Víkurfréttir


Víkurfréttir - 11.05.2022, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 11.05.2022, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM Hjá okkur er allt innifalið Ljósleiðari 10.490 kr/mán. ENGINN AUKAKOSTNAÐUR, FRÍR ROUTER NET SÍMI SJÓNVARP K a p a l v æ ð i n g • H a f n a r g a t a 2 1 • 4 2 1 4 6 8 8 w w w . k v . i s • k v @ k v . i s VIÐ SÝNUM ALLAR EIGNIR, FÁÐU TILBOÐ Í FERLIÐ. ÁSTA MARÍA JÓNASDÓTTIR A S TA@A L LT.I S | 560-5507 UNNUR SVAVA SVERRISDÓTTIR U N N U R@A L LT.I S | 560-5506 SIGRÍÐUR GUÐBRANDSDÓTTIR S I G R I D U R@A L LT.I S | 560-5520 JÓHANN INGI KJÆRNESTED J O H A N N@A L LT.I S | 560-5508 DÍSA EDWARDS D I S A E@A L LT.I S | 560-5510 ELÍNBORG ÓSK JENSDÓTTIR E L I N B O RG@A L LT.I S | 560-5509 PÁLL ÞOR BJÖRNSSON PA L L@A L LT.I S | 560-5501 Lokadagur er í dag, 11. maí. Frá fornu fari lýkur vetrarvertíð á Suður- landi á þessum degi. Vertíðin hefst 1. janúar og á lokadegi er vetrar- hlutur sjómanna gerður upp og menn gerðu sér jafnframt góðan dag. Skipseigandi eða svokallaður formaður, sem var skipstjórinn, hélt matar- eða kaffiveislu og jafnframt var stundum vel veitt af brennivíni, svo vitnað sé í heimildir um lokadaginn. Þegar talað er um vetrarvertíð er fyrst og fremst talað um svokallaða vertíðarbáta, báta sem stunduðu veiðar í net, sóttu hart og réru í nánast öllum veðrum, svo fremi sem bátarnir kæmust úr höfn. Skipstjórar kepptust um að verða aflakóngar vertíðarinnar og oft munaði aðeins örfáum kílóum á milli báta, svo hörð var samkeppnin. Í dag er öldin önnur og ræðst af kvótaeign. Lokadagur í dag og fiskur- inn leitar á önnur mið Myndin var tekin í Sandgerðishöfn í byrjun vikunnar þegar verið var að landa um átta tonnum, mest þorski, úr Gísla Súrsyni GK. Hann stundar línuveiðar og karlarnir um borð sögðu tíðindamanni Víkurfrétta að nú væri að róast yfir veiðum á þessum slóðum. Fiskurinn væri að fara annað, leita á önnur mið, eins og hann gerir alltaf á þessum árstíma og því vertíðarlok viðeigandi á þessum tíma. VF-mynd: Hilmar Bragi Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju 60 rýma hjúkr- unarheimili við Nesvelli í Reykjanesbæ síðasta föstudag að viðstöddum fulltrúum allra sveitar- félaga á Suðurnesjum og heilbrigð- isráðherra sem mundaði skófluna með fulltrúum yngri og eldri kyn- slóðarinnar. Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, Betsý Ásta Stefánsdóttir, formaður ungmenn- aráðs Reykjanesbæjar, og Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Suðurnesjum, tóku fyrstu skóflustunguna. Nánar er fjallað um málið á síðu 4 í Víkurfréttum í dag. VF-mynd: pket Verzlun Þorláks glædd lífi á Garðskaga 60 ný rými við Nesvelli SÍÐUR 16–17 12.-15. maí Miðvikudagur 11. Maí 2022 // 19. tbl. // 43. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.