Fréttablaðið - 04.02.2023, Síða 48
MERKISATBURÐIR |
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Útfararþjónusta í yfir 70 ár
Við tökum vel á móti ástvinum
í hlýlegu og fallegu umhverfi
Sólarhringsvakt: 581 3300 & 565 5892
Komum til aðstandenda og ræðum skipulag sé þess óskað
Sverrir Einarsson
S: 896 8242
Jón G. Bjarnason
S: 793 4455
Jóhanna
Eiríksdóttir
Útfararstofa Íslands
www.utforin.is w Auðbrekku 1, Kópavogi
Útfararstofa Hafnarfjarðar
www.utfararstofa.is w Dofrahellu 9b, Hafnarfirði
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Sólrún Guðmundsdóttir
Galtalind 12, Kópavogi,
lést á Líknardeild Landspítalans
fimmtudaginn 2. febrúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðfinnur Magnússon
Guðm. Heiðar Guðfinnsson Enikő Bali
Guðrún Jóna Guðfinnsdóttir Helgi R. Magnússon
Magnús Grétar Guðfinnsson Júlía Hrönn Möller
Harpa Björg Guðfinnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Götumyndir á kortavef Já.is
verða uppfærðar á þriðjudaginn
og segir talsmaður fyrirtækisins
suma landsmenn hafa beðið upp-
færslunnar í ofvæni.
arnartomas@frettabladid.is
Kortavefur Já.is er vinsæll hjá Íslend-
ingum sem eru, rétt eins og aðrar þjóðir,
misratvísir. Vefurinn býður einnig upp
á 360 gráðu götumyndir þar sem hægt
er að gera sér grein fyrir aðstæðum, en
dágóður tími hefur liðið síðan mynd-
irnar voru síðast uppfærðar. Það breytist
hins vegar í byrjun næstu viku.
„Á þriðjudagsmorgun ættu allar
myndirnar að vera uppfærðar og
komnar inn á vefinn hjá okkur,“ segir
Helgi Reynir Guðmundsson, sölustjóri
hjá Já.is og bætir við að götumyndirnar
séu mikið notaðar af landsmönnum. „Ég
myndi segja alveg gríðarlega mikið. Eftir
að við settum þetta í loftið þá eru þetta
sirka 130 þúsund manns sem nota kortin
í heild sinni á mánuði, eða um 60 þús-
und manns sem smella á götumyndina
í 360 gráðum.“
Kúlumyndirnar svokölluðu eru um
629 þúsund á vefnum í dag en með upp-
færslunni verða þær yfir 700 þúsund.
Verkefnið er umfangsmikið og fer þann-
ig fram að bíll keyrir um landið með
áfasta 360 gráðu myndavél á þakinu. Öll
myndagögnin eru með GPS-hnitum sem
eru tengd kortavefnum.
„Þetta er einn aðili sem tók rúntinn
og það fór meira og minna allt sumarið
í þetta,“ segir Helgi Reynir. „Við vorum í
samstarfi við Toyota sem lánaði okkur
bíl. Bílstjórinn tók þetta svo í skömmt-
um því við erum að stíla inn á daga
þegar veðrið er gott.“
Þar á eftir þarf tæknideild Já.is að
þræða myndirnar og afmá persónuupp-
lýsingar á borð við bílnúmer og andlit.
„Það er heljarmikil vinna sem fylgir
þessu.“
Hvar er Valli?
„Hingað til höfum við gert þetta annað
hvert ár en það datt eitt út vegna Covid
svo það eru orðin fjögur ár síðan við
uppfærðum síðast,“ segir Helgi Reynir.
„Það var alveg kominn tími á nýjar
myndir enda fullt af götum sem voru
ekki til þegar við tókum síðast. Þörfin
er þannig brýn.“
Samfélagið fylgist greinilega líka
mikið með myndunum.
„Það er oft haft samband við okkur
með spurningar um hvenær við komum
næst að taka myndir,“ útskýrir Helgi
Reynir. „Fólk vill oft að það sjáist þegar
það hefur málað eða gert upp húsin sín.
Núna getur það fólk tekið gleði sína á
ný.“
Á vefnum er til samfélag fólks sem
þræðir sambærilegar kúlumyndir frá
Google Street View til að finna athyglis-
verða hluti sem kunna að leynast þar.
Hefur eitthvað áhugavert fundist á
kúlumyndunum hjá Já?
„Já, þegar við gerðum þetta fyrst þá
var einn sem vissi að við værum að koma
svo að hann kom sér fyrir, uppklæddur
eins og Valli úr Hvar er Valli? bókunum,“
svarar Helgi Reynir og hlær. „Það var
mjög gott grín.“
Kúlumyndirnar eru einnig grunnur-
inn að Flakk-leiknum svokallaða þar
sem leikmenn lenda á fimm stöðum á
landinu og þurfa að giska hvar myndin
er tekin. Frá því að leikurinn fór í loftið
hafa tæplega 200.000 leikir verið spilaðir
og eru aðdáendur orðnir spenntir að fá
að flakka um nýjar myndir. n
Götumyndir í allar áttir
Er hægt að ráða inn hæfari einstakling en mann með 360 gráður? MYND/AÐSEND
Það er heljarmikil vinna
sem fylgir þessu.
Helgi Reynir
Guðmundsson,
sölustjóri hjá Já.is
1902 Bandaríski flugmaðurinn Charles Lindbergh fæddist
á þessum degi. Árið 1927 varð hann fyrstur til þess
að fljúga einn síns liðs yfir Atlantshafið þegar hann
flaug frá New York til Parísar.
1975 Ástralska tónlistar- og leikkonan Natalie Imbruglia
fæddist á þessum degi og er því 48 ára í dag.
1976 Vetrarólympíuleikar hefjast í Innsbruck í Austurríki.
1984 Kvikmynd Hrafns Gunnlaugssonar Hrafninn flýgur
er frumsýnd. Áætlað er að um 70 þúsund manns
hafi séð myndina í íslenskum kvikmyndahúsum.
2007 Þjóðverjar verða heimsmeistarar í handknattleik
karla eftir sigur á Pólverjum í úrslitaleik.
22 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 4. FEBRÚAR 2023
LAUGARDAGUR
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Ásta Jóhannesdóttir,
Nesvegi 41,
Reykjavík,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
hjúkrunarheimilinu Seltjörn 30. janúar.
Útförin fer fram frá Neskirkju föstudaginn
10. febrúar kl. 15.
Adolf Bjarnason
Gunnar Þór Adolfsson Irina Prokhorova
Margrét Adolfsdóttir
Bjarni Adolfsson Halla Dóra Halldórsdóttir
Bjarni Þór, Adolf Smári, Daníel Þórarinn
Eva Sóley, Brynja og Birta
Elskulegur faðir minn,
tengdafaðir og afi,
Ólafur Bjarni Sigurðsson
Bláhömrum 2, Reykjavík,
lést á Fossheimum, Heilbrigðisstofnun
Suðurlands á Selfossi, mánudaginn
23. janúar. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Bjarni Þór Ólafsson Elva Björk Ævarsdóttir
Guðrún Ýr Bjarnadóttir Daníel Capaul
Þórey Petra Bjarnadóttir
Dagmar Sara Bjarnadóttir