Verktækni - 2019, Blaðsíða 13
13
Hætta á að skriða eða flóð skemmi vatnsból var metin sérstaklega á svæði HNE fyrir einstök vatnsból til
að fá gróft mat á umfangi áhættunnar. Á sumum svæðum eru vatnsból hátt í fjallshlíðum til að fá
sjálfrennsli á bæina og spara þannig rafmagn. Aðgengi að slíkum vatnsbólum er oft erfitt sem gerir viðhald
einnig erfitt. Stundum er illmögulegt að koma fyrir girðingum í kringum þau og ef það gert þá eru þær
fljótar að falla undan snjóalögum. Vatnsból í fjallshlíðum eru sjaldan skoðuð af heilbrigðiseftirliti og sýni
oftast tekin í dreifikerfi. Greining á skriðu- og flóðahættu á svæði HNE leiðir í ljós að skriðuhætta (mikil,
meðal eða lítil) er við 53% vatnsbóla eða ríflega helming vatnsbóla og á 5% vatnsbóla er skriðuhættan
mikil, en flóðahætta er óveruleg ógn á öllu svæðinu.
Mynd 5 Áhættugreining á að skriðuföll og flóð spilli vatnsbólum á eftirlitssvæði Heilbrigðiseftirlits
Norðurlands eystra.
Nauðsynlegar aðgerðir til að tryggja gæði neysluvatns
Greiningin hér að ofan sýnir að nauðsynlegt er að grípa til aðgerða til að halda neikvæðum áhrifum vegna
loftslagsbreytinga á gæði neysluvatns í lágmarki. Flokka má aðgerðirnar annarsvegar á ábyrgð ríkis eða
sveitarfélaga og hinsvegar á verksviði vatnsveitna. Það er á ábyrgð vatnsveitna að afhenda heilnæmt
neysluvatn en ríkið og sveitarfélög hafa skyldur til að innleiða í lög og reglur og hafa stefnu sem hefur það
að markmiði að vernda vatnið og heilnæmi þess, jafnframt því að sjá til að ytra eftirlit sé til staðar.
Ríki og sveitarfélög
Aðlögun að loftslagsbreytingum. Stjórnvöld þurfa að marka stefnuna og gera aðlögunaráætlun um hvernig
eigi að bregðast við breyttum aðstæðum á öllum sviðum, m.a. því sem snýr að neysluvatni og vatnsveitum
og taka þá stefnumörkun inn í ákvarðanatöku. Til að styrkja stefnumörkun er nauðsynlegt að auka ýmsar
rannsóknir t.d. á flóðahættu, hættu á skriðuföllum, sjávarstöðu og öðrum áhrifum loftlagsbreytinga á
vatnsauðlindina, á neysluvatn og gæði þess.
Viðbragðsáætlun. Sveitarfélögin, sem bera ábyrgð á eftirliti með neysluvatnsgæðum og vatnsvernd, þurfa
að gera áætlun um hvernig vatnsafhendingu skuli háttað á sínu svæði við breyttar aðstæður og gera
áhættugreiningu vegna loftslagsbreytinga. Í þeirri áhættugreiningu þarf að meta hættu á saurmengun,
46%
31%
17%
5%
1%
96%
1% 2% 1% 0%
0%
20%
40%
60%
80%
100%
Engin hætta Lítil hætta Meðal hætta Mikil hætta Ekki vitað
Skriðuföll Flóð