Fréttablaðið - 07.01.2023, Page 31
Ráðuneytið starfar í fjórum skrifstofum, í samræmi við 17. gr. laga
nr. 115/2011, skrifstofu viðskipta og ferðamála, skrifstofu menningar
og fjölmiðla, skrifstofu verðmætasköpunar og skrifstofu fjármála
og gæðamála. Starfsfólk ráðuneytisins er rösklega 40 manna
hópur með fjölbreytta menntun, reynslu og þekkingu. Framundan
er stefnumótun á málefnasviðum ráðuneytisins með starfsfólki þess.
Undir ráðuneytið heyrir fjöldi stofnana og eininga svo sem Ferðamála-
stofa, Neytendastofa, Samkeppniseftirlitið, Þjóðminjasafn Íslands,
Listasafn Íslands, ársreikningaskrá, fyrirtækjaskrá, fjölmiðlanefnd,
Náttúruminjasafn Íslands, Listasafn Einars Jónssonar, Þjóðleikhúsið,
Stofnun Árna Magnússonar auk fjölda annarra. Einnig fer ráðuneytið
með alþjóðlegt samstarf á málefnasviðum ráðuneytisins í samvinnu
við utanríkisráðuneytið. Lögð er rík áhersla á samráð við önnur
ráðuneyti, Alþingi, hagsmunaaðila og notendur þjónustunnar þegar
unnið er að gerð lagafrumvarpa, reglugerða og stefnumótandi áætlana
á málefnasviðum ráðuneytisins.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Leiðtogahæfni og yfirgripsmikil stjórnunarreynsla.
• Þekking og reynsla á sviði reksturs og starfsmannahalds.
• Færni í mannlegum samskiptum.
• Almenn þekking á íslensku viðskipta- og atvinnulífi og menningu.
• Jákvæðni og lausnamiðun við úrlausn mála.
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er kostur.
• Þekking og reynsla á sviði löggjafar um opinber fjármál er kostur.
• Reynsla af alþjóðlegu samstarfi er kostur.
• Góð íslensku- og enskukunnátta.
Umsókn skal vera skrifleg og henni skal fylgja ítarleg ferilskrá
ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi
til að gegna embættinu, umsagnaraðilum og öðru sem máli kann
að skipta. Umsóknarfrestur er til og með 23. janúar 2023 og skal
skila umsókn rafrænt á netfangið mvf@mvf.is.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
liggur fyrir.
Reykjavík 27. desember 2022.
Menningar- og viðskiptaráðherra skipar í embættið til fimm ára frá
og með 1. mars 2023, þegar nefnd sem metur hæfni umsækjenda,
sbr. 19. gr. laga nr. 115/2011, hefur lokið störfum. Skipað er í embættið
til fimm ára, sbr. ákvæði laga nr. 115/2011 og nr. 70/1996 um réttindi
og skyldur starfsmanna ríkisins.
Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt gildandi lögum
á hverjum tíma.
Áhugasamt fólk, óháð kyni, sem uppfyllir hæfniskröfur, er
hvatt til að sækja um embættið. Upplýsingar um starfið veitir
Skúli Eggert Þórðarson ráðuneytisstjóri í síma 545 9825.
Laust er til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra í menningar- og
viðskiptaráðuneytinu. Ráðuneytið tók til starfa 1. febrúar 2022,
sbr. forsetaúrskurð nr. 6/2022, eftir breytingar á verkaskiptingu
Stjórnarráðs Íslands í árslok 2021.
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu og mótar stefnu þess undir
yfirstjórn menningar- og viðskiptaráðherra. Ráðherra setur
ráðuneytisstjóra erindisbréf sbr. 18. gr. laga nr. 115/2011 um
Stjórnarráð Íslands. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra
eru víðtækar þar sem m.a. reynir á faglega og fjármálalega stjórn
ráðuneytisins ásamt upplýsingagjöf til ráðherra. Þá er ráðuneytis-
stjóra ætlað að stuðla að samvinnu við önnur ráðuneyti þegar
málefni skarast.
Helstu verkefni menningar- og viðskiptaráðuneytisins eru sbr.
9. gr. forsetaúrskurð nr. 6/2022:
• Ferðamál, verslun og þjónusta
• Fjölmiðlar og höfundarréttur
• Viðskiptalíf; ríkisaðstoð, bókhald, félagaréttur, ársreikningar,
fjárfestingar erlendra aðila, samkeppnismál, neytendavernd,
fyrirtækjaskrá og ársreikningaskrá
• Menningar-, lista- og safnamál, þ.m.t. mótun stefnu í helstu
málaflokkunum
• Málefni íslenskrar tungu og skapandi greina
• Skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins
• Verkefni ýmissa nefnda og ráða í ferðamálum, viðskiptum,
fjölmiðlum og menningu
Ráðuneytisstjóri