Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 11.10.2022, Side 32

Morgunblaðið - 11.10.2022, Side 32
Njóttu bestu áranna með Femarelle® 100% náttúruleg lausn Elskaðu. Lifðu. Njóttu. 300 kr af hver jum seldum pakka í októbe r renna til Bleiku Slaufun nar styrkir Bleiku Slaufuna Sigríður Sigurðardóttir, lektor við Háskólann á Hólum, heldur fyrirlestur sem ber heitið Torf til bygginga í dag kl. 12 í Þjóðminjasafni Íslands í tilefni af sýningunni Á elleftu stundu sem nú stendur yfir í safninu og veitir innsýn í umfangsmikla og ómetanlega skráningu torf- bæja hér á landi. Sigríður mun fjalla um hvernig torf var valið, tekið og meðhöndlað og því síðan hlaðið upp en aðferðin var mismunandi eftir landshlutum, segir í tilkynningu. Fyrirlesturinn verður verður einnig í beinu streymi á YouTube. Fjallar um torf í hádegisfyrirlestri ÞRIÐJUDAGUR 11. OKTÓBER 284. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Í dag rennur stóra stundin upp í Pacos de Ferreira í Portúgal. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu get- ur tryggt sér sæti á HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjá- landi og komist þannig á heimsmeistaramót í fyrsta skipti. »27 Allt undir hjá Íslandi í Portúgal ÍÞRÓTTIR MENNING sveitinni en vissulega sé skaflinn erfiður. Endurnýjun í Lúðrasveitinni hef- ur líka gengið hægar að undanförnu en oft áður. Jón segir ástæðurnar margar en breyting á skólakerfinu hafi ekki bætt stöðuna. „Eftir að nám í menntaskólum var stytt í þrjú ár hafa krakkarnir ekki tíma fyrir áhugamálin eins og þeir höfðu áður. Við viljum helst fá þá til okkar að loknum grunnskóla en þeir skila sér ekki sem fyrr.“ Ekki bæti úr skák að skólalúðra- sveitir haldi nú krökkunum áfram eftir að námi lýkur. Jón Snorrason kynntist tónlist- inni í Vestmannaeyjum og lék þar í danshljómsveitum auk þess sem hann spilaði á horn í Lúðrasveit Vestmannaeyja. „Við stofnuðum skólalúðrasveit 1978 og ég hef spil- að á horn síðan.“ Þegar hann var 16 ára lærði hann á bassa í FÍH. Hann flutti til Reykjavíkur haustið 1990, ætlaði að vera í níu mánuði til að ljúka námi í Iðnskólanum. Í febrúar 1991 var hann kjörinn varafor- maður Lúðrasveitar Reykjavíkur. Mánuði síðar hætti formaðurinn. „Ég var því orðinn formaður 21 árs, nýbyrjaður í Lúðrasveitinni og þekkti fáa.“ Síðan hafi hann verið í stjórn fyrir utan árin 1994 og 2008. Þegar Jón byrjaði í Lúðrasveit- inni voru margir gamlir jaxlar þar fyrir. „Hefðin var mikil og á þessum tíma var starfandi Kvenfélag Lúðrasveitar Reykjavíkur, sem afl- aði fjár fyrir húsið.“ Starfið hafi lengi verið mjög blómlegt. Gefnar hafi verið út hljómplötur og diskar og farið í tónleikaferðir utan lands sem innan. „Lúðrasveitir almennt voru látnar spila til þess að kalla fólkið saman, við höfum verið dug- leg við að halda í hefðina og gerum það áfram.“ Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Lúðrasveit Reykjavíkur fagnar 100 ára afmæli í ár. Af því tilefni var ákveðið að halda tvenna sérstaka tónleika. Þeir fyrri voru í vor en þeir seinni verða í salnum Kaldalóni í Hörpu miðvikudaginn 16. nóvem ber. Þetta verður jafnframt í síðasta sinn sem Lárus Halldór Grímsson stjórnar sveitinni, en það hefur hann gert undanfarin 24 ár. Ekki hefur verið ákveðið hvort staðan verði auglýst eða reynt verði að finna heppilegan stjórnanda með öðrum hætti. Jón Kristinn Snorra- son, formaður Lúðrasveitar Reykja- víkur og hornleikari, segir að ýmis- legt komi til greina. „Þegar breytingar verða er alltaf gaman að fá ungt fólk með nýjar áherslur,“ segir hann og bendir á að Lárus hafi komið með ferskleika og nýtt blóð, sem hafi virkað vel. Fastur punktur Lúðrasveitin var stofnuð 7. júlí 1922 og hefur ekki aðeins sett sinn svip á bæjarlífið heldur verið fastur punktur í tilverunni, rétt eins og Hljómskálinn við Tjörnina í Reykja- vík, sem var reistur fyrir sveitina. Lúðrasveitin hefur spilað við inn- setningu forseta Íslands og vegna opinberra heimsókna á Bessastöð- um, verið áberandi sumardaginn fyrsta, tekið þátt í hátíðardagskrá sjómannadagsins í Reykjavík og jafnframt leikið fyrir íbúa á Hrafn- istu sama dag, spilað í hátíðar- höldum 17. júní og þegar kveikt hef- ur verið á jólatrénu við Austurvöll. Eins hefur Lúðrasveitin spilað í messu á Landspítalanum á jóladag og páskadag frá byggingu spítalans. Heimsfaraldurinn hefur haft mik- il áhrif á allt félagslíf og Jón segir erfitt að halda áfram þar sem frá var horfið fyrir tæplega þremur ár- um. „Fólk var sem í dvala í rúm tvö ár og þó margir séu komnir á stjá eru ekki allir tilbúnir að mæta á mannfagnaði sem fyrr,“ segir Jón. Engin uppgjöf sé samt hjá Lúðra- Lúðrasveitir til að kalla fólkið saman - Hundrað ára afmælistónleikar Lúðrasveitar Reykjavíkur Hornleikari Jón Kristinn Snorrason, formaður Lúðrasveitar Reykjavíkur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.