUR GERT ÞÉR.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera fimmtug og í toppformi. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann GETTU HVAÐ, GRETTIR?! ÉGÆTLA AÐ FARA ÚT AÐ DANSA MEÐ LÍSU KLUKKAN ÁTTA! HVAR ER NÚ HVÍTA BELTIÐ MITTOG GULLKEÐJURNAR?! SJÁUMST KLUKKAN 8.05 HRÓLFUR! EKKI TAKA ÞESSU ILLA, EN … BÍDDU! MUN MÉR LÍKA ÞAÐ SEM ÞÚÆTLAR AÐ SEGJA EF ÉG TEK ÞVÍ VEL? LÍKLEGA EKKI. Ólafur Stefánsson orti á Boðn- armiði á sunnudag: Versló-Krónika Meðan víða í Vestmannaeyjum, vindur skekur tjöldin smá, rifnar jörð á Reykjanesi rekast þungir flekar á. Kvikuslumma að leið út leitar, logar snart af hárri brík, og það sést þá langar leiðir, líka úr stóru Reykjavík. Um helgina er hálfflutt þjóðin, hristist yfir sand og dal. Þó að snjói og snarpur vindur snýti hreggi í fjallasal, samt skal úti halda hátíð, hita sér við dreggjavín. Margir enda í morgunsárið í meyjarfylgd í tjald til sín. Enginn lengur þarf nú þunnur með þrautum vakna, svo er vel. Auglýst lyf sem öllu bjargar, engin timburþynnkuskel. Svo er helgin allt í einu, orðin minning, þáttaskil. Til næsta árs ef ennþá tórum, ákaft skulum hlakka til. Helgi R. Einarsson sendi mér góð- an póst: „Sæll, Halldór! Allt færist smám saman í fyrra horf og er það gott að flestu leyti.“ Endurkoma Loksins m.ö.o. allt verður gott sem forðum, duflað, sungið og dansað, drukkið og löngunum ansað. Víða vaða menn elgina verslunarmannahelgina. Jón Atli Játvarðarson skrifaði: „Veðurspáin fyrir verslunarmanna- helgina hrökklaðist á milli veður- fræðinganna, þar til loksins Hrafn tók að sér að flytja þjóðinni boðskap- inn. Ekki öfundsverður, blessaður kallinn.“ Krummi svo krunkað’ í vindinn, að kjaftstopp varð einhver, mjög fyndinn, fór þar með spaug og firnin öll laug, þá fyrst loksins mögnuð varð myndin. „Gestagangur. Örsögur“ er ný bók eftir Sigurlínu Hermannsdóttur: Ef sækir að þér eymd og angur og ekkert virðist kæta tilvalinn er Gestagangur geðið til að bæta. Guðmundur Arnfinnsson á Boðn- armiði, – Lítill svefnfriður: Geisa skjálftahrinur harðar, hræðsla grípur mig og þig. Andskotinn í iðrum jarðar er að gera vart við sig. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Skjálftahrinur og Gestagangur Þetta er líklega það skemmtilegasta sem ég hef fengist við, en brjál- æðisleg vinna og við hjónin ákváðum að verða hundlaus þegar hundarnir fóru. Svo verður að játa að þegar ald- urinn er aðeins farinn að færast yfir er ekkert grín að vera með sex til tíu vel þjálfaða gaura fyrir framan sig.“ Fjölskylda Eiginkona Haraldar er Erna Sigurbjörg Arnardóttir, f. 19.5. 1962, hárgreiðslumeistari og rekur eigin stofu. Þau eru búsett í Tungusíðu á Akureyri. „Við kynntumst í Dyn- heimum á Akureyri 1979, sem var mér mikið gæfuspor.“ Foreldrar Ernu voru hjónin Örn Steinþórsson, f. 1.12. 1931, d. 4.9. 1980, prentari á Akureyri, og Helga Kristín Magnús- dóttir, f. 13.11. 1929, d. 11.5. 2017, húsfreyja á Akureyri. Börn Haraldar og Ernu eru 1) Sonja, f. 22.4. 1986, grafískur hönn- uður, búsett í Reykjavík. Maki henn- ar er Reynir Albert Þórólfsson, f. 28.2. 1981. Börn þeirra eru Matthías Örn, f. 26.1. 2019, og Móa, f. 7.5. 2020; 2) Örn, f. 2.9. 1990, tölvunarfræð- ingur, búsettur í Gautaborg. Maki hans er Alexandra Rögnvaldsdóttir, f. 7.7. 1989. Dætur þeirra eru Júlía, f. 21.6. 2012, Katrín, f. 8.11. 2014, og Saga, f. 28.5. 2022. Systkini Haraldar: Ólafur Örn Ólafsson, f. 19.9. 1959, viðskiptafræð- ingur, búsettur í Reykjavík, Steinþór Valur Ólafsson, 25.6. 1960, athafna- maður, búsettur í Reykjavík, og Ing- unn Björg Ólafsdóttir, f. 4.7. 1966, d. 5.8. 2004, verkakona á Akureyri. Foreldrar Haraldar: Ólafur Hrafn Ólafsson, f. 17.4. 1933, d. 28.8. 2002. húsasmiður á Akureyri, og Hjördís Dísmundsdóttir, f. 3.5. 1939, lífs- kúnstner á Akureyri. Haraldur Óskar Ólafsson Jóhanna Álfheiður Bergsdóttir húsfreyja í Engimýri, síðar verkakona á Akureyri Haraldur Sigurðsson bóndi í Engimýri í Öxnadal, síðar verkamaður á Akureyri Sesselja Haraldsdóttir húsfreyja á Þverbrekku og Akureyri Jón Dísmundur Brynjólfsson bóndi á Þverbrekku í Öxnadal, síðast bús. á Akureyri Hjördís Dísmundsdóttir lífskúnstner á Akureyri Guðrún Guðnadóttir húsfreyja á Gilsbakka Brynjólfur Eiríksson bóndi og barnakennari á Gilsbakka í Austurdal, Skagafirði Anna Björg Benediktsdóttir húsfreyja á Upsum Þorsteinn Jónsson bóndi á Upsum í Svarfaðardal Hólmfríður Ingunn Þorsteinsdóttir húsfreyja á Akureyri Jón Ólafur Jónsson veitingaþjónn í Reykjavík Sígurlína Magnea Einarsdóttir húsfreyja í Reykjavik Jón Einarsson sjómaður í Reykjavík Ætt Haraldar Ólafssonar Ólafur Hrafn Ólafsson húsasmiður á Akureyri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.