Verktækni - 2019, Blaðsíða 15
15
til hreinsunar og þegar neysluvatn er síað og geislað þarf að tryggja kerfisbundið viðhald. Nú þegar er löng
reynsla hér á landi af slíkum tækjum og eins og áður sagði hafa a.m.k. nær 60 vatnsveitur sett upp
geislatæki. En þrátt fyrir það hafa frávik verið algeng þar sem slík tæki eru til staðar. Það þýðir væntanlega
að viðhald og umhirða þeirra hefur ekki verið sem skyldi. Það er heldur ekki nægjanlegt að koma sér upp
geislun án þess að ráðast að rótum vandans og lagfæra vatnsbólið eða það sem hefur valdið mengun.
Varavatnsból. Þar sem vatnsból eru í hættu vegna flóða eða skriðufalla þarf að tryggja aðgengi að
varavatnsbóli sem ekki er í slíkri hættu ásamt því að hafa viðbragðsáætlun hvernig megi dreifa vatni í
flöskum til að brúa tímabundna stöðvun á öruggri afhendingu. Jafnframt þarf að kortleggja hvar eru
viðkvæmir notendur á svæði vatnsveitunnar, t.d. sjúkrastofnanir, skólar og barnaheimili.
Endurbætur í dreifikerfi. Í dreifikerfinu getur skapast töluverð hætta við mikið úrhelli þegar frárennslis-
lagnir og vatnslagnir eru í sama skurði, eins og algengt er hér á landi. Vatnsveitur þurfa að þekkja hvar þessi
hætta er mest og endurnýja gamlar og lekar lagnir og aðskilja frá skolplögnum á skipulagðan hátt. Samhliða
þessu eru fráveitur að vinna að blágrænum ofanvatnslausnum þar sem ofanvatni í þéttbýli er veitt í viðtaka
sem veitir vatninu niður í jarðveginn á náttúrlega hátt í stað þess að flóðavatnið fari allt í fráveitulagnir
(Ráðgjafastofan Alta, 2016). Sú lausn eykur öryggi neysluvatns og styrkir sjálfbæran vatnabúskap.
Samantekt
Greining á áhættuþáttum í rekstri vatnsveitna sýna að loftslagsbreytingar munu auka hættu í rekstri þeirra
og geta leitt til neikvæðra áhrifa á gæði neysluvatns. Heilbrigðiseftirlitin, sem hafa eftirlit með vatnsveitum
og neysluvatnsgæðum, hafa metið að ástand 11% vatnsbóla sé lélegt. Algengast er að minni vatnsveitur
virki lindir við öflun neysluvatns og eru a.m.k. um 480 lindarsvæði í notkun hjá eftirlitsskyldum
vatnsveitum. Á sumum svæðum, þar sem aðstæður leyfa, er algengt að virkja lindir upp í fjallshlíð til að fá
sjálfrennsli og spara þannig rafmagn. Það skapar ákveðna hættu á að vatnsbólin eyðileggist af völdum
skriðufalla. Líklegt er talið að skriðuföll muni aukast hér á landi vegna loftslagsbreytinga og má eiga von á
aukningu á slíkum atburðum í kjölfar mikillar úrkomu. Við gróft mat á einu heilbrigðiseftirlitssvæði,
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra, þar sem háir fjallgarðar og djúpir dalir einkenna vatnstökusvæðin,
kom í ljós að yfir helmingur vatnsbóla voru lindir í fjallshlíð þar sem hætta á skriðuföllum var metin lítil til
mikil. Hinsvegar voru fá vatnsból á því svæði þar sem talin er hætta á að flóð spilli vatnsbólinu. Þessi hætta
er hins vegar mjög mismunandi eftir landsvæðum.
Draga má saman nauðsynlegar aðgerðir ríkis, sveitarfélaga og vatnsveitna vegna nýrra og aukinna ógna
vegna loftslagsbreytinga í eftirfarandi atriði:
Ríki og sveitarfélög
• Marka stefnu um hvernig eigi að tryggja neysluvatn og vatnsgæði m.t.t. nýrra áskoranna vegna
loftslagsbreytinga.
• Auka vöktun og rannsóknir á vatnsauðlindinni.
• Hvert sveitarfélag metur áhrif loftlagsbreytinga á vatnsafhendingu í sínu sveitarfélagi.
• Almannavarnir sveitarfélaga taki möguleg áhrif af loftslagsbreytingum á neysluvatnsafhendingu
inn í sína viðbragðsáætlun.
• Heilbrigðiseftirlitin fylgi því eftir að stærri vatnsveitur setji upp innra eftirlit þar sem það hefur ekki
verið gert og jafnframt verði gerðar reglulega ytri úttektir.
• Heilbrigðiseftirlitin sjái til þess að gerð verði áhættuúttekt á öllum vatnsbólum og taki þar
sérstaklega tillit til hættu á skriðuföllum og flóðum.