Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Side 10

Veiðimaðurinn - 01.12.1955, Side 10
um félagsskap Björns Blöndal og fjöl- skyldu hans. Við Ólafur reyndum þó að gera skyldu okkar að leita að fiski, en þrátt fyrir alla viðleitni bar það ekki árangur, nema livað Ólafur fékk nokkra fallega sjóbirt- inga. Ólafur er nefnilega með þeirn ó- sköpum fæddur, að ef fiskur er í nánd við öngulinn hans, þá er fiskurinn ekki í rónni fyrr en hann hefur gleypt öngul- inn hans. Þannig veiddi Ólafur bæði fyrir ofan mig og neðan, án þess að ég yrði var. Við höfðum komið til veiða 15. ágúst og nú var kominn sá 18. og ég hafði ekki orðið var, en Ólafur liafði dregið 11 punda lirygnu og marga silfr- aða sjóbirtinga. Mér kom þá í hug litla flugan frá honum Albert, sem hafði livílst í Veski mínu um langt skeið. Nú tók ég han fram, þótt lítil væri, miðað við þetta ferlega vatnsmagn og skollitinn á því. Við Ólafur höfðum þá daginn áður séð stóran lax stökkva þar við „Stein- inn“, en það er stór steinn á bakkanum, ofarlega á veiðisvæðinu. Það er svo ekki að sökum að spyrja, að eftir fá köst á því svæði með litlu flugunni minni, steypti stór lax sér yfir hana og nú liófst bar- átta, sem endaði furðu fljótt með sigri fyrir mig en með aðstoð Ólafs læknis. Reyndist þetta 18 punda hængur. Því miður brotnaði önnur álman á flugunni litlu í þessum átökum og hvílir hún nú á rneðal hinna óvígu en umvafin „gloríu" frægðarinnar. Þannig mætti lengi halda áfram að tína fram skemmtilega viðburði í félags- skap hugljúfra veiðifélaga eins og þeirra, sem hér að framan eru nefndir. Það út af fyrir sig er þáttur á sína vísu, þessi 8 sérkennilega hugþekka aðlöðun meðal veiðimanna. Ég vona nú, að þessar fáu hugleiðingar geti orðið einhverjum vetrarkvíðnum til afþreyingar í skammdeginu. Sjálfum mér hefur þessi stund verið dýrmæt — að i'á að endulifa liðna atburði og gleðjast yfir þeim á ný. 14 pd. sjóbirtingur í Eyjaíjarðará. FRÉTTIR af sjóbirtingsveiði eru mjög af skornum skammti. Víðsvegar um landið eru þó ár og ósar þar senr vænir sjóbirtingar veiðast á hverju ári. Veiðimálastjóri liefur beðið blaðið að beina þeim tilmælum til veiðimanna, að senda skrifstofunni upplýsingar um væna sjóbirtinga (lengd og þyngd og hreistursýnishorn). Einnig vill hann fá sams konar fréttir um sjóbleikju. Þetta eru livorttveggja skemmtilegir liskar, sem eiga skilið að komast í annála, engu síður en stórir laxar. S.l. sumar veiddist í Eyjafjarðará 14 punda sjóbirtingur, sem veiðimálaskrif- stofunni var sent hreistur af. Ennfremur fékk hún upplýsingar um lengd háns. Fiskur þessi var 80 cnr langur, 11 \etra garnall. Hafði dvalið 4 ár í fersku vatni og komið upp í ána nokkrum sinn- um til að hrygna. Sjóbirtingurinn \ex hægar en laxinn og hrygnir oftar. Eflaust hafa einhvers staðar veiðst stærri fiskar en þessi, s.l. sumar, og ættu menn að senda blaðinu sögur þeirra. Veidimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.