Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 14
Múrarnir
eru ekki til
stuðnings
íslenskum
bændum
og land-
búnaði.
Viðhorf
Árna er
eitthvað
sem ég get
hugsað
mér að
tileinka
mér. Þakk-
læti fyrir
lífið og gott
fólk.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
birnadrofn@frettabladid.is
Lavrentiy klæðist hefðbundnum klæðum presta á myndinni og ber kross
sem hann fékk að gjöf. Hann er gylltur og og skreyttur eðalsteinum.
frÉttablaÐiÐ/anton brinK
Í dag klukkan tíu verður jóla-
dagsmessa í Hallgrímskirkju á
vegum úkraínsku rétttrúnað-
arkirkjunnar. Faðir Lavrentiy
kom frá Kænugarði í Úkraínu
til að halda messuna en hann
fékk sérstakt leyfi til að ferðast
hingað frá kirkjunni og frá
biskupi Íslands til að halda
messuna í Hallgrímskirkju.
lovisa@frettabladid.is
„Ég er hér til að halda jólamessu,
kvöldbænir og minna á helgisiði
fyrir úkraínska f lóttamenn sem
hafa sótt um hæli hér á Íslandi. Það
er mér mjög mikill heiður að fá leyfi
frá mínum biskupi og minni kirkju
og Agnesi Sigurðardóttur biskupi til
að þjóna hér á landi.
Hér eru um tvö þúsund manns
frá Úkraínu sem hafa þörf fyrir að
biðja fyrir friði, fyrir Úkraínu og
til að þakka Guði og Íslandi fyrir
aðstoðina sem þau hafa fengið hér,“
segir faðir Lavrentiy frá úkraínsku
rétttrúnaðarkirkjunni, sem segist
afar þakklátur fyrir tækifærið.
Hann segir að messan verði nokk-
uð hefðbundin og svo í lok hennar
muni hann leiða söng á úkraínskum
jólalögum með aðstoð söngkonunn-
ar Alexöndru Chernyshova.
Spurður um ferðalagið til Íslands
segir hann það hafa verið afar flókið.
Hann hafi fyrst tekið lest, svo rútu og
leigubíl og svo flug í Varsjá.
Ástæðan fyrir því að messan er
núna og í raun jólahátíðin er sú
að úkraínska rétttrúnaðarkirkjan
miðar við annað dagatal.
„Ég er svo ánægður með að fá að
halda messuna í Hallgrímskirkju.
Ég varð agndofa yfir byggingunni
og mannvirkinu sjálfu. Presturinn
var líka afar indæll og leyfði mér að
prófa sönginn því það er hluti af hefð-
bundinni messu að syngja saman í
lok hennar,“ segir hann en hann mun
lesa upp texta og kveðju frá kirkjunni.
„Í prédikun minni mun ég fók-
usera á jólin og gjafirnar sem Jesús
hefur fært okkur. Friður, sátt og sam-
lyndi og virðing á milli fólks. Þetta er
mikilvægt núna eins og alltaf áður.“
Spurður hvernig messum sé
almennt háttað núna og hvort fólk
hafi leitað meira til kirkjunnar eftir
að stríðið hófst segir hann fyrst
marga hafa farið en að nú hafi margir
snúið aftur. En eftir áramót hefur
verið svo mikið sprengt að fólk hefur
haldið sig heima.
„Ég er með forrit í símanum, eins
og allir, sem lætur okkur vita þegar
loftárásir eru í vændum og þær hafa
verið mjög tíðar frá áramótum. Eftir
að ég kom hingað og kveikti á sím-
anum og komst á netið voru þær það
fyrsta sem ég heyrði,“ segir hann. n
Kom frá Úkraínu til að
messa fyrir flóttafólk
Messa fór einnig fram í Hallgrímskirkju í gærkvöld. frÉttablaÐiÐ/sigtryggur ari
Í vikunni hitti ég feðgana Árna Þórð Sigurðarson
og Sigurð Þ. Ragnarsson. Þeir sögðu mér söguna
af veikindum Árna á einlægan og hreinskilinn
hátt og alveg síðan ég hitti þá hafa þeir verið mér
ofarlega í huga. Sögu þeirra má lesa hér í þessu
tölublaði.
Árni var heilbrigður ungur maður sem veiktist
alvarlega á einni nóttu. Fótunum var gjörsamlega
kippt undan honum, honum var haldið sofandi í
marga mánuði og oft var tvísýnt um hvort hann
myndi hreinlega lifa af.
Lífsviðhorf Árna er ótrúlegt. Hann ákvað strax að
hann ætlaði að ná sér af veikindum sínum og ná fyrri
styrk. Sem hann og gerði. Jákvæðni skín af honum og
hann er svo þakklátur. Þakklátur fyrir lífið sem hann
fær að lifa og þakklátur fólkinu sem hjálpaði honum
og hlúði að honum á spítalanum. Nú er hann spenntur
fyrir því að þurfa að mæta í vinnu, það er draumurinn
hans og markmið.
Viðhorf Árna er eitthvað sem ég get hugsað mér að
tileinka mér. Þakklæti fyrir lífið og gott fólk. n
Þakklæti
Flest er miklu dýrara hér á landi en
annars staðar.
Ein ástæða þessarar miklu dýrtíð-
ar er að við notumst hér við gjald-
miðil sem er í raun hálfgert plat.
Hvergi annars staðar í heiminum
en hér á klakanum er hægt að nota
þennan gjaldmiðil.
Gjaldmiðillinn einn kostar okkur
Íslendinga minnst 300 milljarða á
hverju einasta ári. Þessa fyrstu viku
ársins hefur krónan kostað okkur
sex milljarða, tæpan milljarð á dag
hvern einasta dag, líka um helgar.
Vegna krónunnar borgum við
íbúðirnar okkar þrisvar en ekki einu
sinni eins og reyndin er í löndum
sem nota burðuga gjaldmiðla. Þetta
finnst ráðandi stjórnmálamönnum
í lagi. Spyrja má fyrir hverja þeir
vinna.
Krónan er vond mælieining. Í
hruninu 2008 dróst landsfram-
leiðsla saman um 10 prósent, mælt
í krónum. Í evrum dróst hún saman
um meira en helming. Við höfðum
því í raun helmingi minna milli
handanna en ekki 10 prósent.
Matur á Íslandi er óheyrilega
dýr og verður enn dýrari innan
skamms, eins og fréttir af verð-
hækkunum heildsala og fram-
leiðenda gefa til kynna. Ein helsta
ástæða þess hve matur er dýr hér er
að íslensk stjórnvöld vilja að hann
sé dýr. Þau tryggja að hann sé dýr.
Þetta gera þau með því að reisa
verndarmúra um innlenda mat-
vælaframleiðslu. Múrarnir eru ekki
til stuðnings íslenskum bændum og
landbúnaði eins og látið er að liggja
og sannarlega eru þeir ekki til hags-
bóta fyrir íslenska neytendur.
Verndartollar eru settir til að
vernda innlenda framleiðslu, er
Stjórnvöld vinna fyrir einhverja aðra en mig og þig
okkur sagt. Hvaða innlendu fram-
leiðslu verndar 50 prósenta tollur á
franskar kartöflur? Hér á landi eru
ekki framleiddar franskar kartöflur.
Tollkvótar eru boðnir út og þá
kaupa stórframleiðendur og milli-
liðir í þeim tilgangi einum að koma
í veg fyrir að ódýr matvara rati í
hillur íslenskra verslana. Með þessu
móti geta þeir haldið uppi verði til
neytenda. Þetta finnst ráðandi
stjórnmálamönnum í lagi. Fyrir
hverja vinna þeir?
Ekki mig.
Ekki þig. n
Jólaleysi
í gær rann þrettándinn upp svo í dag
eru ekki lengur jól. Við mælum með
því að af-jóla heimilið um helgina.
Taktu niður jólaskrautið og jóla-
tréð, seríurnar, kransana og skiptu
rauðum kertum út fyrir aðra liti.
Kláraðu ilmkertin með jólalyktinni,
allt konfektið, sörurnar og alla aðra
afganga og byrjaðu svo næstu viku
jólalaus.
Sundferð
Fátt er meira hressandi en ferð í
sund. Sama hvort það er til að slaka
á í gufunni, spjalla í pottinum, leika
sér í lauginni eða synda, allt gefur
það mikla orku og hressleika. Við
mælum sérstaklega með sundlaug-
inni á Seltjarnarnesi, saltpottinum
í Laugardalslaug, rennibrautinni
á Álftanesi og gufunni í Sundhöll-
inni.
Við mælum með
14 Helgin 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðiðHeLGin Fréttablaðið 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR