Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 28

Fréttablaðið - 07.01.2023, Síða 28
Fjarskiptastofa gegnir veigamiklu hlutverki á sviði netöryggis hér á landi og er ætlað að stuðla að öryggi almennings, fyrirtækja og samfélagsins alls á sviði fjarskipta- og netöryggis. Umsjón með störfunum hafa Jensína Kristín Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is). Fjarskiptastofa leitar að öflugum lögfræðingi á svið stafræns öryggis hjá stofnuninni. Heyrir starfið undir sviðs stjóra. Um er að ræða spennandi starf í nýjum og vaxandi málaflokki innan stofnunarinnar á sviði eftirlits með netöryggi fjarskipta­ fyrirtækja og mikilvægra innviða hér á landi. Í starfinu reynir á sjálfstæð vinnubrögð, getu til að vinna í teymi og framsýni. Helstu verkefni og ábyrgð: • Eftirlit með netöryggi mikilvægra innviða á grundvelli laga nr. 78/2019, um öryggi net­ og upplýsingakerfa mikilvægra innviða og fjarskiptafélaga á grundvelli nýrra fjarskiptalaga nr. 70/2022. • Mat á lagalegri hlítni mikilvægra innviða og fjarskiptafélaga við lágmarkskröfur laga á sviði netöryggis með öðrum sérfræðingum sviðsins. • Stjórnsýsluskoðanir á alvarlegum atvikum á sviði netöryggis og/eða netárása hjá fjar skipta fyrirtækjum og mikilvægum innviðum. • Aðkoma að gerð reglugerða og lagafrumvarpa á sviði netöryggis, þ.m.t. er varðar innleiðingu á nýju Evrópuregluverki á þessu sviði. • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net­ og upplýsingaöryggis eftir því sem við á. Lögfræðingur á sviði netöryggis Sérfræðingar í stjórn ­ skipulagi net­ og upplýsingaöryggis Fjarskiptastofa leitar að sérfræðingum í eftir lit með net­ og upplýsinga öryggi mikil vægra innviða og fjarskipta fyrirtækja á sviði stafræns öryggis hjá stofnuninni. Starfið heyrir undir sviðsstjóra. Um er að ræða spennandi störf í nýjum og vaxandi mála flokki innan stofnunarinnar sem nær til framtíðar fjarskipta þjónustu og þjónustukerfa mikilvægra innviða hér á landi. Leitað er að einstaklingum sem hafa brennandi áhuga á net­ og upplýsingaöryggismálum, búa yfir ríkum umbótavilja, sterkri áhættuvitund og samskiptahæfni til að taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu og framkvæmd eftirlits á þessu sviði. Helstu verkefni og ábyrgð: • Ábyrgð á framkvæmd úttekta á sviði net­ og upplýsingaöryggis fjarskiptafyrirtækja og mikilvægra innviða. • Stjórnsýsluskoðanir á alvarlegum atvikum á sviði netöryggis og/eða netárása hjá fjar­ skiptafyrirtækjum og mikilvægum innviðum. • Framkvæmd almennra og sértækra áhættumata á sviði fjarskiptaöryggis. • Aðstoð við framkvæmd eftirlits annarra stjórnvalda á sviði net­ og upplýsingaöryggis eftir því sem við á. • Aðkoma að eftirliti með traustþjónustum. • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net­ og upplýsingaöryggis eftir því sem við á. Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar nk. Sótt er um störfin á www.vinnvinn.is. Frekari upplýsingar veitir Unnur Kristín Svein­ bjarnardóttir, sviðsstjóri stafræns öryggis hjá Fjarskiptastofu (unnur@fjarskiptastofa.is). Allar nánari upplýsingar um störfin og hæfnis kröfur eru á Starfatorgi og heimasíðu Vinnvinn. Vinnvinn | Kringlan 7 | 103 Reykjavík Sími 552 1212 | vinnvinn@vinnvinn.is | www.vinnvinn.is 6 ATVINNUBLAÐIÐ 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.