Fréttablaðið - 04.02.2023, Page 21
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
LAUGARDAGUR 4. febrúar 2023
Alla daga
gegn kulda og sól
Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup
www.celsus.is
Norsku úlfarnir koma fram á úrslita-
keppninni í Noregi í kvöld.
elin@frettabladid.is
Úrslit í undankeppni Söngvakeppni
Evrópu fara fram í Þrándheimi í
Noregi í kvöld en keppnin hefur
staðið yfir á laugardögum frá 14.
janúar. Níu keppendur berjast um
að komast til Liverpool þar sem
Eurovision fer fram 13. maí. Meðal
þeirra sem koma fram eru sigur-
vegarar síðasta árs, Subwoolfer, en
þeir koma líka fram á lokakvöldi
hér heima þann 4. mars. Úlf-
arnir ætla að flytja nýtt lag á loka-
kvöldinu í Noregi sem þeir munu
væntanlega flytja hér á landi. Lagið
nefnist Worst Kept Secret.
Íslendingar sem hafa aðgang
að norrænum sjónvarpsstöðvum
geta einnig fylgst með fyrsta Euro-
vision-kvöldinu í Svíþjóð en Svíar
hefja sína vegferð í kvöld. Bæði
Noregur og Svíþjóð leggja mikið
upp úr undankeppni og tjalda öllu
til, til að gera keppnina sem glæsi-
legasta. Úrslit í Danmörku verða
11. febrúar en þar eru átta kepp-
endur og aðeins eitt kvöld.
Nýtt kosningakerfi
Í Noregi í kvöld gilda atkvæði
áhorfenda en einnig eru gefin stig
frá alþjóðlegri dómnefnd. Atkvæði
áhorfenda og stig frá dómnefnd
gilda 50 prósent hvor. Fyrst verða
birt atkvæði alþjóðlegu dóm-
nefndarinnar og síðan atkvæði
áhorfenda. Er þetta byggt á sama
hátt og í keppninni sjálfri.
Sænsku úrslitin verða í Friends
Arena-höllinni í Stokkhólmi þann
11. mars. Sama kosningakerfi
verður viðhaft þar og í Noregi. n
Eurovision hjá
frændum vorum
Netöryggi skiptir öllu máli
Promennt býður upp á nám í netöryggi í fyrsta sinn á Íslandi. Mikil eftirspurn er eftir sér-
fræðingum í netöryggi og nauðsynlegt að útskrifa fleiri sérfræðinga á því sviði hérlendis. 2
Nám í netöryggi býður upp á spennandi starfsmögueika. Aðalkennarar námsins eru Guðmundur Pétur Pálsson og Sveinbjörn Þormar. Fréttablaðið/ernir