Morgunblaðið - 04.08.2022, Side 58
58 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
58
Til hamingju - þú hefur fundið happatöluna!
Farðu inn á mbl.is/happatölur, fylltu út upplýsingar um þig og sláðu inn Happatöluna.
Vinningshafar verða dregnir út í þættinum Ísland Vaknar á K100 í fyrramálið.
Að sjálfsögðu hvetjum við þig til að tala þátt á hverjum fimmtudegi, því það er til mikils að vinna.
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Viðtökurnar hafa verið vonum
framar og alveg stórkostlegar. Ég
hef blessunarlega oft fengið góðar
viðtökur á mínum ferli en ekkert
þessu líkt. Ég átti nú ekki von á
svona miklum látum en að sumu
leyti get ég sagt að ætlunarverk mitt
hafi tekist. Ég er búinn að stefna að
þessari stund árum saman. Ég ætl-
aði mér stóra hluti með þessu og ég
sé ekki betur en að það sé að takast,“
segir Ólafur Kjartan Sigurðarson
barítón sem hefur vakið athygli fyrir
flutning sinn á hlutverki dvergsins
Aberich í Niflungahring Wagners á
Bayreuth-hátíðinni í Þýskalandi.
„Alltaf þegar það er nýr hringur
og nýjar frumsýningar á Bayreuth
þá fer heimspressan alveg á hliðina.
Þetta vekur alveg gríðarlega at-
hygli. Það sem ég hef séð sjálfur um
frumsýninguna á Rínargullinu er
meira og minna allt á sama veg. Ég
virðist fá hvað mesta umfjöllun af
söngvarahópnum.“
Niflungahringurinn saman-
stendur af fjórum óperum og þegar
rætt var við Ólaf var búið að sýna
fyrstu tvær, Rínargullið og Valkyrj-
una. Heildarumfjöllunar um hina
nýstárlegu uppsetningu á verkinu er
því enn beðið en Ólafur hlýtur mikið
lof í þeirri umfjöllun sem birt hefur
verið nú þegar.
Í grein gagnrýnanda The Guard-
ian er Ólafur sagður bera af í hlut-
verki Alberich. Gagnrýnandi þýsku
fréttaveitunnar dpa segir hann hafa
verið í uppáhaldi hjá áhorfendum,
honum hefði verið fagnað manna
mest fyrir bæði leik sinn og söng.
Markus Thiel hjá þýska blaðinu
Merkur segir Ólaf hafa með flutn-
ingi sínum gert Alberich að mið-
punkti í verkinu.
Ólýsanlega mikilvægt
„Ég er fyrst og fremst alveg óend-
anlega þakklátur fyrir þessar ótrú-
legu viðtökur, fyrir það að það sé
tekið eftir því þegar maður gerir vel.
Svona skrif í fjölmiðlum eru bara
olía á eldinn fyrir mig. Þetta er alveg
ólýsanlega mikilvægt fyrir minn fer-
il. Svona mikil athygli nýtist mér og
minni umboðsskrifstofu til þess að
fleyta mér enn frekar áfram í brans-
anum. Vinna mín hér á Bayreuth er
þegar farin að skila sér með mjög
beinum hætti inn í mína dagbók.“
Ólafur syngur á Bayreuth-
hátíðinni út ágúst og mun snúa aftur
á hana á hverju sumri í það minnsta
til ársins 2025. Þess utan mun hann
á næstunni taka þátt í sýningum á
Rigoletto í Svíþjóð, Toscu við
óperuna í Leipzig í Þýskalandi og
Lohengrin í Bologna á Ítalíu svo
eitthvað sé nefnt. Hann mun síðan
syngja í fyrsta skipti við Scala-
óperuna í Mílanó haustið 2023.
Svo virðist sem óperuheimurinn
sé að taka við sér eftir Covid en Ólaf-
ur segir þó að enn séu miklar var-
úðarráðstafanir á hátíðinni og þar
hafi komið upp smit. „Alvarlegasta
afleiðingin var sú að hljómsveitar-
stjórinn Pietari Inkanen, sem átti að
stjórna hringnum, veiktist hastar-
lega af Covid tveimur vikum fyrir
frumsýningu og þurfti að gefa frá
sér verkefnið sem hann hefur unnið
að í tvö ár. Annar hljómsveitarstjóri
stökk inn á síðustu stundu. Það er
náttúrulega hrikalegt að sjá þetta
gerast. En maður finnur að bransinn
er að komast á lappirnar hægt og
rólega aftur.“
Ólafur átti að taka þátt í uppsetn-
ingu á Valkyrjunni hérlendis sem
var hætt við vegna faraldursins. „Ég
vonast til þess að fá að gaula fyrir
landann áður en langt um líður.“
Bayreuther Festspiele/Enrico Nawrath
Grimmilegur Ólafur Kjartan Sigurðarson í hlutverki dvergsins Alberich.
„Fyrst og fremst alveg
óendanlega þakklátur“
- Ólafur Kjartan vekur athygli á Bayreuth-hátíðinni
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Ég ætla að rölta með fólk um
miðbæ Reykjavíkur og stoppa á
nokkrum stöðum sem eru sögusvið í
íslenskum hinsegin bókmenntum af
ýmsu tagi,“ segir Ásta Kristín Bene-
diktsdóttir bókmenntafræðingur
sem mun leiða gesti um söguslóðir
hinsegin bókmennta í kvöld, fimmtu-
dag, kl. 20.
Viðburðurinn er hluti af kvöld-
göngudagskrá Borgarbókasafnsins
og dagskrá Hinsegin daga. Lagt
verður af stað frá Borgarbókasafni
Grófinni, Tryggvagötu 15.
Ásta segist munu taka fyrir bæði
augljósar hinsegin bókmenntir og
verk sem krefjist frekari túlkunar.
„Það þarf oft meira að lesa milli lín-
anna í eldri bókmenntunum en nýrri
textarnir gerast í þeirri Reykjavík
sem við þekkjum nú þar sem minna
þarf að lesa milli línanna.“
Ásta hefur fengist við rannsóknir
á hinsegin bókmenntum í rúman
áratug. „Eitt af því sem heillaði mig
þegar ég fór að gera þessar rann-
sóknir var að það var enginn annar
að gera þær svo ég hafði svolítið
sviðið fyrir mig. Fyrir bókmennta-
fræðing er það mjög skemmtilegt,“
segir hún.
„Síðan skiptir mig máli bæði per-
sónulega og pólitískt að reyna að
stuðla að því að þessar bækur séu
lesnar og það sé fjallað um þær og
að það sé fjallað um hinseginleikann
í bókmenntum en ekki skautað fram
hjá honum. Fyrir svona tíu eða tutt-
ugu árum sérstaklega var því oft
sleppt að fjalla um hinseginleikann í
bókum þó að hann væri býsna áber-
andi. Þannig að þetta er hluti af
þeirri vinnu sem hefur farið fram
hér síðustu áratugi, að gera hinsegin
fólk og hinsegin reynslu sýnilegri á
öllum sviðum mannlífsins.“
Hraðar og miklar breytingar
Sýnileikinn hefur aukist í íslensk-
um bókmenntum á síðustu árum.
„Það hefur breyst býsna hratt og
mikið á síðustu árum finnst mér. Það
eru skrifaðar og gefnar út miklu
fleiri bækur sem fjalla opinskátt um
reynslu hinsegin fólks.“ Þá sé hin-
segin fólk ýmist aðalpersónur eða
aukapersónur í samtímaverkum og
eins komi bæði út verk þar sem hin-
seginleikinn er aðalumfjöllunarefnið
og þar sem hann er eitt af þeim
aukaatriðum í bakgrunninum sem
skipti miklu máli.
Ásta nefnir sérstaklega að barna-
og unglingabókahöfundar hafi staðið
sig vel á síðustu árum. „Þórdís Gísla-
dóttir og Hildur Knútsdóttir hafa til
dæmis vandað sig við að hafa hinseg-
in aðal- og aukapersónur í sínum
verkum. Svo er mjög merkilegt bók
eftir Margréti Tryggvadóttur sem
kom út í fyrra sem heitir Sterk og
fjallar um transstelpu. Þetta er
fyrsta íslenska ungmennabókin sem
er með transmanneskju í aðal-
hlutverki.“
Það sama má segja um bækur fyr-
ir fullorðna. „Þetta er eiginlega orðið
svo algengt að það er varla hægt að
telja það upp.“
Ásta hefur ekki síður áhuga á að
kafa í eldri skáldskap. „Eitt aðal-
viðfangsefnið mitt fræðilega hefur
verið Elías Mar og hans skáldverk.
Það er mjög skemmtilegt að fást við
þau. Þau eru skrifuð um miðja 20.
öld og hann segir í raun og veru
aldrei neitt beinum orðum um kyn-
hneigð aðalpersónanna, þannig að
allt liggur á milli línanna, en samt
þannig að það blasir við að lesa þær
á þann hátt ef maður er með augun
opin fyrir því,“ segir hún.
Alltaf stutt í ritskoðun
„Mér persónulega finnst
skemmtilegast að lesa texta þar sem
maður þarf að hafa svolítið fyrir því
að túlka þá. Ég sakna þess kannski
svolítið í þessum nýju verkum sem
eru svo rosalega opinská. En þetta
eru breyttir tímar og öðruvísi nálg-
un.“ En það sé auðvitað gott að farið
sé að tala opinskátt um hinseginleik-
ann í bókmenntum samtímans.
Ásta minnir þó á að það sé ekki
sjálfgefið. „Miðað við það sem er bú-
ið að gerast síðustu vikur þá held ég
að það sé nauðsynlegt að við hugum
að því að þessi hreinskilnu skrif um
hinsegin fólk og hinseginleika haldi
áfram. Það er alltaf stutt í einhvers
konar beina eða óbeina ritskoðun á
hinsegin viðfangsefnum og ef það
kemur alvarlegt bakslag og vinnan
gegn hinsegin sýnileika eykst þá veit
maður ekkert hvað gerist. Við þurf-
um að vera vakandi fyrir því í bók-
menntunum eins og annars staðar.“
Borgarbókasafn stendur fyrir
nokkrum viðburðum á Hinsegin
dögum. Dragdrottningin Starína
heldur sögustundir fyrir börn og
bókabíllinn Höfðingi verður sýni-
legur. Þá er hluti sérstakrar Regn-
bogaráðstefnu Hinsegin daga hald-
inn á Borgarbóksafninu Grófinni.
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Þróun „Það eru skrifaðar og gefnar út miklu fleiri bækur sem fjalla opin-
skátt um reynslu hinsegin fólks,“ segir Ásta um samtímabókmenntir.
Bæði persónulegt og pólitískt
- Ásta Kristín Benediktsdóttir leiðir göngu um söguslóðir hinsegin bókmennta - Sýnileiki hinsegin
fólks í íslenskum bókmenntum hefur aukist mikið - Finnst við þurfa að vera vakandi fyrir bakslagi