Fréttablaðið - 07.01.2023, Blaðsíða 50
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Vala Jakobsdóttir
Eiðistorgi 5,
sem lést 1. janúar síðastliðinn, verður
jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
miðvikudaginn 11. janúar kl. 15.00.
Vala Jóhannsdóttir Magnús Nielsson
Hrefna Björk Jóhannsdóttir Kolbeinn Kolbeinsson
Heiðveig Jóhannsdóttir Guðmundur H. Finnbjarnarson
Atli Karl Pálsson Sólborg Þórðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Sverrir Skarphéðinsson
Árskógum 1B,
sem lést á Landakoti 21. desember,
verður jarðsunginn frá Seljakirkju
þriðjudaginn 10. janúar kl. 13.
Hólmfríður Þórhallsdóttir
Örn Steinar Sverrisson
Þórhallur Sverrisson Jóhanna Lind Jónsdóttir
Svanhildur Sverrisdóttir Dieudonné Gerritsen
afa- og langafabörn
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Steingrímur Steingrímsson
Kópavogstúni 9, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
mánudaginn 2. janúar. Útförin fer fram í
kyrrþey að ósk hins látna.
Hrund Káradóttir
Fjóla Steingrímsdóttir Sigurjón Lúthersson
Rakel Steingrímsdóttir Jón Bersi Ellingsen
Kári Steingrímsson Ingibjörg Helga Þórhallsdóttir
Hrund Steingrímsdóttir Jón Ásgeir Gestsson
og barnabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ingibjörg Ó. Gunnarsdóttir
lést 31. desember.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
föstudaginn 13. janúar kl. 13. Sérstakar
þakkir til starfsfólks Sólteigs, Hrafnistu.
Magnús Eysteinn Halldórsson
Steiney B. Halldórsdóttir Sigurður Sigurðsson
Unnur R. Halldórsdóttir Ásmundur H. Sturluson
Garðar R. Halldórsson
Halldór Ö. Halldórsson Brynhildur Skúladóttir
og ömmubörnin
Stjórnarliðar, starfsfólk og sjálfboðaliðar Nýló samankomnir. fréttablaðið/valli
Opnun fyrstu sýningar safnsins við Vatnsstíg 3b, Vídd á pappír, árið 1980. Mynd/aðsend
Nýju ári og fjörutíu og fimm ára
afmæli Nýlistasafnsins verður
fagnað á safninu í kvöld.
arnartomas@frettabladid.is
Nýl i st a s a f n ið, st u ndu m k a l lað
Nýló, fagnar 45 ára afmæli um þessar
mundir og verður tímamótunum fagn-
að með heljarinnar afmælis- og nýárs-
partíi í kvöld.
„Stemningin er ofsalega góð,“ segir
Sunna Ástþórsdóttir safnstjóri sem var
í óðaönn að gera og græja þegar Frétta-
blaðið náði af henni tali. „Okkur þykir
rosalega gaman að geta komið saman
til að fagna þessum tímamótum, lif-
andi Nýló í 45 ár og að sama skapi fagna
ókomnum ævintýrum.“
Partídagskráin er ekki af verri endan-
um en þar verður meðal annars boðið
upp á lifandi tónlist, teiknimiðlun, gin-
bar, lukkuhjól og margt annað.
„Þetta er orðið að hálfgerðri hefð hjá
okkur, að halda afmælispartí í janúar,
en hefur auðvitað verið erfitt út af svo-
litlu ástandi í samfélaginu nýlega,“
útskýrir Sunna. „Það má þess vegna
segja að við séum einstaklega spennt
fyrir fögnuðinum í ár.“
Hreyfiafl í sögu samtímalistar
Nýlistasafnið var opnað í janúar 1978
þar sem hópur listafólks kom saman og
lagði drög að stofnun nýs safns sem til-
einkað var samtímalist.
„Það má segja að safnið hafi verið
stofnað sem hálfgert viðbragð við
vöntun eða eyðu sem var þá að mynd-
ast í íslenskri listasögu,“ segir Sunna.
„Opinberu söfnin á þeim tíma sýndu
samtímanum litla athygli.“
Upphaflega var Nýlistasafnið í bak-
húsi við Vatnsstíg 3b en f lutti eftir það á
milli húsnæðis oftar en einu sinni áður
en það f lutti í núverandi húsakynni sín
í Marshallhúsinu. Það var upphaflega
stofnað sem safn en stuttu síðar var
fyrsti sýningarsalurinn opnaður og
síðan þá hefur verið frjó sýningardag-
skrá í safninu þar sem hundruð lista-
manna hafa sýnt verk sín og hundruð
sýninga verið haldin.
„Nýlistasafnið hefur verið mikið
hreyfiafl í íslenskri samtímalist,“ segir
Sunna sem hefur verið formaður stjórn-
ar síðan árið 2021. „Safnið er einstakt
að svo mörgu leyti. Nýló er eitt elsta
safn og sýningarrými í Evrópu sem er í
umsjón listamanna. Nú er safnið orðið
miðaldra, en með hverri nýrri stjórn úr
röðum félagsmanna tekur safnið nýja
stefnu, og þannig er safnið síbreytilegt.
Nýló er styrkt árlega af ríki og borg
en það má ekki gleyma sjálf boðavinnu
stjórnarliða, félaga safnsins og þeim
fjölda listamanna sem tengjast safninu.
Án þeirra myndi þetta ekki ganga.“
Spennandi sýningarár
Sunna segist afskaplega spennt fyrir
listaárinu 2023 í Nýlistasafninu.
„Við erum að vinna að spennandi
og krefjandi verkefnum í safneign og
sýningardagskráin fram undan er fjöl-
breytt, segir hún. „Fyrsta sýning ársins
verður opnuð 26. janúar og útleggst
á íslensku sem „Brot af annars konar
þekkingu“. Það er samsýning erlendra
og innlendra listamanna, unnin í sam-
starfi við Meet Factory í Prag og List án
landamæra hér heima, og þar er leitast
við að ögra viðteknum þekkingar-
kerfum nútímans.
Þar á eftir tekur við einkasýning
Amanda Riffo en hún vinnur gjarnan
með ýmiss konar tilraunir sem inn-
blásnar eru af sjónrænum menningar-
heimi okkar, ljósfræði og alls kyns mis-
skilningi.”
Þá mun safnið meðal annars hýsa
útskriftarsýningu meistaranema úr
Listaháskólanum, gjörningaveislu og
Sequences-myndlistarhátíðina í ár.
„Það er fjölbreytt sýningarár fram-
undan, fullt af lifandi viðburðum og
áframhaldandi verkefnum í safneign,“
segir Sunna að lokum.
Herlegheitin á safninu í kvöld hefj-
ast klukkan 20 og er hægt að kynna
sér dagskrána frekar á Facebook-síðu
safnsins. n
Nýló fagnar afmæli og nýju ári
22 Tímamót 7. janúar 2023 LAUGARDAGURFréttablaðiðTímAmóT Fréttablaðið 7. janúar 2023 LAUGARDAGUR