Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 11.10.2022, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 2022 Bakvörður dagsins er skrifaður frá Porto í Portúgal þar sem spennan fyrir einum mik- ilvægasta, ef ekki almikilvæg- asta, leik íslenskrar kvenna- knattspyrnusögu fer stigvaxandi. Íslenska landsliðið hefur náð því magnaða afreki að komast á fjögur Evrópumót í röð og hefur samtals tekið fimm sinnum þátt á EM. Enn hefur frábært kvenna- landslið okkar þó ekki komist á allra stærsta sviðið, heims- meistaramótið. Hefur það aldrei verið jafn nálægt því og nú þeg- ar umspilsleikur bíður gegn spræku liði Portúgals í Pacos de Ferreira, sem er í grennd við Porto. Aðstæður verða með besta móti í leiknum í dag þar sem spáð er notalegu veðri, 22 gráðu hita og léttum andvara. Ætti ís- lenska liðið því ekki að þurfa að hafa áhyggjur af illviðráð- anlegum hita, líkt og í hitabylgj- unni á Englandi í sumar þegar EM 2022 fór fram. Þar að auki eru íslensku leik- mennirnir orðnir þaulvanir að- stæðum í Portúgal, enda hóp- urinn búinn að æfa saman í Portúgal síðan í síðustu viku, fyrst í Algarve og svo á keppn- isvellinum í Pacos de Ferreira í gær, sem leit vel út þegar blaða- menn fengu að fylgjast með upphafi æfingar í gær. Það verður að viðurkennast að maður hefur af því nokkrar áhyggjur að Sara Björk Gunn- arsdóttir landsliðsfyrirliði hafi ekki getað tekið þátt á þeirri æf- ingu vegna flensu. Fyrr í gær sagðist Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari þess fullviss að Sara myndi taka þátt í leiknum þrátt fyrir að vera að glíma við smá flensu og er það vonandi rétt hjá honum enda geysilega mikilvægt að hún verði leikfær í þessum risaleik. BAKVÖRÐUR Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Aldrei jafn nálægt Íslenska kvennalandsliðið hefur svo að segja aldrei verið jafn nálægt því að tryggja sér sæti á heims- meistaramóti. Liðið var þó að heita má enn nær því að gera einmitt það í hreinum úrslitaleik gegn Hollandi í C-riðli undankeppninnar ytra í síð- asta mánuði, sem lauk, illu heilli, með dramatískum en sanngjörnum 1:0-sigri heimakvenna. Með jafntefli eða sigri hefði Ísland tryggt sér beint sæti á HM. Það breytir því ekki að með því að hafna í öðru sæti riðilsins tryggði Ís- land sér sæti í umspili um laust sæti á HM í fyrsta skipti í sögunni. Vissu- lega hefði verið æskilegt að komast beint á HM en ekki þýðir að sýta orðinn hlut enda er það ekki til neins. Leikmenn og þjálfarar eru svo sannarlega reiðubúnir í verk- efnið stóra í dag. Búnar að spila marga stóra leiki Þeirra á meðal er Dagný Brynj- arsdóttir, einn reynslumesti leik- maður íslenska liðsins, með 107 landsleiki, þar sem hún hefur skorað 37 mörk. „Ég held að við séum vel stemmd- ar í þetta. Við erum búnar að spila marga stóra leiki á árinu. Ég held að spennustigið sé bara gott. Það hefur gengið vel eftir að við komum hingað út. Við erum allar klárar í þetta og hlökkum bara til,“ sagði Dagný í samtali við Morgunblaðið á hóteli ís- lenska landsliðsins í Porto í gær. Hún sagði það vissulega hafa ver- ið svekkjandi að tapa á lokasekúnd- unum gegn Hollandi þegar jafntefli og þar með beint HM-sæti hafi verið innan seilingar en að nú einsetji liðið sér að reyna að sjá til þess að það upplifi ekki aftur þær tilfinningar sem fylgdu því tapi og því að hafa ekki komist upp úr riðli sínum á EM. Viljum ekki upplifa þessar tilfinningar „Við settum leikinn gegn Hollandi nú bara til hliðar en ég held að það sé mikilvægt að hafa í huga bæði til- finningarnar sem komu upp eftir Frakka-leikinn, þegar við komumst ekki upp úr riðlinum á EM, og svo eftir að hafa tapað á móti Hollandi á síðustu sekúndunum. Það gefur manni að ákveðnu leyti aukastyrk af því að maður vill gera allt sem í valdi manns stendur til þess að upplifa ekki þær tilfinningar aftur, heldur snúa þeim upp í eitt- hvað jákvætt og skemmtilegt. Þó við hefðum auðvitað viljað fá aðra niðurstöðu eftir EM og eftir Hollandsleikinn þá er líka mikilvægt að taka það með okkur úr leikjunum að læra af þeirri reynslu. Ég held að engin af okkur vilji upplifa þær til- finningar, sem við fundum þá, aft- ur.“ Bæta sig með hverju árinu Spurð út í andstæðinga dagsins sagði Dagný að lokum: „Portúgal er með mjög spennandi lið og er á mik- illi siglingu núna. Þær bæta sig með hverju árinu en við höfum ekki spil- að við þær núna í nokkur ár. Þær eru með leifturfljóta sóknarmenn, eru góðar á boltanum og kraftmikl- ar. Þegar við horfðum á þær á móti Belgíu, þá sáum við að þær eru kraftmiklar og ákveðnar. Þær áttu skilið að vinna Belga, þær voru betri í þeim leik. Þær hafa ekki komist á HM heldur og þetta verður bara hörkuleikur. Þær eru með marga góða leikmenn í góðum liðum. Ef við ætlum að fá eitthvað út úr leiknum verðum við að spila okkar besta leik.“ Einn leikur skilur á milli feigs og ófeigs - Ísland getur komist á HM í fyrsta sinn - Reynslunni ríkari eftir stórleiki ársins Morgunblaðið/Eggert Gleði Það er allt undir hjá íslenska kvennalandsliðinu þegar liðið mætir Portúgal í dag í umspili um sæti á HM 2023. Morgunblaðið/Eggert 37 Dagný Brynjarsdóttir er marka- hæsti leikmaðurinn í hópnum. Í PORTO Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Í dag rennur stóra stundin upp í Pacos de Ferreira í Portúgal. Ís- lenska kvennalandsliðið í knatt- spyrnu getur tryggt sér sæti á HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi og komist þannig á heimsmeistaramót í fyrsta skipti. Til þess þarf liðið lík- lega að hafa betur í venjulegum leik- tíma gegn heimakonum í Portúgal, sem freista þess sömuleiðis að kom- ast á HM í fyrsta sinn. Ástæðan fyrir því að líklega þarf- Ísland að hafa betur í venjulegum leiktíma er sú að í annarri umferð umspils Evrópuþjóða keppa sex þjóðir um tvö bein sæti á HM en „sísti“ sigurvegarinn í leikjunum þremur þarf að fara í enn annan um- spilsleik, þar sem lið úr mismunandi heimsálfum munu etja kappi á Nýja- Sjálandi næstkomandi febrúar. Fáist sem dæmi sigurvegari í hin- um tveimur viðureignunum, á milli Skotlands og Írlands annars vegar og Sviss og Wales hins vegar, í venjulegum leiktíma, en ekki í leik Portúgals og Íslands, fer sigurveg- arinn úr síðastnefnda einvíginu, hvort sem það væri eftir framleng- ingu eða vítaspyrnukeppni, í auka- umspilið. Vinnist sigur í venjulegum leiktíma í öllum þremur viðureign- unum verður farið eftir markatölu. Ísland sat hjá í fyrri umferð um- spils Evrópuþjóða vegna góðs ár- angurs í riðli sínum í undankeppni HM. Í þeirri umferð vann Portúgal dramatískan heimasigur á Belgíu, 2:1, síðastliðinn fimmtudag, þar sem sigurmarkið kom undir lok leiks. Allt á uppleið hjá Portúgal Sigur Portúgals í þeim leik var fyllilega verðskuldaður enda voru heimakonur sterkara liðið allan leik- inn. Kvennaknattspyrnan hefur ver- ið á uppleið undanfarin ár í Portúgal þar sem liðið hefur tekið þátt á síð- ustu tveimur Evrópumótum, árið 2017 í Hollandi og nú í sumar á Eng- landi, sem voru fyrstu stórmótin sem liðið tók þátt á í sögunni. Í hvorugt skiptið komst liðið upp úr riðli sínum en bætingin á milli móta er auðsjáanleg þar sem Portú- gal gerði til að mynda 2:2-jafntefli við Sviss eftir endurkomu og stóð vel í Hollandi en tapaði að lokum 2:3 á EM 2022 í sumar. Portúgalska liðið er sókndjarft og léttleikandi og heldur boltanum vel innan liðsins. Á hinn bóginn gætir stundum kæruleysis í varnar- leiknum og getur íslenska liðið hæg- lega nýtt sér svæði, til að mynda á bak við sókndjarfa bakverði Portú- gals, til þess að klekkja á þeim. 1. deild karla Álftanes – Selfoss ................................. 97:91 Staðan: Sindri 3 3 0 263:205 6 Álftanes 3 3 0 282:268 6 Selfoss 3 2 1 283:237 4 ÍA 3 2 1 245:240 4 Ármann 3 2 1 288:287 4 Hamar 3 1 2 283:275 2 Skallagrímur 3 1 2 250:253 2 Hrunamenn 3 1 2 271:291 2 Fjölnir 3 0 3 237:290 0 Þór Ak. 3 0 3 209:265 0 1. deild kvenna Tindastóll – Snæfell ............................. 51:75 Staðan: Snæfell 4 3 1 300:227 6 KR 3 3 0 235:192 6 Stjarnan 3 3 0 249:202 6 Þór Ak. 4 3 1 275:234 6 Ármann 3 1 2 196:207 2 Aþ/Lei/UM 3 1 2 256:217 2 Hamar-Þór 4 1 3 274:273 2 Tindastóll 4 1 3 264:253 2 Breiðablik B 4 0 4 148:392 0 Litháen Rytas Vilnius – Nevezis ...................... 88:92 - Elvar Már Friðriksson skoraði 11 stig fyrir Rytas Vilnius, tók tvö fráköst og gaf eina stoðsendingu á 16 mínútum. >73G,&:=/D KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild kvenna, Subway-deildin: Ásvellir: Haukar – Grindavík .............. 19.30 ÍSHOKKÍ Íslandsmót karla, Hertz-deildin: Laugardalur: SR – Fjölnir .................. 19.45 Í KVÖLD! Íslenska karlalandsliðið í handknatt- leik verður án þeirra Ómars Inga Magnússonar og Viktors Gísla Hall- grímssonar þegar liðið mætir Ísrael á morgun á Ásvöllum í Hafnarfirði og Eistlandi í Tallinn 15. október í undankeppni EM 2024. Ómar Ingi, sem er samningsbund- inn Magdeburg í Þýskalandi, dró sig út úr landsliðshópnum af persónu- legum ástæðum í gær og þá er Vikt- or Gísli, sem er samningsbundinn Nantes í Frakklandi, að glíma við meiðsli. Báðir hafa þeir verið lyk- ilmenn í íslenska liðinu síðustu ár. Kristján Örn Kristjánsson, leik- maður Aix í frönsku 1. deildinni, var kallaður inn í hópinn í stað Ómars og æfði hann með liðinu í Safamýrinni í gær. Þetta eru fyrstu leikir íslenska liðsins í undankeppninni en ásamt Íslandi, Ísrael og Eistlandi leikur Tékkland einnig í sama riðli. Tveir lykilmenn fjar- verandi hjá Íslandi Ljósmynd/Szilvia Micheller Fjarverandi Ómar Ingi Magnússon verður ekki með íslenska liðinu í kom- andi verkefnum en hann dró sig úr hópnum af persónulegum ástæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.