Rökkur - 01.12.1949, Side 56
168
RÓKKUR
ingana meðferðis. Komið einn, gangandi. Eg mun hitta
yður.“
Jafsie fór og hitti sama mann og hann hafði liitt í Wood-
lavn kirkjugarði og Van Cortlandt Park. Enn hafði mað-
ur þessi valið kirkjugarð, að þessu sinni var það St. Rey-
monds kirkjugarður. — Jafsie skildi peningana eftir í bif-
reiðinni hjá Lindbergh, og eftir stutta viðræðu kom hann
aftur, og afhenti „John“ peningana, og var limgirðing
milli þeirra. Jafsie fékk i staðinn miða, sem á var letrað:
„Barnið er á bátnum Nelly, sem er lítill, 28 feta langur.
Tveir menn eru á bátnum. Þeir eru saklausir. Þér munuð
finna bátinn milh Horseneck Beach og Gay Head nálægt
Elisabetheyja“.
Að kalla hvert orð í bréfunum öllum var brenglað.
Lindbergh og Jafsie óku þegar til íbúðar frá Morrow
við 72. götuna, þar sem við öllu biðum. Er við höfum litið
á miðann sagði Jafsie og veifaði hreykinn seðlabúnti:
„Jæja, eg fékk hann til að sleppa tilkalli til 20.000 doll-
ara.“
Eg, Madden og Wilson öskruðum að honum og spurð-
um hvað hann hefði gert?
En hann sýndi okkur hreykinn á svip 400 fimmtiu doll-
ara seðlana, sem auðþekktastir voru, og vig bygðum mest-
ar vonir á. Nú hafði ræninginn í höndum aðeins seðla, sem
komu í þúsundatali í flesta banka á degi hverjum. —
Þetta hafði þau áhrif á okkur, að við hefðum getað skotið
karlfauskinn upp á stundina fyrir bjálfaskapinn, ef við
hefðum gefið reiðinni lausan tauminn.
Lindbergh fékk flugvél til að leita að bátnum, en sú leit
bar engan árangur, og varð hann að lokum að segja konu
sinni frá þessum raunalega árangri.
Tveimur dögum síðar var komið með lausnarfjárseðil í
banka á Manhattan, en enginn veitti honum athygli sér-
staklega fyrr en þremur dögum siðar. Við létum nú alla
banka landsins fá listann og lögðum ríkt á, að farift væri
leynt með þá, en daginn eftir birtist listinn í blaði í New-
*rk. Bankastarfsmaður hafði selt blaðinu listann, fyrir 5