Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 2

Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 2
Þrettándinn Mikill mannfjöldi var samankominn í Gufunesi í gærkvöldi þar sem önnur af tveimur þrettándabrennum Reykjavíkurborgar var tendruð. Svo mikinn mann­ skap dreif að brennunni að umferðaröngþveiti skapaðist við Gufunes og í nærliggjandi götum Grafarvogs. Fréttablaðið/Sigtryggur ari Sjóðurinn veitir styrki til: undirbúnings sýninga útgáfu, rannsókna og annarra verkefna M yn dl is ta rs jó ðu r Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 20. febrúar 2023 Leiðbeiningar, umsóknarform og reglur má finna á myndlistarsjodur.is  Úthlutað verður í marsmánuði.  Veittir verða styrkir að lágmarki 300.000 kr. og hámarki 3.000.000 kr. Næsti umsóknar­ frestur er 21. ágúst. Opið er fyrir umsóknir í myndlistarsjóð Mikil spenna er að myndast hjá Íslendingum í Kaup- mannahöfn fyrir komandi Heimsmeistaramóti í hand- bolta. Um þrjú hundruð munu streyma frá kóngsins Köben til Kristianstad með rútu til að hvetja strákana okkar áfram. benediktboas@frettabladid.is   Handbolti Um þrjú hundruð Íslendingar fara frá Kaupmanna- höfn með rútum á leiki Íslands á Heimsmeistaramótinu í handbolta en leikir Íslands í riðlakeppninni eru spilaðir í Kristinastad. Áhug- inn er alveg jafn mikill í kóngsins Kaupmannahöfn og hér á Íslandi en Danir hafa rætt og ritað mikið um hversu spennandi lið Ísland sé með. Félagarnir Óli Rúnar Eyjólfs- son og Árni Friðriksson sjá um að skipuleggja ferðirnar en hugmyndin fæddist eiginlega í gríni. „Ég hef verið að halda golfmót hérna úti og við sögðum í góðu gríni að okkur vantaði far til Kristianstad á HM í handbolta. Það var einhver vinur Árna sem á rútufyrirtæki og þetta var eiginlega bara af því okkur lang- aði sjálfum,“ segir Óli Rúnar. Kristianstad er ekki nema rúm- lega 140 kílómetra í burtu þannig að rútan fer með hópinn fram og til baka. Um 40 þúsund manns búa í Kristianstad, meðal annars Elísabet Gunnarsdóttir, sem þjálfar kvenna- lið bæjarins í fótbolta með góðum árangri. „Öll hótel og gisting er uppbókuð þannig að við erum með rútuna fram og til baka. Það átti að vera fyrst ein rúta fram og til baka á hvern leik en það seldist strax upp í fimmtudags- og laugardags- rúturnar. Þannig að við bættum við auka. Laugardagsrúturnar seldust líka strax upp og þar eru allavega 200 manns að fara,“ segir Óli. Meðan samtalið stóð yfir var reyndar par sem af bókaði sig þannig að tvö sæti losnuðu. Trúlega voru þau seld þegar Fréttablaðið fór í prentun. „Þetta er kannski helmingur af Íslendingum sem búa hér í borg og svo fólk sem er að fljúga til okkar frá Íslandi sem er að koma með okkur.“ Óli Rúnar spilaði handbolta í gamla daga og er nýbúinn að setja harpixið á hilluna en hann spilaði með Guðrúnu sem er Íslendingaliðið í Kaupmannahöfn. Liðið er eingöngu skipað íslenskum leikmönnum. „Maður er enn þá handboltasjúkur og stórmót hafa lengi létt manni lundina í janúar. Ég er meira að segja farinn að hlakka til EM í Þýskalandi á næsta ári.“ Hann segir að mikið sé rætt og ritað um íslenska liðið í dönskum fjölmiðlum og spennan sé mikil fyrir komandi HM. „Sumir vina minna ætla ekki einu sinni að fara á leikina í riðlinum heldur bara beint í milliriðilinn. Það er mikill hugur í íslenska samfélaginu hér í Kaup- mannahöfn. Það sem ég er að lesa í dönsku fréttunum er að Danir eru skít- hræddir við okkur Íslendingana. Landsliðsþjálfarinn þeirra er mikið að tala um okkur og segja hvað við séum með spennandi lið. Þeir voru að spila æfingarleik gegn Sádum og unnu þá með miklum mun. Það er nú undirbúningurinn þeirra. Þeir eru skíthræddir við okkur,“ segir Óli Rúnar. n Íslendingar í kóngsins Köben streyma á HM í handbolta Spennan er orðin mikil fyrir HM í handbolta þar sem Íslendingum er spáð góðu gengi enda með eina bestu útilínu á mótinu. Fréttablaðið/Ernir Óli Rúnar Eyjólfsson, ferðamála­ frömuður gar@frettabladid.is fjölmiðlar Guðmundur Örn Jóhannsson, yfirmaður dreifingar- mála Fréttablaðsins, segir dreifingu með nýjum hætti ganga vel. „Nú er hægt að nálgast Frétta- blaðið á Stór-Reykjavíkursvæðinu í öllum Bónus-, Nettó- og Hagkaups- verslunum, auk þess er hægt að nálgast blaðið í verslunum Húsa- smiðjunnar, í Kringlunni, á sjúkra- húsum, elliheimilum og í sundlaug- um,“ segir Guðmundur. Samtals fari nú 25 þúsund eintök á þetta svæði. Í næstu viku verði blaðinu dreift í alls 45 þúsund eintökum daglega. „Þá bætist Smáralind við, Múla- kaffi, World Class, Bakarameist- arinn og f leiri veitingastaðir. Á landsbyggðinni dreifum við nú tíu þúsund blöðum,“ segir Guðmundur Örn. Á Suðurnesjum sé blaðið í verslunum í Reykjanesbæ, Grinda- vík, Vogum, Sandgerði og í Garði. „Blaðinu er einnig dreift í Hvera- gerði og á Selfossi og eftir helgi bætast við Þorlákshöfn, Hella og Hvolsvöllur. Við dreifum nú einnig í verslunum á Akranesi, Borgarnesi, Blönduósi, í Staðarskála og í Varma- hlíð og á Akureyri í gegnum versl- anir Bónuss og Nettó ásamt N1 og Olís,“ segir Guðmundur. Einnig má lesa Fréttablaðið á frettabladid.is og á Fréttablaðs-app- inu. Þess utan er hægt að fá blaðið sent að morgni í tölvupósti. Sigmundur Ernir Rúnarsson, rit- stjóri Fréttablaðsins, segist þakk- látur tryggum lesendum sem hafi spurst fyrir um dreifingu blaðsins. „Við vinnum hörðum höndum að því að byggja upp þessar nýju leiðir til að koma blaðinu til lesenda og þiggjum allar ábendingar þeirra,“ segir Sigmundur Ernir. n Fréttablaðið fæst á æ fleiri stöðum Nú má fá Fréttablaðið á fjölmörgum stöðum. Fréttablaðið/Ernir kristinnhaukur@frettabladid.is kjaramál Bl að a ma n na fél ag Íslands hefur skrifað undir skamm- tímasamning við Samtök atvinnu- lífsins líkt og f leiri verkalýðsfélög undanfarið. Sigríður Dögg Auðuns- dóttir, formaður félagsins, segir mikilvægt að ná inn afturvirkni til nóvember. Samningurinn sé hins vegar aðeins framlenging á núgildandi samningi og félags- menn hafi ekki gert ráð fyrir öðru í ljósi aðstæðna. „Við lítum á þetta sem áfanga- skref,“ segir Sigríður. „Stóra samn- ingatímabilið er að hefjast núna í janúar þegar við hittum samninga- nefndirnar.“ n Blaðamenn gera stuttan samning 2 Fréttir 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.