Verktækni - 2019, Blaðsíða 21
21
Vendikennsla bætir árangur nemenda á lokaprófi
í fyrsta árs verkfræðinámskeiði
Guðmundur V. Oddssona, Rúnar Unnþórssona.
aIðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild, Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6, 107
Reykjavík.
Fyrirspurnir:
Guðmundur V. Oddsson
gvo@hi.is
Greinin barst 6. ágúst 2019
Samþykkt til birtingar 20. desember 2019
Ágrip
Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvað þarf til að bæta skilning nemenda á námsefni sem kennt
er í fyrsta árs verkfræðinámskeiði. Tvær vendikennsluaðferðir voru bornar saman við hefðbundna
kennslu – byggða á fyrirlestrum. Samanburðurinn var byggður á árangri nemenda í skriflegu lokaprófi og
ánægju nemenda með námskeiðið út frá árlegu kennslumati námskeiðsins. Vendikennslan fór fram árin
2015 og 2016 og voru niðurstöðurnar bornar saman við viðmið fyrir 10 ára hefðbundna kennslu sem sett
voru í annarri rannsókn. Fyrirkomulag vendikennslunnar var þannig að fyrirlestrar voru teknir upp með
skjáupptökuhugbúnaði sem tók upp bæði rödd kennara og aðgerðir hans á skjánum. Með tilkomu
upptakanna gátu nemendur horft á fyrirlestra eftir hentugleika. Fyrirlestrarnir voru haldnir af sama
kennara, námsefnið var það sama og einnig kennslubókin. Vendikennslan árið 2015 fór fram þannig að
fyrirlestratímar voru nýttir í að svara spurningum nemenda úr fyrirlestrum vikunnar. Árið 2016 var
fyrirkomulaginu breytt þannig að fyrirlestratímarnir voru nýttir til að fara yfir valin hugtök og aðferðir
auk þess að æfa nemendur í að beita námsefninu. Niðurstöður sýna að það er jákvæð fylgni milli
vendikennslu og meðalárangurs á lokaprófi og sterk vísbending um að nemendum sem æfa sig í að beita
námsefninu í fyrirlestratíma gangi betur á lokaprófi.
Lykilorð: einkunnir; nemendamat; vendikennsla; spegluð kennsla.
Abstract
The aim of this study was to evaluate what is needed to improve students' understanding of the
material taught in a first-year engineering course. Two flipped classroom methods were compared to
traditional teaching method – based on lectures. The comparison was based on the students'
achievements in the written final exam and student satisfaction with the course based on the annual
teaching evaluation. The flipped classroom took place in 2015 and 2016, and the results were compared
with a baseline for 10-year traditional teaching set in another study. The course teaching arrangement
was such that lectures were recorded using screen capture software that recorded both the voice of the
teacher and his actions on the screen. The recordings enabled the students to watch the lectures at a
time convenient to them. The lectures were given by the same teacher, the study material was the same
and also the textbook. The flipped classroom in 2015 was arranged so that normal lecture hours were
used to answer students' questions from the week‘s recorded lectures. In 2016, the arrangement was
changed so that lecture hours were used to review selected concepts and methods as well as train
students to apply the study material. The results show that there is a positive correlation between