Morgunblaðið - 04.08.2022, Blaðsíða 60
Fagfólk STOÐAR veitir nánari upplýsingar og ráðgjöf
Trönuhrauni 8 | s. 565 2885 | stod.is
K design
Léttu þér lífið með hágæða ítalskri hönnun
Sturtustóll með baki og örmum
Stöðugur og vandaður sturtustóll með
góða burðargetu. Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 22.890,-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
Nettur sturtukollur
Hentar vel í litla sturtuklefa.
Hæðarstillanlegir fætur.
Verð: 9.890.-
Í samningi við
Sjúkratryggingar Íslands
60 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST 2022
NUTRILENK
Kæligel fyrir
liði og vöðva
GEL
Innihaldsefni eru m.a. eucalyptus
ilmkjarnaolía og engiferþykkni sem hafa
verið notuð í náttúrulækningum í aldaraðir.
Sölustaðir: Apótek, almennar verslanir.
Vellíðan nefnist sýning sem Edith
Hammar opnar í Gallerí Undirgöng í
dag. Sýningin er hluti af dagskrá
Hinsegin daga í Reykjavík 2022. Í
tilkynningu frá galleríinu kemur
fram að Hammar, sem fætt er í
Helsinki 1992, sé ungt listkvár sem
vakið hefur athygli fyrir stórar og
kraftmiklar blekteikningar sem unn-
ar eru ýmist á pappír eða sem vegg-
verk. „Hán teiknar endurtekin
myndefni sem eru á margan hátt
sjálfsævisöguleg, með áherslu á upp-
lifun og ímynd kynhlutlausra ein-
staklinga, í félagslífi, í hvíldarstund
og að klæða sig í og úr fatnaði í
heimilislegu, en þó útópísku,
umhverfi,“ segir í tilkynningu.
Edith Hammar er með BA-gráðu í
myndlist frá Royal Academy of Fine
arts í Stokkhólmi. Fyrir tveimur
árum gaf hán út sína fyrstu teikni-
myndabók í Finnlandi sem nefnist
Homo Line og hefur notið mikilla
vinsælda. Frá og með í fyrra mátti
finna verk háns í safneign Modern
Museum of Art í Stokkhólmi. Fyrir
Gallerí Undirgöng vann Hammar
nýtt verk sem teiknað er beint á
veggi sýningarrýmisins.
Gallerí Undirgöng er sýningar-
rými sem staðsett er í rúmgóðum
upplýstum undirgöngum við
Hverfisgötu 76 í Reykjavík.
„Hlutverk gallerísins er að sýna
tímabundin útilistaverk í borginni,
auka sýnileika samtímalistar í
borgarrýminu og skapa vettvang
þar sem myndlistarmönnum gefst
tækifæri til að takast á við óhefð-
bundið rými og nýjar aðstæður til
sýningarhalds í almannarými,“ eins
og segir í tilkynningu.
Sýningin Vellíðan stendur til októ-
berloka 2022.
Gallerí Undirgöng sýnir Vellíðan
Teikning Edith Hammar teiknaði nýtt verk beint á veggi sýningarrýmisins.
Leiklistarhátíðin Act alone hefst í
dag og stendur til laugardags. Í til-
kynningu frá skipuleggjendum kem-
ur fram að hún verður haldin með
sama sniði og á árum áður, en hátíð-
in féll niður síðustu tvö árin meðan
Covid-19 gekk yfir. Hátíðin fer fram
á Suðureyri og er frítt inn á alla við-
burði. Sem fyrr er listrænn stjórn-
andi hennar Elfar Logi Hannesson.
Ítarlega dagskrá hátíðarinnar í ár
má nálgast á vefnum actalone.net og
á Facebook-síðu hátíðarinnar. „Í ár
verða yfir tuttugu viðburðir í boði
sem falla undir leiklist, dans og tón-
list. Íslenskir jafnt sem erlendir
listamenn munu koma fram og bjóða
upp á sýningar frá Bandaríkjunum,
Danmörku, Paragvæ og Ítalíu. Boð-
ið verður upp á leiklist, dans, tónlist,
ritlist og myndlist, einnig brúðu-
námskeið fyrir börn og meistara-
tíma í leiklist með bandaríska leik-
aranum Ronald Rand. Eins og nafn
hátíðarinnar gefur til kynna er einn
listamaður á ferð hverju sinni,“ segir
í tilkynningu frá skipuleggjendum.
Meðal þess sem boðið verður upp
á í dag, fimmtudag, eru tónleikar
með gítarleikaranum Birni Thor-
oddsen sem hefjast kl. 19.01. Klukk-
an 20.31 sýnir Ronald Rand frá
Bandaríkjunum einleikinn Let It be
Art sem fjallar um leikhúslista-
manninn Harold Clurman.
Á morgun, föstudag, kl. 19.01 má
sjá Maríu Ellingsen í danska ein-
leiknum Það sem er eftir Peter
Asmussen í leikstjórn Ólafs Egils
Egilssonar. Klukkan 22.31 má sjá
Arnar Hauksson í einleiknum
Ómerkileg saga í leikstjórn Berg-
dísar Júlíu Jóhannsdóttur. Klukkan
23.21 hefjast síðan tónleikar með
Herberti Guðmundssyni.
Á laugardag kl. 13.41 má sjá sýn-
inguna Equilibrium tremens þar
sem ítalski listamaðurinn Marco
Borghetti bregður sér í hlutverk
trúðs sem ögrar meðal annars
þyngdaraflinu. Sama dag kl. 14.31
heldur Dr. Gunni tónleika. Klukkan
16.31 verður leikarinn Arnar Jóns-
son á eintali, en samtalsfélagi hans
er Jón Viðar Jónsson, leikhúsfræð-
ingur og leiklistargagnrýnandi. Þeir
munu fara yfir langan og farsælan
feril Arnars, ræða leikarastarfið og
stöðu íslenskrar leiklistar á okkar
dögum. Klukkan 19.01 má sjá ein-
leikinn Síldarstúlkur í leikstjórn
Andreu Elínar Vilhjálmsdóttur sem
skrifaði verkið í samstarfi við leik-
konuna Halldóru Guðjónsdóttur. Í
verkinu segir Halldóra sögur síldar-
stúlkna á Siglufirði. Stúlkurnar eru
af öllum stéttum og spanna sög-
urnar tímann frá síðustu aldamótum
og þar til síldin hvarf af Íslands-
miðum á sjöunda áratugnum. „Leik-
ritið dregur fram í sviðsljósið upplif-
anir síldarstúlkna af kvenna-
menningu þessara ára, viðhorf
þeirra til vinnu, fjölskyldulífs og
félagslífs og hvernig tókst að upp-
fylla dagdrauma,“ eins og segir í
kynningu um verkið. Um tónlist sér
harmonikkuleikarinn Margrét
Arnardóttir.
Leiklistarhátíðin
Act alone hefst
Síldarstúlka Halldóra Guðjóns-
dóttir í einleik um síldarárin.
- Yfir tuttugu
viðburðir í boði í
ár á Suðureyri
Íris Björk Gunn-
arsdóttir óperu-
söngkona og
Matthildur Anna
Gísladóttir
píanóleikari
koma fram í Nor-
ræna húsinu í
kvöld kl. 18.
Gestir geta feng-
ið sér súpu með-
an hlustað er. Á
efnisskránni eru aríur úr ýmsum
óperum með sýnilegum hinsegin-
leika. Jafnframt fjallar Íris Björk
um nýlega rannsókn sína á hinseg-
inleika á óperusviðinu. „Með því að
fjalla um birtingarmynd hinsegin-
leika á óperusviði er hægt að kanna
hvar og hvort hinseginleikinn sé til
staðar og hvernig má bæta honum
við eða breyta. Sýnileiki er lykillinn
að samþykki,“ segir í tilkynningu.
Hinseginleiki á
óperusviðinu í kvöld
Íris Björk
Gunnarsdóttir
Tónskáldið og
djasspíanóleik-
arinn Kristján
Martinsson fagn-
ar útgáfu sóló-
plötunnar Stökk
með tónleikum í
Edinborgarhús-
inu á Ísafirði í
kvöld kl. 20.
Hann leikur lög
af nýju plötunni í
bland við þekkta djassstandarda
„svo tónleikagestir mega búast við
fjölbreyttri upplifun, þar sem einn-
ig þykir líklegt að leynigestur stígi
á svið,“ eins og segir í tilkynningu.
Kristján lauk meistaranámi við
Conservatorium van Amsterdam
2014 og hefur síðan spilað víða um
heim. Miðar eru seldir við inngang-
inn. Kristján kemur fram á Jazz-
hátíð Reykjavík síðar í mánuðinum.
Útgáfutónleikar í
Edinborgarhúsinu
Kristján
Martinsson