Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 8

Fréttablaðið - 07.01.2023, Side 8
Ferðamálastofa spáir því að erlendir ferða- menn geti árið 2025 orðið á bilinu 2,8 milljónir, sem er lægsta spá, og 5,3 milljónir, sem er hæsta spá. Hallfríður Þórarinsdóttir, doktor í menn- ingarmannfræði Styrkir VIRK 2023 VIRK Starfsendurhæfingarsjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til verkefna sem auka fjölbreytni og framboð úrræða í starfsendurhæfingu og styrki til rannsókna sem stuðla að uppbyggingu og auka við almenna þekkingu á starfsendurhæfingu á Íslandi. Veittir eru styrkir til virkniúrræða, rannsóknarverkefna og uppbygging- ar- og þróunarverkefna einu sinni á ári og þurfa umsóknir um styrkina að hafa borist sjóðnum 15. febrúar n.k. inn á netfangið styrkir@virk.is. Aðeins eru teknar til greina umsóknir sem uppfylla allar reglur um styrki VIRK. Nánari upplýsingar, stefnur og reglur varðandi umsóknir og umsóknar- eyðublöð má finna á www.virk.is. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar 2023. Open for grant applications VIRK Vocational Rehabilitation Fund has started accepting grant applica- tions for projects that will increase the diversity and availability of inter- ventions in vocational rehabilitation and grants for research projects that promote development and greater general knowledge about vocational rehabilitation in Iceland. Grants are offered once a year for activity projects, research projects and development projects and grant applications must be received by VIRK by 15th of February via the e-mail address styrkir@virk.is Only applications that meet all regulations set forth by VIRK will be ac- cepted. Further information regarding the application and about policies and rules as well as the application form can be found on VIRK´s web page www.virk.is. The application deadline is end of day February 15th, 2023. H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Umsóknarfrestur til 16. febrúar Sprotasjóður leik-, grunn- og framhaldsskóla Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr Sprotasjóði leik-, grunn- og framhaldsskóla vegna skólaársins 2023-2024. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi. Leikskólastjórar, skólastjórar eða skólameistarar fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn umsókn. Aðrir aðilar en skólar geta sótt um þróunarverkefni í samstarfi við skóla. Í þeim tilfellum skal staðfesting á þátttöku skóla fylgja umsókn. Áherslusvið sjóðsins fyrir tímabilið 2023-2024 eru verkefni sem styðja við innleiðingu menntastefnu í eftirfarandi þáttum: • Farsæld barna og ungmenna með áherslu á geðrækt, geðtengsl, geðheilbrigði • Sköpun og hönnun • Stafræn borgaravitund, upplýsinga- og miðlalæsi Í umsókn þarf að skilgreina hvernig verkefnið tengist ofangreindum áherslum ásamt því hvernig nemendur verða virkir þátttakendur í verkefninu sjálfu. Umsóknir sem falla utan ofangreindra áherslusviða fá sérstaka umfjöllun í ljósi áhrifa verkefna á menntun og skólastarf. Umsóknir sem fela í sér samstarf skóla, skólastiga eða skóla og annarra stofnanna njóta alla jafna forgangs við úthlutun styrkja. Umsóknarfrestur er til 16. febrúar 2023 kl. 15.00. Umsókn skal skilað á rafrænu formi gegnum mínar síður á rannis.is. Nánari upplýsingar veitir Eydís Inga Valsdóttir, sími 515 5834, sprotasjodur@rannis.is Hlutfall heimamanna og innflytjenda í ferðaþjónustu 90% 80 70 60 50 40 30 20 10 0 n Íslendingar n Innflytjendur 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 2020 2021 2022 Fjörutíu prósent starfsmanna í ferðaþjónustu á Íslandi eru af erlendum uppruna. Atvinnugreinina vantar þúsundir útlendinga til starfa á næstu árum. Dæmi eru um hótel sem reiða sig alveg á erlent vinnuafl. ser@frettabladid.is FERÐAÞJÓNUSTA Fyrstu tvo áratugi nýrrar aldar sjöfaldaðist hlutfall fyrstu og annarrar kynslóðar inn- flytjenda á Íslandi. Á haustdögum 2022 var fimmti hver starfsmaður á íslenskum vinnumarkaði af erlendum uppruna. Stærstur hluti þeirra heyrir til ferðaþjónustunni, en rúmlega fjörutíu prósent starfs- manna í greininni rekja ættir sínar til útlanda. Þetta kemur fram í rannsókn Hallfríðar Þórarinsdóttur, sem upp- haflega var unnin 2019, en var upp- færð fyrir 50 ára afmælisrit Leið- sagnar, félags leiðsögumanna, sem kom út á síðasta ári. Þar er minnt á gríðarlegan vöxt ferðaþjónustunnar á afar stuttum tíma í atvinnusögu landsmanna, en á innan við áratug, frá 2010, óx ferðaþjónustan úr því að vera árs- tíðabundin atvinnugrein yfir í það að vera stærsti og arðbærasti atvinnuvegur þjóðarbúsins, stærri en bæði ál- og fiskútflutningur sem lengst af öfluðu þjóðarbúinu mestra gjaldeyristekna. Til glöggvunar á þessari þróun bendir Hallfríður á að hálf milljón erlendra ferðamanna hafi komið til landsins 2010, eða tæplega helmingi f leiri en íbúar landsins voru það árið, en eftir hraðfara stígandi sem náði hámarki 2018 hafi þeir verið orðnir 2,3 milljónir, sem svari til þess að 6,5 erlendir ferðamenn hafi verið hér á hvert mannsbarn í landinu. Hallfríður segir að enda þótt fækkað hafi í hópi erlends vinnu- af ls í ferðaþjónustunni á tímum heimsfaraldurs, einkum vegna sam- komutakmarkana á árunum 2020 og 2021 þegar greinin skellti svo að segja í lás, hilli á ný undir stór- fjölgun í hópi innflytjenda í henni á komandi árum. Samtök atvinnulífsins reikni með að störfum muni fjölga um fimm- tán þúsund fram til ársins 2025. „Þar sem innlendu fólki á starfs- aldri mun einungis fjölga um þrjú þúsund þarf að sækja tólf þúsund starfsmenn til annarra landa,“ bendir Hallfríður á og bætir við: „Ef að líkum lætur mun stór hluti þessa fólks koma til starfa í ferða- þjónustu, en Ferðamálastofa spáir því að erlendir ferðamenn geti árið 2025 orðið á bilinu 2,8 milljónir, sem er lægsta spá, og 5,3 milljónir, sem er hæsta spá.“ Hún segir að búast megi við því að stærstur hluti nýrra innflytjenda sem ferðaþjónustan þarf á að halda á komandi árum muni koma frá Evrópska efnahagssvæðinu, svo sem verið hafi hingað til, enda þurfi þeir, ólíkt fólki annars staðar frá, ekki að sækja sérstaklega um atvinnuleyfi hér á landi í krafti EES-samningsins. En Hallfríður bendir engu að síður á í rannsókn sinni að f lóra útlendinga í ferðaþjónustunni hér á landi sé mjög fjölbreytt. Ef taka megi dæmi, séu hótelin rekin af ungu erlendu starfsfólki. Þar sé meginreglan komin. Upplýsingum hafi verið safnað á um 21 hóteli sem skipst hafi til helminga á milli höfuðborgar og landsbyggðar. „Hlutfall innf lytj- enda á hótelum var 77 prósent á landsvísu og þar af voru Pólverjar um helmingur. Sem dæmi störfuðu á einu hóteli í Reykjavík samtals 36 starfsmenn af tólf ólíkum þjóð- ernum.“ Á landsbyggðinni hafi mátt finna hótel þar sem allt starfsfólk var erlent, en lægsta hlutfall þeirra hafi reynst 64 prósent, segir í rannsókn Hallfríðar Þórarinsdóttur. n Mörg þúsund útlendinga vantar í ferðaþjónustuna Frá árinu 2010 óx ferðaþjónustan úr því að vera árstíðabundin grein í að verða sú arðbærasta í þjóðarbúskapnum. Fréttablaðið/Getty 8 Fréttir 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.