Verktækni - 2019, Blaðsíða 6
6
Inngangur
Hitastig á jörðinni hefur hækkað um 1°C síðan fyrir iðnbyltinguna og mun líklega ná 1.5°C hækkun 2030 til
2052 ef loftslagsbreytingar halda áfram á sama hraða samkvæmt niðurstöðum Milliríkjanefndar
Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál (IPCC, 2018). Loftslagsbreytingar geta haft áhrif á lýðheilsu með
ýmsum hætti, m.a. valdið aukingu á vatnsbornum hópsýkingum (IPCC 2014, IPCC 2018, Roffey o.fl., 2014).
Hreint neysluvatn er undirstaða góðrar lýðheilsu. Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2010 að rétturinn
til aðgengis að heilnæmu og nægu vatni væru mannréttindi og hreint vatn væri forsenda þess að geta lifað
mannsæmandi lífi (Resolution/64/292). Eitt af af sautján heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna frá 2015,
markmið nr. 6, segir að tryggja eigi aðgengi allra að hreinu vatni fyrir árið 2030 (Resolution/71/313). Mörg
önnur markmið varða heilnæmi vatns eins og nr. 3 um heilsu og vellíðan þar sem fækka á veikindum m.a.
vegna mengaðs vatns. Tilskipun Evrópusambandsins um neysluvatn frá 1998 er nú til endurskoðunar m.a.
til að uppfylla heimsmarkmiðin. Til að minnka kolefnisfótspor neysluvatns, og sporna við loftslags-
breytingum, er m.a. stefnt að því að minnka notkun flöskuvatns og bæta orðspor og aðgengi að kranavatni.
Þrír veðurtengdir þættir hafa áhrif á forða og gæði vatnsauðlindarinnar: Hærri lofthiti, hækkun á
sjávarstöðu og svæðisbundnar breytingar á úrkomu bæði í magni og ákafa (IPCC, 2014; Jiménez Cisneros
o.fl., 2014). Hækkun hitastigs mun leiða til þess að óvenjulegt veðurfar verður algengara, svo sem meiri
úrkoma á sumum svæðum sem eykur vatnsforða á meðan á öðrum verða meiri þurrkar og þar með
vatnsskortur (IPCCA, 2018; Taylor o.fl., 2012). Veðuröfgar hafa aukist síðan 1950 og það eykur hættu á
flóðum og hækkandi hiti minnkar sífrera sem eykur líkur á skriðuföllum í fjalllendi, sem geta m.a. valdið
skemmdum á vatnsbólum og mannvirkjum vatnsveitna (Seneviatne o.fl., 2012; Kellerer-Pirklbauer o.fl.,
2012). Á norðlægum slóðum er spáð aukinni úrkomu á ársgrundvelli (IPCC, 2018). Í Noregi hefur
meðalúrkoma t.a.m. aukist um 20% á síðustu hundrað árum, og ákafir rigningaskúrir og skriðuföll hafa
aukist umtalsvert (Hanssen-Bauer o.fl., 2009). Loftslagsbreytingar í norður Finnlandi eru taldar valda minni
snjóalögum, bráðnun á sífrera og aukingu í flóðum á vetrum sem er talið geta rýrt vatnsgæði í viðkvæmum
vatnshlotum (Okkonen o.fl. 2010).
Íslenska reglugerðin um neysluvatns, sem var sett árið 2001 (nr. 536/2001) í samræmi við núgildandi EB
tilskipun, er nú til endurskoðunar á vegum Atvinnuvega– og nýsköpunarráðuneytisins. Í dag er lítil þekking
innanlands á áhrifum loftlagsbreytinga á vatnsból og veitur. Markmið þessarar rannsóknar var að greina
helstu áhættuþætti íslenskra vatnsveitna vegna hnattrænna loftslagsbreytinga og gera tillögur um
aðgerðir til að stuðla að áframhaldandi afhendingu heilnæms neysluvatns.
Aðferðarfræði
Þessi grein byggir á rýni á skýrslum og greinum um áhrif loftslagsbreytinga. Rýndar voru erlendar greinar
um áhrif loftlagsbreytinga á vatnsauðlindina, með áherslu á norðurslóðir þar sem loftslag, aðstæður, tækni
og lagaumhverfi er svipað og hér á landi m.a. norrænar skýrslur um áhrif loftslagsbreytinga á vatnsveitur,
gæði neysluvatns og aukna hættu á hópsýkingum vegna þeirra. Jafnframt eru rýndar íslenskar skýrslur og
greinar. Þær upplýsingar eru heimfærðar upp á rekstur og nýtingu neysluvatns hér á landi.
Gögn frá heilbrigðiseftirlitunum tíu, sem framkvæma reglubundna úttektir og taka sýni í samræmi við
kröfur neysluvatnsreglugerðarinnar (nr. 536/2001), voru greind. Þar er skráð hvort vatnið er tekið úr
borholu, uppsprettu/lind, gröfnum brunni eða er yfirborðsvatn. Einnig er skráð hvort vatnið sé geislað og
ástand vatnsbóls er metið sem gott, sæmilegt eða lélegt. Heilbrigðiseftirlitin hafa ekki samræmdar
leiðbeiningar um það mat sem gerir niðurstöður ónákvæmar. Örverugreiningar á sýnum eru gerðar hjá
rannsóknastofunum Matís ohf, ProMat Akureyri ehf og Sýni ehf. Í samræmi við kröfur reglugerðarinnar er